Vilja takmarka búsetu „ekki-vestrænna“ í völdum hverfum Danmerkur

Danska rík­is­stjórnin vill tak­marka fjölda íbúa sem ekki hafa „vest­rænan bak­grunn“ í fátækra­hverfum þar í landi.

Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur
Mette Fred­rik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur Mynd: EPA

Íbúar í fátækra­hverfum Dan­merkur sem eru ekki með „vest­rænan bak­grunn“ mættu ekki vera fleiri en 30 pró­sent af heild­ar­fjölda íbúa hverf­anna innan tíu ára, sam­kvæmt nýrri áætlun dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Aðgerðin var til­kynnt á mið­viku­dag­inn í þess­ari viku, en einnig var fjallað um það á vef DR.

Samkvæmt inn­an­rík­is­ráðu­neyti Dan­merkur er til­gangur útspils­ins að sporna gegn upp­gangi svo­kall­aðra hlið­stæðra sam­fé­laga (d. parall­el­sam­fund) í dönsku sam­fé­lagi.

„Í allt of mörg ár höfum við lokað aug­unum fyrir þró­un­inni sem hefur verið í gangi og fyrst brugð­ist við þegar aðlög­un­ar­vand­inn var orð­inn of stór,“ segir inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, Kaare Dybvad Bek, í frétta­til­kynn­ingu. „Nú viljum við sjá til þess að við stingum ekki höfð­inu í sand­inn enn einu sinni á meðan ný hlið­stæð sam­fé­lög verða til,“ bætti hann við.

Hvað er „ekki vestrænt“?

Hagstofa Dan­merkur hefur í nokkurn tíma haldið utan um töl­fræði um fjölda „vest­rænna“ og „ekki-vest­rænna“ íbúa lands­ins. Samkvæmt henni telj­ast íbúar „vest­rænir“ ef upp­runa­land þeirra er úr Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES), Andorra, Ástralíu, Kanada, Mónakó, Nýja-Sjálandi, San Marínó, Banda­ríkj­unum og Vatík­an­inu. Því er fjöldi evr­ópskra landa, líkt og Albanía, Bosnía, Serbía og Úkraína, ekki tal­inn „vest­rænn“.

Ef inn­flytj­endur eru af fyrstu kyn­slóð miðar hag­stofan við fæð­ing­ar­land þeirra sem upp­runa­land. Ef þeir eru fæddir í Danmörku er hins vegar miðað við upp­runa­land móður þeirra.

Inn­an­rík­is­ráðu­neyti Dan­merkur hefur til­greint alls 58 hverfi í Danmerku með yfir þús­und íbúum þar sem hlut­fall „ekki-vest­rænna“ er yfir 30 pró­sent. Þeirra á meðal er Fin­land­s­par­ken í Vejle, þar sem umrætt hlut­fall nær tæpum 74 pró­sentum. Samkvæmt minn­is­blaði sem ráð­herra hefur gefið út sam­hliða til­kynn­ing­unni eru félags­leg vanda­mál algeng í þessum hverfum, en atvinnu­leysi er víða yfir 30 pró­sentum og meiri­hluti íbúa hafa ein­ungis grunn­skóla­menntun.

Bek, sem er þing­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks Dan­merkur, hefur haldið því fram að eng­inn muni verða fluttur úr hverf­unum gegn sínum vilja með útspil­inu. Hins vegar muni yfir­völd hafa auga með því hverjir flytja þangað inn „til að tryggja bland­aða sam­setn­ingu íbúa í öllum hverfum.“

Uppfært kl. 13:50: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var talað um aðgerð rík­is­stjórn­ar­innar sem frum­varp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár