Bóluefnisbjartsýni grípur fjármálamarkaði, vísindafólk og almenning

Upp­örvandi fréttir af bólu­efni Pfizer og BioNTech hafa haft veru­leg áhrif á gang mála á fjár­mála­mörk­uðum heims­ins í dag. Tíðindin urðu til þess að margir fyllt­ust bjart­sýni um að eðli­legra líf blasi við á næsta ári.

Tilkynning lyfjarisans Pfizer og þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech um góðan árangur í bóluefnistilraunum vakti upp miklar væntingar í dag.
Til­kynn­ing lyfj­aris­ans Pfizer og þýska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins BioNTech um góðan árangur í bólu­efn­istil­raunum vakti upp miklar vænt­ingar í dag. Mynd: EPA

Jákvæðar fréttir af þróun bólu­efnis Pfizer og BioNTech gegn COVID-19 fóru sem storm­sveipur um heim­inn fyrr í dag og glæddu vonir um að brátt færi að sjá til sólar í glímunni við sjúk­dóm­inn og útbreiðslu veirunnar sem honum veldur, SARS-CoV-2.[links]

Að minnsta kosti 50 millj­ónir manna hafa smit­ast af veirunni á heims­vísu frá því í upp­hafi þessa árs og hefur vöxtur far­ald­urs­ins sjaldan verið jafn hraður og um þessar mundir, ekki síst í Evrópu og í Banda­ríkj­unum. Alls hafa yfir 1.250.000 manns lát­ist vegna veirunnar til þessa og sótt­varn­ar­að­gerðir haft lam­andi áhrif á mann­líf og efna­hags­líf víða.

Flugfélög upp, fjarvinnulausnir niður

Fjár­festar um heim allan tóku tíð­ind­unum fagn­andi og mikil bjart­sýni virt­ist grípa um sig í kaup­höllum.

Hér á Íslandi skaust verð á hluta­bréfum í Icelandair Group upp um tæp­lega fjórð­ung í um 260 milljón króna við­skiptum og fór gengi bréfa í félag­inu upp fyrir útboðs­gengið 1 í fyrsta sinn í rúman mánuð. Einnig hækk­uðu fast­eigna­fé­lögin Reitir, Reginn og Eik umtals­vert, Reitir mest, eða um tæp 13 pró­sent í 386 milljón króna við­skiptum.

[adspot]

Flug­fé­lög og önnur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa orðið sér­stak­lega illa fyrir barð­inu á heims­far­aldr­inum og það voru þau sem skut­ust mest upp á við í kaup­höllum og leiddu hækk­anir dags­ins víða. Olíuverð hækk­aði líka nokkuð kröft­ug­lega og síð­degis í dag kost­aði tunna af Brent-hrá­olíu tæpa 43 doll­ara, röskum 8 pró­sentum meira en í gær.

Að sama skapi varð nokkuð skörp lækkun á hluta­bréfa­verði ýmissa fyr­ir­tækja sem bein­línis hafa notið góðs af far­aldr­inum. Til dæmis lækk­aði hluta­bréfa­verð fjar­funda­þjón­ust­unnar Zoom skarpt í kaup­höll­inni í New York og ýmis fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í heim­send­ingum á mat­vörum og öðru slíku féllu í verði.

Í umfjöllun Financial Times um stöðu mark­aða frá því fyrr í dag segir að fjár­festar hafi losað sig við rík­is­skulda­bréf í tölu­verðum mæli. Margir þeirra virð­ist nú veðja á að að rík­is­sjóðir þurfi ekki að beita sér með jafn miklum þunga í stuðn­ings- og við­spyrnu­að­gerðum vegna far­ald­urs­ins og útlit hafi verið fyrir.

Uppörvandi tíðindi en spurningum ósvarað

Þessi miklu áhrif jákvæðra tíð­inda af bólu­efn­is­þró­un­inni á heims­mark­aði gefa til kynna að miklar vænt­ingar séu bundnar við það að bólu­efni verði töfra­lausn sem geti fært til­ver­una í eðli­legra horf til­tölu­lega fljótt. Ýmsir vís­inda­menn hafa tekið til­kynn­ingu Pfizer og BioNTech fagn­andi.

Chris Witty, helsti ráð­gjafi breskra stjórn­valda í glímunni við COVID-19, sagði til dæmis á Twitter að tíð­indin væru upp­örvandi og gæfu góð fyr­ir­heit fyrir árið 2021, en lagði þó áherslu á að áfram þyrfti að reyna að bæla niður veiruna.

Tedros A. Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóð­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) sagði sömu­leiðis á Twitter að tíð­indin væru jákvæð og að heim­ur­inn væri að sjá for­dæma­lausa fram­þróun og sam­starf í vís­indum til þess að binda endi á heims­far­ald­ur­inn.

Breska rík­is­út­varpið BBC hefur eftir Peter Horby, pró­fessor við Oxford-háskóla, að tíð­indin frá Pfizer hafi látið hann brosa út að eyrum. Hann sagði þau marka þátta­skil og að hann finndi fyrir létti, en hann sagði þó ljóst að það væri enn langt þar til að bólu­efni myndu byrja að hafa veru­leg áhrif.

Í umfjöllun um bólu­efnið á vef breska blaðs­ins Guardian segir þó að ýmsum spurn­ingum sé ósvarað, meðal ann­ars því hversu lengi bólu­setn­ingin vari, hvort hún verji þá sem hafa áður smit­ast af veirunni og hvort bólu­efnið komi alfarið í veg fyrir að fólk geti orðið smit­ast og smitað aðra eða dragi ein­fald­lega úr alvar­leika ein­kenna þeirra sem sýkj­ast.

Einnig segir þar og víðar að bólu­efni Pfizer og BioNTech þurfi að geyma við við mikið froset, eða um -80°C. Því gæti orðið erfitt að útfæra skjóta og skil­virka dreif­ingu þess.

Fleiri fyrirtæki skila af sér gögnum á næstunni

Samkvæmt sam­an­tekt Reuters um stöðu bólu­efna­rann­sókna má búast við því að fleiri lyfja­fyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum sem komin eru langt í þró­un­ar­ferl­inu og inn í klínískar rann­sóknir skili gögnum um rann­sókn­irnar fyrir ára­mót.

Þeirra á meðal eru banda­ríska fyr­ir­tækið Moderna, hið breska AstraZeneca við Oxford-háskóla og lyfj­aris­inn Johnson & Johnson, en alls eru 11 bólu­efni komin á þriðja stig klínískra rann­sókna.

Fjölmörg til við­bótar eru í þróun, en hátt á annað hund­rað teymi vís­inda­manna um heim allan eru í kapp­hlaupi um að þróa bólu­efni gegn veirunni, sem allt hefur hverfst um und­an­farna 10 mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár