Aðgengi Íslands að bóluefni Pfizer tryggt

Íslandi er tryggður sami aðgangur að bólu­efnum sem Evr­ópu­sam­bandið semur um og aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins. Sam­bandið samdi fyrr í dag um kaup á 200 milljón skömmtum af bólu­efni frá Pfizer.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins und­ir­rit­aði fyrr í dag samn­ing við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer um kaup á 200 millj­ónum skammta af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins við COVID-19 með mögu­leika á 100 milljón skömmtum til við­bótar. Íslandi er tryggður sami aðgangur að bólu­efnum sem Evr­ópu­sam­bandið semur um og aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins sem birt var í dag.

Kjarn­inn hefur fjallað um jákvæðar fréttir frá Pfizer og BioNTech, en á mánu­dag lýstu fyr­ir­tækin því yfir að 90 pró­sent þeirra sem fengið hafi bólu­efnið hafi myndað ónæmi gegn kór­ónu­veirunni, sem þykir eins góður árangur og von­ast er hægt af fyrstu kyn­slóð bólu­efn­is.

[adspot]ESB hefur skrifað undir kaup­samn­ing við fjölda ann­arra bólu­efna­fram­leið­enda, þar á meðal samn­ing um 400 milljón skammta frá sænsk-breska lyfja­fyr­ir­tæk­inu Astr­aZeneca. Í fyrri samn­ingum hefur sam­bandið lýst því yfir að bólu­efn­unum verði dreift á öll aðild­ar­ríki þess mt.t. mann­fjölda, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur einnig til­kynnt að aðild­ar­ríki EES fái sama aðgang að þeim.

Þar sem heild­ar­mann­fjöldi EES-­svæð­is­ins nemur rúmum 460 millj­ónum manna og hver ein­stak­lingur þarf tvo skammta af bólu­efn­inu má búast við að allt að þriðji hver íbúi svæð­is­ins verði bólu­sett­ur. Af þeim væru 120 þús­und Íslend­ing­ar.

Slíkur fjöldi væri þó ekki nægur til að mynda hjarð­ó­næmi gegn veirunni hér á landi, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur áður gefið að út að 550 þús­und skammta þyrfti til að það mynd­ist. Bólu­efnið frá Pfizer og BioNTech dugir því ein­ungis fyrir tæpum helm­ingi af því.

Pfizer og BioNTech gætu fengið neyð­ar­leyfi fyrir bólu­efni sínu frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun á fyrsta fjórð­ungi næsta árs, að ákveðnum skil­yrðum upp­fyllt­um. Rík­is­stjórnir hvers lands munu svo for­gangs­raða hverjir fá efn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár