Kári: Þú hreyfir þig ekki hægt í svona ástandi

For­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar hefur boðið for­sæt­is­ráð­herra að koma til hans á fund í Vatns­mýr­inni þar sem fyr­ir­tækið er til húsa.

Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri ÍE. Mynd: Bára Huld Beck

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE), gagn­rýnir þann frest sem rík­is­stjórnin tók sér til að ráð­ast í stofnun far­alds­fræði­stofn­unar til að takast á við COVID-19 far­ald­ur­inn. Kári þekkt­ist ekki boð um að koma og ræða við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í Stjórn­ar­ráð­inu í dag en bauð henni á sinn fund í Vatns­mýr­inni ef hún teldi það skila ein­hverju. Þetta kom fram í frétt RÚV í morgun.

„Það er dálítið kynd­ugt að í við­tali í gær þá segir Katrín að hún sé ekk­ert ósam­mála því að það væri skyn­sam­legt að setja upp svona stofnun eins og ég var að leggja til en að þetta þurfi allt að taka sinn tíma. Það vill svo til að við erum að fara í gegnum far­aldur sem er þess eðlis að við höfum séð ástæðu til þess að svipta fólk grund­vall­ar­mann­rétt­indum til þess að takast á við far­ald­ur­inn. Þegar þú ert á slíkum stað þá hreyfir þú þig ekki hægt,“ sagði hann í sam­tali við Morg­un­út­varpið á RÚV í morgun.

Kári greindi frá því í gær í opnu bréfi til Katrínar að frá og með deg­inum í gær myndi Íslensk erfða­­grein­ing hætta öllum sam­­skiptum við sótt­­varna­lækni og land­lækni út af SAR­S-CoV-2. Síð­­­ustu sýnin sem þau myndu afgreiða væru þau sem ber­­ast til þeirra mán­u­dag­inn 13. júlí.

Katrín tjáði sig á Facebook um málið í gær og sagði að hún von­að­ist til þess að stjórn­völd og ÍE fyndu lausn á þessu máli og getu haldið áfram því verk­efni að tryggja sem best heil­brigði þjóð­ar­inn­ar.

Vonar að hægt sé að fá ÍE til að halda áfram að skima

Karl G. Krist­ins­son, yfir­læknir sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær að haf­ist hefði verið handa við það að rífa niður veggi á deild­inni, til þess að byggja þar upp nýja og betri aðstöðu með nýjum tækjum svo að deildin yrði í stakk búin til þess að taka við landamæra­skimunum af Íslenskri erfða­grein­ingu. Stefnt er að því að þess­ari vinnu ljúki í lok ágúst.

Hann von­ast til þess að hægt verði að fá Íslenska erfða­grein­ingu til að halda áfram að skima á landa­mær­unum þangað til sýkla- og veiru­fræði­deildin er til­búin eftir breyt­ing­ar.

„Ann­ars erum við ekki í góðum málum varð­andi ferða­menn­ina. Það verður erfitt að skima alla sem eru að kom­a,“ sagði Karl, en hann sagði að deildin ann­aði því í mesta lagi að greina um 1.000 sýni á dag með núver­andi tækja­kost­i.

Þar af væru kannski 2 til 300 sjúk­linga­sýni frá Land­spít­al­anum og því væri mögu­legt greina á bil­inu 5 til 700 sýni úr ferða­mönn­um, eins og fram kom í skýrslu verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum, sem skilað var til heil­brigð­is­ráð­herra í lok maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár