Íslensk erfðagreining mun hætta öllum samskiptum við sóttvarnalækni og landlækni

„Okkar skoðun er sú að öll fram­koma þín og heil­brigð­is­mála­ráð­herra gagn­vart ÍE í þessu máli hafi markast af virð­ing­ar­leysi fyrir okkur,“ segir í opnu bréfi Kára Stef­áns­sonar til Katrínar Jak­obs­dóttur.

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Mynd: Bára Huld Beck

Frá og með deg­inum í dag, 6. júlí, mun Íslensk erfða­grein­ing (ÍE) hætta öllum sam­skiptum við sótt­varna­lækni og land­lækni út af SARS-CoV-2. Síðustu sýnin sem þau munu afgreiða eru þau sem ber­ast til þeirra mánu­dag­inn 13. júlí.

Þetta kemur fram í opnu bréfi Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra ÍE, til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem birt­ist á Vísi í dag en hann sendi henni einnig bréf þann 1. júlí.

Íslensk erfða­grein­ing fór þar fram á að rík­is­stjórnin gæfi út yfir­lýs­ingu á næstu dögum um að það yrði strax ráð­ist í að koma á fót Far­alds­fræði­stofnun Íslands. Hún þyrfti að búa að sam­einda­líf­fræði, töl­fræði, stærð­fræði, smit­sjúk­dóma­fræði og ákveð­inni getu til þess að hreyfa verk­efni hratt og ákveðið.

[links]Í bréf­inu kom fram að ef það yrði ekki gert neydd­ist ÍE til þess að hætta allri aðkomu að skimun og öðrum þáttum sótt­varna, „vegna þess að án þess verðum við að halda áfram að van­rækja þá vinnu sem okkur er ætluð. Ef þið ákveðið að ráð­ast í að búa til Far­sótt­ar­stofnun Íslands erum við reiðu­búin til þess að aðstoða eftir megni.“

Katrín svar­aði Kára og telur hann hana ganga út frá því sem vísu að ÍE ætli að halda áfram að sinna skimun­inni án þess að hafa „nokkurn skap­aðan hlut með það að gera hvernig að henni er staðið sem heild í hugsun og verki. Og það sem meira er þér liggur ekk­ert á að setja saman apparat til þess að taka við af okkur. Þetta gengur ein­fald­lega ekki.“

Hann segir að þau hjá ÍE séu viss um að það sé eng­inn aðili í land­inu sem kunni betur til þeirra verka sem þau hafi tekið að sé í þessum far­aldri. „Þú ert hins vegar á þeirri skoðun að þú hafir verk­efna­stjóra sem gæti búið til á þessu betri skiln­ing og hjálpað til við að koma þjóð­inni áfram til fram­tíð­ar­skipu­lags. Okkar skoðun er sú að öll fram­koma þín og heil­brigð­is­mála­ráð­herra gagn­vart ÍE í þessu máli hafi markast af virð­ing­ar­leysi fyrir okkur, fram­lagi okkar og því verk­efni sem við höfum tekið að okkur í þessum far­aldri. Þetta er ein­fald­lega okkar skoðun og það má vel vera að hún sé byggð á ofmati okkar á okkur sjálfum.

Það væri svo sem ekki í fyrsta skiptið sem við ofmætum okkur. Þannig fer nefni­lega hégóm­leiki manna gjarnan með þá en ég er alls ekki að ætl­ast til þess að þú kann­ist við það. En nú er okkar þátt­töku lokið og engin ástæða til þess að erfa það sem orðið er. Við erum búin að skima eftir SARS-CoV-2 í 72.452 ein­stak­lingum meðan Land­spít­al­inn skimaði í 15.408. Við erum búin leggja okkar að mörkum og kom­inn tími til þess að við förum að sinna dag­vinnu okkar og engu öðru,“ skrifar Kári til for­sæt­is­ráð­herra í dag.

[adspot]

Hér fyrir neðan má lesa fyrra bréfið til Katrínar sem sent var þann 1. júlí:

Ágæta rík­is­stjórn,

ég vil byrja á því að hrósa ykkur fyrir að hafa haldið ykkur til hlés meðan fyrsti þáttur í Covid-19 far­aldr­inum gekk yfir og leyft fag­mönnum að taka ákvarð­anir og tala við fólkið í land­inu. Ég veit ekki um annað land í heim­inum þar sem stjórn­mála­menn báru til þess gæfu. Íslensk þjóð var ótrú­lega heppin að eiga ákkúrat þessa rík­is­stjórn á meðan þetta gekk yfir.

Það er hins þannig mál með vexti að nú höngum við á blá­þræði vegna þess að það vantar ákveðna getu í heil­brigð­is­kerfið okkar. Covid-19 er sjúk­dómur sem hefur ekki verið nema 6 mán­uði í mann­heimi þannig að öll vinna við hann, bæði sótt­varnir og með­ferð, hljóta að vera klof­vega milli vís­inda­rann­sókna og klínískrar vinnu. Það þarf stöðugt að vera að end­ur­meta ekki bara nið­ur­stöður heldur líka for­sendur. Að þessu leyti er vinnan við svona far­aldur í eðli sínu ólík venju­legri lækn­is­fræði þar sem menn eru að beita því sem er vitað í stað þess að vera stöðugt að afla áður óþekkts skiln­ings um leið og verið er að þjón­usta ein­stak­linga og sam­fé­lagið. Meðal ann­ars þess vegna er ekk­ert það afl til í heil­brigð­is­kerf­inu okkar sem getur höndlað svona far­aldur án þess að fá hjálp utan frá. Íslensk erfða­grein­ing (ÍE) er sá utan­að­kom­andi aðili sem hefur veitt þessa hjálp fram að þessu. Við höfum til dæmis séð um sýna­töku, grein­ingu á sýnum, rað­grein­ingu á veirum, úrvinnslu gagna og haft frum­kvæði að alls konar ákvarð­ana­töku. Ég ætla ekki að telja upp þær vit­leysur sem við höfum leið­rétt vegna þess að þær skipta ekki máli lengur. Við getum hins vegar ekki sinnt þessu mikið lengur vegna þess að við höfum önnur verk að vinna. Þess vegna þarf að búa til nýtt afl innan íslensks heil­brigð­is­kerfis til þess að höndla þetta, Far­alds­fræði­stofnun Íslands. Hún þarf að búa að sam­einda­líf­fræði, töl­fræði, stærð­fræði, smit­sjúk­dóma­fræði og ákveð­inni getu til þess að hreyfa verk­efni hratt og ákveðið. Það er erfitt að búa til þann kúltúr sem svona stofnun krefst vegna þess að hann gerir kröfu um lág­marks fjölda vís­inda­manna sem aga hver annan og búa jafn­framt til það stuð sem vinna við svona far­aldur krefst. Þess vegna bjóð­umst við til þess að hýsa hana til að byrja með að Sturlu­götu 8, þar sem þessi kúltúr ríkir. Við gætum líka verið vara­lið og hjálpað við að byggja stofn­un­ina upp. Þessi stofnun ætti að vera undir stjórn sótt­varn­ar­læknis, innan land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Það er ekki hægt að láta svona stofnun vera ein­angr­aða litla eyju innan Land­spít­al­ans, þar sem allt annar kúltúr ríkir. Ef ekki verður farið að byggja upp svona getu innan heil­brigð­is­kerf­is­ins strax í dag er aug­ljóst að Þjóðin lendir innan skamms í miklum vanda. ÍE fer fram á að rík­is­stjórnin gefi út yfir­lýs­ingu á næstu dögum um að það verði strax ráð­ist í að setja saman svona apparat. Ef það verður ekki gert neyð­umst við til þess að hætta allri aðkomu að skimun og öðrum þáttum sótt­varna, vegna þess að án þess verðum við að halda áfram að van­rækja þá vinnu sem okkur er ætluð. Ef þið ákveðið að ráð­ast í að búa til Far­sótt­ar­stofnun Íslands erum við reiðu­búin til þess að aðstoða eftir megni.

Ef ekk­ert svar berst innan fimm daga lesum við það sem svar og bregð­umst við sam­kvæmt því.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri ÍE.

Hér má lesa svar Katrínar sem hún sendi 4. júlí:

Kæri Kári!

Takk fyrir erindið sem þú sendir ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar þann 1. júlí sl.

Þar leggur þú til að sett verði á lagg­irnar sér­stök stofnun til að takast á við útbreiðslu smit­sjúk­dóma, svo­nefnd Far­alds­fræði­stofnun Íslands. Stofn­unin þurfi að hafa getu á sviði sam­einda­líf­fræði, töl­fræði, stærð­fræði og smit­sjúk­dóma­fræði. Þá þurfi hún að vera þannig úr garði gerð að hún geti unnið hratt og ákveðið að við­fangs­efnum sínum.

Í erindi þínu kemur fram að þú býður fram hús­næði fyrir stofn­un­ina til að byrja með og aðstoð við að byggja stofn­un­ina upp. Að þínu mati á stofn­unin að vera undir stjórn sótt­varna­læknis en innan land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Fyrst vil ég, fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, þakka þér fyrir ómet­an­legt fram­lag þitt í bar­átt­unni við covid-19 far­ald­ur­inn og ábend­ingar þínar nú um efl­ingu smit­sjúk­dóma­varna hér á landi.

Af reynslu lið­inna mán­aða er ljóst að gíf­ur­lega mik­il­vægt er að efla og þróa þekk­ingu og kunn­áttu á sviði far­alds­fræði á Íslandi. Enn­fremur þarf að leita leiða til að bæta verk­ferla og alla fram­kvæmd til að unnt sé að bregð­ast við far­aldri eins og covid-19 til fram­tíðar með öfl­ugum hætti.

Í þessu ljósi mun rík­is­stjórnin taka til skoð­unar og frek­ari úrvinnslu til­lögu þína um sér­staka stofnun á þessu sviði. Því hefur verið ákveðið að ráða verk­efna­stjóra undir yfir­stjórn sótt­varna­læknis. Hann fær það verk­efni að greina hvernig megi efla inn­viði heil­brigð­is­kerf­is­ins til að takast á við far­aldra fram­tíð­ar­innar, með hlið­sjón af til­lögu þinni og þeirri reynslu sem við höfum öðl­ast í glímunni við covid-19. Jafn­framt mun hann aðstoða sótt­varna­lækni við að ná sem bestum tökum á yfir­stand­andi far­aldri í nánu sam­starfi við þig og fyr­ir­tæki þitt.

Verk­efna­stjór­anum verður falið að skila til­lögum til rík­is­stjórn­ar­innar eins og fljótt og auðið er, þó ekki síðar en 15. sept­em­ber nk.

Besta kveðja,

Katrín

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár