Tíu staðreyndir um bóluefni gegn COVID-19

Hvenær má eiga von á bólu­efni gegn COVID-19? Hvernig verður það búið til og hverjir munu fá það fyrstir? Heims­byggðin bíður með kross­lagða fingur eftir bólu­efni gegn sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

1.

Í dag er ekk­ert bólu­efni á mark­aði í heim­inum sem kemur í veg fyrir að fólk sýk­ist af COVID-19. En fjöl­margar rann­sóknir standa nú yfir.

Kór­ónu­veirur til­heyra „fjöl­skyldu“ veira sem geta valdið ein­kennum allt frá kvefi og upp í lífs­hættu­leg veik­indi. Veiran sem veldur COVID-19 er skyld þeirri sem olli SARS við upp­haf ald­ar­innar. Þess vegna var hún nefnd SARS-CoV-2 og þess vegna eru vís­indin ekki alveg á byrj­un­ar­reit þegar kemur að þróun bólu­efnis. SARS-veiran er enn til á rann­sókn­ar­stofum en svo vel tókst að ein­angra hana að engin til­felli smits hafa komið upp í fleiri ár.

Í kór­ónu­veiru-fjöl­skyld­unni eru hund­ruð veira en aðeins sjö þeirra sýkja menn. Auk veirunnar sem veldur COVID-19 til­heyra fjórar „kvef­kór­ónu­veirur“ henni og síðan tvær sem valda alvar­legum sjúk­dómi í mönnum (SARS og MERS). Sýking af völdum ann­arra veira úr fjöl­skyld­unni veitir ekki ónæmi fyrir þeirri nýju sem veldur COVID-19. Enn er ekk­ert bólu­efni á mark­aði gegn sýk­ingum kór­ónu­veira.

2.

En af hverju bíða allir eftir bólu­efni við COVID-19? Reynslan er farin að sýna að tak­mark­anir á sam­komum og ferða­lögum og almennar smit­varnir hafa ekki dugað til að útrýma far­sótt­inni. Nýja kór­ónu­veiran smit­ast mjög auð­veld­lega og ein­kenna­laust fólk getur verið smit­andi sem gerir það enn erf­ið­ara að koma böndum á útbreiðsl­una. Bóluefni er því lík­lega sú leið sem helst mun gagn­ast í bar­átt­unni gegn sjúk­dómnum og útbreiðslu veirunnar sem honum veldur.

3.

Yfir­leitt tekur þróun bólu­efnis mörg ár og jafn­vel ára­tugi og til­raunir skila ekki alltaf árangri. Til dæmis hefur enn ekki tek­ist að búa til bólu­efni gegni HIV-veirunni þótt ára­tugir séu síðan hún greind­ist fyrst í mönnum. Nú reyna vís­inda­menn að finna bólu­efni gegn nýjum sjúk­dómi á met­tíma.

Kór­ónu­veirur draga nafn sitt af því að yfir­borðs­prótín veir­anna minna á kór­ónu eða sól­krónu, sem er ysti hjúpur sól­ar­innar. Það eru þessi prótein sem festa sig á frumur manns­lík­am­ans og þróun bólu­efnis miðar m.a. að því að ráð­ast gegn þessum prótínum og koma þannig í veg fyrir að veiran nái að festa sig við frumur okkar og fjölga sér.

4.

Nokkur ljón hafa orðið í veg­inum við þróun bólu­efna gegn öðrum kór­ónu­veirum. Nokkrar til­raunir voru gerðar á dýrum með bólu­efni sem verið var að þróa gegn SARS. Flest þeirra bættu lífslíkur dýr­anna en komu ekki í veg fyrir að þau sýkt­ust. Sum ollu auka­verk­unum á borð við lungna­skemmdir. Annað vafa­at­riði er hversu lengi bólu­efni mun veita okkur vörn gegn end­ur­tek­inni sýk­ingu.

5.

Bóluefni eru notuð til ónæm­is­að­gerða. Þau eru ýmist unnin úr veikluðum veirum eða bakt­er­íum eða inni­halda efni sem finn­ast inni í þessum sýklum. Mótefnin sjálf valda litlum ein­kennum en vekja upp vörn í lík­am­anum sem kemur í veg fyrir eða dregur úr líkum á að fólk veik­ist af sjúk­dóm­inum sem bólu­sett er gegn. Líkt og í rann­sóknum á öllum bólu­efnum er nauð­syn­legt að gera ítar­legar til­raunir á bólu­efni gegn COVID-19 áður en það fer á markað.

6.

Nú er verið að nota nokkrar aðferðir við þróun bólu­efnis gegn COVID-19. Við gerð hefð­bund­inna bólu­efna er not­ast við veikl­aða veiru og er ætlað að kynna ónæm­is­kerfi lík­am­ans fyrir við­kom­andi sýkli til að verja lík­amann gegn smiti í fram­tíð­inni. Þessi aðferð hefur m.a. verið notuð við gerð bólu­efna gegn misl­ingum, hlaupa­bólu og bólu­sótt. Aðferða­fræðin er þekkt en sagan segir okkur að slík bólu­efni geta verið mjög lengi í þróun.

Önnur aðferð er að nota dauða veiru (óvirka) sem veldur þeim sjúk­dómi sem bólu­efnið á að gagn­ast gegn. Bóluefni sem þróuð hafa verið með þessum hætti valda þá ekki sýk­ingu heldur aðeins ónæm­is­við­bragði. Dæmi um bólu­efni þar sem þess­ari aðferð er beitt eru þau sem notuð eru gegn hunda­æði, lifr­ar­bólgu A og inflú­ensu.

Þessi bólu­efni eru þess eðlis að þau veita oft ekki full­komna vörn og að auki getur þurft að end­ur­taka bólu­setn­ingu reglu­lega til að við­halda vörn­inni.

Svo er það þriðja leiðin: Við þróun bólu­efnis gegn COVID-19 er m.a. verið að reyna að nota upp­skrift­ina úr erfða­efni (DNA) veirunnar í stað þess að nota veikl­aða veiru að hluta eða í heild. Það er ekki endi­lega hægt að segja að um nýstár­lega aðferð sé að ræða því reynt hefur verið að búa til bólu­efni með sama hætti í mörg ár. Hins vegar hefur, enn sem komið er, ekk­ert bólu­efni byggt á þess­ari aðferð farið í almenna notkun. Kost­ur­inn við þessa leið er að hún gæti flýtt þró­un­ar­ferl­inu tals­vert.

7.

Ástæðan fyrir því að það tekur svona langan tíma að þróa bólu­efni er vegna þess að þau þarf að prófa í þaula áður en almenn notkun hefst. Þau eru prófuð á dýrum, svo litlum hópum fólks - aftur og aftur. Þá er fram­leiðslu­ferlið einnig tíma­frekt.

Vís­inda­menn og yfir­völd freista þess nú að hraða þessu ferli en gæta áfram þeirrar var­úðar sem er nauð­syn­leg. En engu að síður mun það alltaf taka að minnsta kosti 12-18 mán­uði að þróa.

8.

Tugir bólu­efna gegn COVID-19 eru í þróun. Þrjú þeirra eru þegar komin í þriðja fasa til­rauna; það sem verið er að þróa við Oxford-háskóla, það sem banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Moderna er að prófa sem og bólu­efni sem fengið hefur nafnið CoronaVac og er í þróun í Kína. Öll þrjú bólu­efnin eru sögð hafa vakið gott ónæm­is­við­bragð á fyrri stigum til­rauna.

Í þessum þriðja fasa er efnið prófað á stórum hópum fólks og þá ættu mögu­legar auka­verk­anir að koma fram. Auka­verk­an­irnar geta verið litlar en þær geta líka verið alvar­legar hjá litlum hópi fólks sem er bólu­sett. Sér­fræð­ingur við bólu­efna­mið­stöð John Hopkins-háskóla orðar þetta svona í við­tali við Tel­egraph: „Þrátt fyrir þeirra gríð­ar­lega fram­lag til bættrar heilsu þá fylgir öllum bólu­efnum ein­hver áhætta.“ Það sé svo sam­fé­lags­ins og ein­stak­ling­anna að vega og meta þá áhættu.

Þriðji fasi klínískra rann­sókna á Moderna-bólu­efn­inu hófst í gær. Um þrjá­tíu þús­und sjálf­boða­liðar í Banda­ríkj­unum munu á næstu dögum fá annað hvort bólu­efnið eða lyf­leysu.

9.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd og lyfja­fram­leið­endur víða um heim, í sam­starfi við Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina (WHO), ætla í sam­ein­ingu að vinna að rann­sóknum, fram­leiðslu og dreif­ingu á bólu­efni gegn COVID-19. Verk­efnið er kallað COVAX og Íslend­ingar eru þátt­tak­endur í því. Loka­mark­mið þess er að fyrir lok árs­ins 2021 verði búið að fram­leiða tvo millj­arða skammta af öruggu og áhrifa­ríku bólu­efni. Því verði dreift jafnt meðal allra þátt­töku­þjóða miðað við íbúa­fjölda og þeir fyrstu sem eiga að fá það eru heil­brigð­is­starfs­menn.

10.

Margir sér­fræð­ingar spá því að bólu­efni gegn COVID-19 verði til­búið um mitt næsta ár. Sumir eru djarfari í spá­dómum sínum og telja það verða aðgengi­legt strax í byrjun þess árs og þá aðeins um ári eftir að veiran upp­götv­að­ist. Enn aðrir vara við of mik­illi bjart­sýni og vilja bíða og sjá hvernig loka­stig klínískra rann­sókna tekst til.

Sam­an­tektin er byggð á svörum á Vís­inda­vefnum (hér og hér), sam­an­tekt Hvatans, stað­reynda­vakt John Hopkins, Mayo Clinic, WHO og fleiri sem og fréttum fjöl­miðla, m.a. frá Time og Tel­egraph.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár