Fullyrða að bóluefni sitt gegn COVID-19 hafi meira en 90 prósent virkni

Hluta­bréfa­mark­aðir víða um heim hafa brugð­ist með jákvæðum hætti við stórum tíð­indum af þróun bólu­efnis Pfizer og BioNTech, sem hefur verið prófað á yfir 43.500 manns og er sagt hafa meira en 90 pró­sent virkni.

Höfuðstöðvar þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech í Mainz.
Höf­uð­stöðvar þýska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins BioNTech í Mainz. Mynd: EPA

„Þetta er frá­bær dagur fyrir vís­indin og mann­kynið,“ er haft eftir for­stjóra lyfj­aris­ans Pfizer í frétta­til­kynn­ingu í dag, vegna nýrra tíð­inda af bólu­efni gegn COVID-19 sem fyr­ir­tækið er að þróa ásamt þýska lyfja­fyr­ir­tæk­inu BioNTech.

Bólu­efnið er sagt fram­kalla vörn gegn veirunni í yfir 90 pró­sent til­fella, hjá þeim ein­stak­lingum sem hafa tekið þátt í klínískum rann­sóknum fyr­ir­tækj­anna und­an­farna mán­uði.

Bólu­efnið er á þriðja stigi öryggis­próf­ana og hafa nið­ur­stöð­urnar úr til­raun­unum, sem farið hafa fram í Banda­ríkj­unum, Þýska­landi, Brasilíu, Argent­ínu, Suður-Afríku og Tyrk­landi, verið framar vonum.

Tíðindin hafa leitt til þess að hluta­bréfa­mark­aðir víða um heim hafa tekið nokkuð við sér í morgun, sam­kvæmt frétt Reuters.

Virkni umfram væntingar

Samkvæmt því sem fram kemur fram í til­kynn­ingu fyr­ir­tækj­anna hefur bólu­efnið verið prófað á rúm­lega 43.500 manns í þessum sex löndum án þess að nokkrar alvar­legar auka­verk­anir hafi látið á sér kræla.

Virkni þess er sögð framar vænt­ingum, en bólu­efnið er gefið í tveimur skömmtum með þriggja vikna milli­bili og sýna nið­ur­stöð­urnar fram á að sjö dögum eftir annan bólu­efn­is­skammt­inn, 28 dögum eftir þann fyrsta, hafa meira en 90 pró­sent þátt­tak­enda sýnt fram á ónæm­is­svar gegn kór­ónu­veirunni.

Fyr­ir­tækin tvö stefna að því að sækja um leyfi til banda­rískra yfir­valda um að fá að hefja dreif­ingu bólu­efn­is­ins í þriðju viku nóv­em­ber­mán­aðar.

Þau búast við því að fram­leiða 50 milljón skammta af bólu­efn­inu fyrir lok þessa árs og allt að 1,3 millj­arða skammta á næsta ári, ef allt gengur eftir.

Býr líkamann undir að verjast sýkingu

Alls eru ell­efu bólu­efni núna komin langt í þróun á heims­vísu, sam­kvæmt umfjöllun New York Times um þennan áfanga.

Bóluefni Pfizer og BioNTech er eitt af nokkrum sem eru í þróun sem inni­halda gena­upp­lýs­ingar (mRNA) fyrir svokölluð gadda­prótein sem eru á yfir­borði kór­ónu­veirunnar, SARS-CoV-2. Gefa þessar nið­ur­stöður því vonir um að önnur fyr­ir­tæki sem eru að beita sömu nálgun nái líka góðum árangri með sín bólu­efni.

Í umfjöllun á vef Lyfja­stofn­unar um til­raunir Pfizer og BioNTech kemur fram hvernig slík bólu­efni verka, en þar segir að þegar bólu­efnið hafi verið gefið byrji frumur lík­am­ans að fram­leiða sín eigin gadda­prótein. Ónæm­is­kerfið lítur á þau sem fram­andi fyr­ir­bæri og tekur til varna með því að fram­leiða mótefni og T-frumur gegn veirunni.

Sú vörn mun síðar koma að gagni til að verja við­kom­andi ein­stak­ling gegn sýk­ingu af völdum SARS-CoV-2 kór­óna­veirunnar, þar sem ónæm­is­kerfið kemur til með að þekkja veiruna og ráð­ast gegn henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár