Kolbeinn vill leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

Tveir sitj­andi þing­menn Vinstri grænna hafa til­kynnt um að þeir sæk­ist eftir odd­vita­sæti í lands­byggð­ar­kjör­dæmum. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir vill áfram leiða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé ætlar að færa sig í Suð­ur­kjör­dæmi.

Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé. Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna í Reykja­vík, hefur ákveðið að sækj­ast eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem fram mun fara for­val líkt og hjá flokknum í öllum öðrum kjör­dæmum.

Í til­kynn­ingu segir Kolbeinn að ættir sínar liggi í upp­sveitum Árnes­sýslu og að hann hafi eytt ófáum stundum í Þjórs­ár­dal þar sem ætt hans hafi búið í um eina og hálfa öld, fyrst hjá ömmu sinni og afa og svo í sum­ar­bú­stað fjöl­skyld­unnar. „Ekki skemmir heldur að vera barna­barna­barn Gests á Hæli þegar kíkt er í Skaft­holts­réttir. Þess naut ég þegar ég leiddi lista VG í kjör­dæm­inu árið 2003, þó ekki hafi það skilað þing­sæti þá.“

Ari Trausti Guð­munds­son leiddi lista Vinstri grænna í kjör­dæm­inu 2017 en hann hefur ákveðið að láta gott heita og verður ekki í fram­boði í haust.

[adspot]Kolbeinn segir að fjöl­mörg verk­efni séu framundan, sér­stak­lega vegna heims­far­ald­urs og efna­hagslægðar sem hann hefur leitt af sér. „Við­spyrnan er hafin og hún verður stóra verk­efni næstu miss­era. Við þurfum að skapa störf og vinna á því atvinnu­leysi sem hrjáir allt of marga. Þar eru ærin verk­efni í Suð­ur­kjör­dæmi, allt of mörg hafa misst vinn­una og huga þarf sér­stak­lega að þeim.“

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, til­kynnti í gær­kvöldi að hún hygð­ist sækj­ast áfram eftir því að leiða lista flokks­ins þar.

Talið er nær öruggt að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra muni áfram sækj­ast eftir því að leiða Vinstri græn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur og lík­legt er að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is­ráð­herra og vara­for­maður flokks­ins, muni sækj­ast eftir því að leiða Vinstri græn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þar var Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir í odd­vita­sæti haustið 2017 en hún sagði sig úr Vinstri grænum á síð­asta ári og gekk síðar til liðs við Sam­fylk­ing­una.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi verður bar­átta um odd­vita­sætið þar sem Stein­grímur J. Sig­fús­son, einn stofn­enda flokks­ins og for­maður hans um margra ára skeið, mun ekki verða í fram­boði. Það verður í fyrsta sinn síðan að Vinstri græn voru stofnuð 1999 sem Stein­grímur leiðir ekki í því kjör­dæmi. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna í kjör­dæm­inu, og Óli Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi og fyrr­ver­andi vara­for­manns­fram­bjóð­andi, hafa bæði til­kynnt um að þau vilji taka við odd­vita­sæti Stein­gríms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár