Veirufræðideildin ekki í stakk búin til að taka við fyrr en í lok ágúst

Karl G. Krist­ins­son, yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, seg­ist von­ast til þess að Kára Stef­áns­syni snú­ist hugur varð­andi aðkomu Íslenskrar erfða­greinar að landamæra­skimunum. Deildin sé ekki til­búin til að taka verk­efnið að sér strax.

Hafist var handa við það í dag að rífa niður veggi á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans, til þess að byggja þar upp nýja og betri aðstöðu með nýjum tækjum svo að deildin verði í stakk búin til þess að taka við landamæra­skimunum af Íslenskri erfða­grein­ingu. Stefnt er að því að þess­ari vinnu ljúki í lok ágúst.[links]

Þetta segir Karl G. Krist­ins­son yfir­læknir deild­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann. Hann von­ast til þess að hægt verði að fá Íslenska erfða­grein­ingu til að halda áfram að skima á landa­mær­unum þangað til sýkla- og veiru­fræði­deildin er til­búin eftir breyt­ingar, en í dag lýsti Kári Stef­áns­son því yfir að ÍE myndi hætta að skima 13. júlí.

Anna í mesta lagi 1.000 sýnum á dag

„Annars erum við ekki í góðum málum varð­andi ferða­menn­ina. Það verður erfitt að skima alla sem eru að koma,“ segir Karl, en hann segir að deildin anni því í mesta lagi að greina um 1.000 sýni á dag með núver­andi tækja­kosti.

Þar af séu kannski 2-300 sjúk­linga­sýni frá Land­spít­al­anum og því væri mögu­legt greina á bil­inu 5-700 sýni úr ferða­mönnum, eins og fram kom í skýrslu verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum, sem skilað var til heil­brigð­is­ráð­herra í lok maí.

Það er því ljóst að annað hvort verður að hugsa landamæra­skimun­ar­verk­efnið upp á nýtt, eins og bæði Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafa sagt við fjöl­miðla eftir að Kári setti fram yfir­lýs­ingu sína, eða þá að sann­færa Kára og Íslenska erfða­grein­ingu um að halda áfram.

For­stjór­anum hefur jú snú­ist hugur nokkrum sinnum á síð­ustu mán­uðum, í tengslum við fyr­ir­tæk­is­ins að skimunum fyrir veirunni, fyrst inn­an­lands og svo á landa­mær­unum.

[adspot]

Heilbrigðisráðherra ekki til viðtals

Birgir Jak­obs­son, aðstoð­ar­maður Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, sagði við Kjarnann þegar leitað var eftir við­brögðum frá ráð­herra vegna yfir­lýs­ingar Íslenskrar erfða­grein­ingar að heil­brigð­is­ráð­herra hefði ekki tök á að veita við­tal í dag, hvorki um þetta mál né önnur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár