„Þeirra er ævintýralega ósanngjarna lýðræðið sem við búum við“

Björn Leví segir að skipt­ing sæta milli þing­flokka sé mjög ójöfn. Auð­veldasta lausnin til að leysa vanda­málið sé að fjölga jöfn­un­ar­sætum – það sé ekki flókið né ósann­gjarnt.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, gerði skipt­ingu þing­sæta hér á landi að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Ef skipt­ing þing­sæta ætti að vera sem jöfn­ust milli núver­andi kjör­dæma eftir fólks­fjölda ætti Norð­vest­ur­kjör­dæmi að vera með fimm þing­sæti, Norð­aust­ur­kjör­dæmi sjö, Suð­ur­kjör­dæmi tíu, Suð­vest­ur­kjör­dæmi 18 og Reykja­vík­ur­kjör­dæmi með 24 eða 12 í hvoru kjör­dæm­inu,“ sagði Björn Leví.

Telur hann að þessi skipt­ing sé ekki sú eina sem sé ójöfn. „Skipting sæta milli þing­flokka er einnig mjög ójöfn. Miðað við hlut­falls­legt fylgi flokka fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tvö auka­þing­sæti, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fjögur, Sam­fylk­ingin eitt og Björt fram­tíð eitt auka­þing­sæti í kosn­ing­unum 2013. Í kosn­ingum 2016 fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fimm auka þing­sæti, Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð tvö auka­þing­sæti, Píratar tvö og Viðreisn eitt. Málin flækj­ast hins vegar enn meira þegar hinn svo­kall­aði 5 pró­sent þrösk­uldur bæt­ist við. Þá skekk­ist skipt­ingin enn meira og nógu slæm er hún þó.“

Afnema þurfi 5% regluna – og helst fjölga þingmönnum

Björn Leví sagði að auð­veldasta lausnin á þessu vanda­máli væri að fjölga jöfn­un­ar­sætum. Til útskýr­ingar eru 9 af 63 þing­sætum svokölluð jöfn­un­ar­þing­sæti en 54 eru kjör­dæm­is­þing­sæti. Jöfn­un­ar­sæti taka mið af úrslitum á lands­vísu. Þeim er ætlað að leið­rétta mis­ræmi á milli kjör­dæma, þannig að eitt atkvæði sé ekki meira virði í einu kjör­dæmi en öðru.

„Það þarf ekki að breyta stjórn­ar­skránni til þess og ætti ekki að vera ævin­týra­leg, óvænt upp­á­koma, eins og var haft eftir for­seta þings­ins í fréttum RÚV í gær. Það er nákvæm­lega ekk­ert flókið eða ósann­gjarnt við að fjölga jöfn­un­ar­þing­mönnum, mjög ein­falt þegar allt kemur til alls,“ sagði þing­mað­ur­inn.

[adspot]

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði í sam­tali við RÚV í gær þegar hann var spurður hvort Alþingi gæti í raun breytt ákvæð­unum um jöfn­un­ar­sætin fyrir þing­lok að maður ætti aldrei að segja aldrei „en það væri ævin­týra­leg óvænt upp­á­koma ef að stjórn­mála­flokk­unum hér tæk­ist á örfáum dögum í ann­ríki þing­lokanna að taka það mál upp og ná saman um það. Þetta er auð­vitað eitt­hvað sem menn þurfa að vanda. Þetta er flókið púslu­spil ef þú ferð að hreyfa til þing­sætum. Mér seg­ist svo hugur að það sé lík­legra að næstu stóru skrefin í þessu verði tekin í sam­hengi við end­ur­skoðun sjálfrar stjórn­ar­skrár­innar. Það er að segja að þá taki menn kosn­inga­á­kvæðin sem eru í stjórn­ar­skránni, kosn­inga­lögin og kjör­dæma­skip­an­ina fyrir sem við­fangs­efni og reyni að sjá fyrir sér ein­hverja fram­tíð­ar­mynd í því. Ég held að það sé nauð­syn­legt. Ég held að þetta snú­ist ekki bara um það að færa til ein­hver sæti innan núver­andi kjör­dæma­skip­unar. Það verður kannski nið­ur­staðan en ég myndi mæla með því að menn tækju málið fyrir í heild sinni og veltu þá jafn­framt fyrir sér hvort að kjör­dæma­skip­anin sjálf eigi að vera eins og hún er.“

Björn Leví sagði á þingi í dag að aug­ljós­lega þyrfti þó að laga fleira til að gera kosn­inga­kerfi á Íslandi sann­gjarnt. „Til að hlut­fall atkvæða til flokka end­ur­speglist í hlut­falli þing­sæta þarf að afnema 5 pró­sent regl­una og helst að fjölga þing­mönnum. Ágætt fyrsta skref væri þó ef ráð­herrar myndu stíga til hliðar sem þing­menn. Flokk­arnir sem ráða og hafa ráðið hafa hins vegar ekki viljað breyta. Þeirra er ævin­týra­lega ósann­gjarna lýð­ræðið sem við búum við, lýð­ræði sem getur búið til meiri hluta úr minni hluta atkvæða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár