Þyrfti tvöfalt fleiri skammta til að ná hjarðónæmi

Svíar tryggðu Íslend­ingum aðgang að 317 þús­und skömmtum af Oxford-bólu­efn­inu gegn COVID-19 í síð­ustu viku, en þörf er á tvö­falt fleiri skömmtum svo að þjóðin nái hjarð­ó­næmi.

Nýr samn­ingur Evr­ópu­sam­bands­ins við bresk-sænska lyfja­fram­leið­and­ann AstraZeneca ætti að tryggja bólu­setn­ingu fyrir um 159 þús­und Íslend­inga gegn COVID-19.

Tvöfalt fleiri skammta af bólu­efni þyrfti þó til þess að tryggja hjarð­ó­næmi innan lands­ins ef bólu­setja þarf hvern ein­stak­ling tvisvar, en von­ast er til þess að samn­ingar ESB við önnur lyfja­fyr­ir­tæki tryggi nægt fram­boð á næstu mán­uðum.

Tilkynnt var um samn­ing ESB við AstraZeneca síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, en sam­kvæmt honum mun sam­bandið geta keypt 400 millj­ónir skammta af bólu­efn­inu, sem er betur þekkt sem Oxford-bólu­efnið, þegar það er til­búið.

Kjarninn hefur áður fjallað um Oxford-bólu­efnið, en það hefur þótt lík­leg­ast til að verða hið fyrsta til að gagn­ast í bar­átt­unni gegn veirunni á heims­vísu. Bólu­efnið byggir á veiru­teg­und frá simpönsum, en síð­asta til­rauna­stig þess stendur nú yfir í Englandi, Indlandi og Brasilíu þar sem verið er að prófa það á þús­undir manna.

[links]AstraZeneca hefur til­kynnt að fyrstu skammtar bólu­efn­is­ins, sem hægt væri að nota í neyð­ar­til­vikum, gætu kom­ist í dreif­ingu í októ­ber ef allt gengur að óskum.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu Evr­ópu­sam­bands­ins verður skömmtum af bólu­efn­inu dreift jafnt um öll aðild­ar­ríki þess, með til­liti til mann­fjölda hvers ríkis. Heil­brigð­is­ráðu­neytið til­kynnti svo síð­ast­lið­inn föstu­dag að EES-ríki muni einnig fá hlut­falls­lega sama magn bólu­efna frá Evr­ópu­sam­band­inu, með milli­göngu Sví­þjóðar. [adspot]

Nóg fyrir 159 þúsund Íslendinga

Í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að 550 þús­und skammta af bólu­efni þyrfti hér­lendis til þess að mynda hjarð­ó­næmi gegn veirunni, ef gert er ráð fyrir að hver ein­stak­lingur verði bólu­settur tvisvar.

Þar sem heild­ar­mann­fjöldi á EES-svæð­inu nemur rúmum 460 millj­ónum tryggir samn­ing­ur­inn við AstraZeneca þó bara í mesta lagi 0,8 skömmtum á hvern íbúa, eða um 317 þús­und skömmtum hér á landi. Þetta dygði fyrir um 159 þús­und Íslend­inga, en tæp­lega tvö­falt fleiri skammta þyrfti svo að þjóðin nái hjarð­ó­næmi.

Vonir bundnar við önnur bóluefni

Ekki eru þó ein­ungis bundnar vonir við Oxford-bólu­efnið, en ESB greindi líka frá því að samn­inga­við­ræður hefðu haf­ist við fjóra aðra lyfja­fram­leið­endur um kaup á bólu­efnum þeirra gegn kór­ónu­veirunni á næstu mán­uðum. Þeirra á meðal er lyfja­fyr­ir­tækið Sanofi-GSK, en Evr­ópu­sam­bandið von­ast til þess að geta keypt um 300 millj­ónir skammta frá því.

Sam­bandið reynir einnig að ná kaup­rétti á 225 millj­ónum skammta af bólu­efni frá Curevac, 200 millj­ónum skammta frá Johnson & Johnson, auk 80 millj­óna skammta frá fyr­ir­tæk­inu Moderna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár