Bóluefni Pfizer gæti verið upphafið að endalokunum

Bjart­sýni ríkir eftir að lyfja­fyr­ir­tækin Pfizer og BioNTech greindu frá nið­ur­stöðum á próf­unum á bólu­efni gegn COVID-19 í gær. En mörgum spurn­ingum er ósvarað.

Aldrei áður í mannkynssögunni hefur tekið jafn skamman tíma að þróa bóluefni.
Aldrei áður í mann­kyns­sög­unni hefur tekið jafn skamman tíma að þróa bólu­efni. Mynd: EPA

Baráttan gegn kór­ónu­veirunni SARS-CoV-2 hefur nú staðið í tæpt ár. Ýmislegt hefur áunn­ist á þeim tíma, s.s. skimanir og lyfja­með­ferðir en bjarg­vætt­ur­inn út úr far­aldr­inum, bólu­efni, hefur enn sem komið er verið rétt utan seil­ingar.

En nú eru blikur á lofti. Tvö lyfja­fyr­ir­tæki, Pfizer og BioNTech, hafa unnið í sam­ein­ingu að þróun bólu­efnis sem nú þykir sannað að muni gefa góða raun. Níutíu pró­sent þeirra sem fengið hafa bólu­efnið hafa myndað ónæmi sem þykir eins góður árangur og hægt er að von­ast til af „fyrstu kyn­slóð“ nýs bólu­efnis.

Aldrei áður í mann­kyns­sög­unni hefur tekið jafn skamman tíma að þróa bólu­efni. Tugir fyr­ir­tækja víða um heim eru að þróa slíka vörn gegn veirunni en nokkur þeirra skara framúr og lofa góðu. Fleiri en eitt bólu­efni þarf lík­leg­ast til og því eru þetta góðar fréttir sem margir vilja meina að séu upp­hafið af enda­lokum far­ald­urs­ins sem sett hefur heims­byggð­ina á hlið­ina á und­an­förnum mán­uðum.

Um 43 þús­und manns hafa tekið þátt í til­raunum Pfizer og BioNTech. Hópurinn sam­anstendur af alls konar fólki af ýmsum kyn­þáttum.

Það er þó of snemmt að fagna. Ýmsum spurn­ingum er enn ósvarað og til­raunir lyfja­fyr­ir­tækj­anna halda nú áfram.

[links]Ein spurn­ingin er sú hversu vel bólu­efnið mun gagn­ast eldra fólki, þeim hópi fólks sem er hvað lík­leg­astur til að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum. Einnig á eftir að koma í ljós hvort að sá sem fengið hefur bólu­efnið geti engu að síður smitað aðra, það er að segja, þó að hann sýni ekki ein­kenni COVID-19. Þá er enn ekki full­víst hversu löng virkni efn­is­ins er.

Það er af þessum sökum m.a. sem mik­il­vægt er að fleiri en eitt bólu­efni verði aðgengi­legt. Eitt þeirra sem er í þróun við Oxford-háskóla, hefur til að mynda kallað fram gott ónæm­is­svar hjá eldra fólki.

Næstu skref Pfizer og BioNTech er að safna frek­ari gögnum úr rann­sóknum sínum. Að því loknu munu fyr­ir­tækin fá sér­stakt neyð­ar­leyfi, sem Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin hefur heim­ilað að gefin verði út að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum, svo koma megi bólu­efn­inu í notkun. Það mun þó ekki ger­ast fyrr en í fyrsta lagi á fyrsta árs­fjórð­ungi næsta árs. Það er svo í höndum opin­berra aðila innan hvers lands að for­gangs­raða hverjir fá efnið, sem verður fyrst í stað af skornum skammti. Vonir standa þó til þess að gangi allt að óskum verði hægt að fram­leiða 1,3 millj­arða skammta af bólu­efni Pfizer á næsta ári.

Um stærstu bólu­setn­ing­ar­her­ferð mann­kyns verður að ræða og þegar hefur verið ákveðið stofn­anir á borð við UNICEF, sem hefur mikla þekk­ingu og reynslu á dreif­ingu bólu­efna í fátækum ríkjum heims, komi að því verk­efni.

Nýstárleg aðferð

Bóluefni Pfizer er sögu­legt í ýmsu öðru til­liti en hversu hratt hefur tek­ist að þróa það. Aðferð­inni sem beitt er, mRNA, er nýstár­leg og hefur hingað til ekki verið notuð við gerð bólu­efna fyrir mann­eskjur.

Alls eru ell­efu bólu­efni núna komin langt í þróun á heims­vísu, sam­kvæmt umfjöllun New York Times um þennan áfanga og nokkur þeirra inni­halda, eins og bólu­efni Pfizer og BioNTech, gena­upp­lýs­ingar (mRNA) fyrir svokölluð gadda­prótein sem eru á yfir­borði kór­ónu­veirunnar, SARS-CoV-2. Gefa þessar nið­ur­stöður því vonir um að önnur fyr­ir­tæki sem eru að beita sömu nálgun nái líka góðum árangri með sín bólu­efni.

Í umfjöllun á vef Lyfja­stofn­unar um til­raunir Pfizer og BioNTech kemur fram hvernig slík bólu­efni verka, en þar segir að þegar bólu­efnið hafi verið gefið byrji frumur lík­am­ans að fram­leiða sín eigin gadda­prótein. Ónæm­is­kerfið lítur á þau sem fram­andi fyr­ir­bæri og tekur til varna með því að fram­leiða mótefni og T-frumur gegn veirunni.

Sú vörn mun síðar koma að gagni til að verja við­kom­andi ein­stak­ling gegn sýk­ingu af völdum SARS-CoV-2 kór­ónu­veirunnar, þar sem ónæm­is­kerfið kemur til með að þekkja veiruna og ráð­ast gegn henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár