Segir það þjóðarskömm að fólk þurfi að hafast við á tjaldstæði

Borg­ar­stjór­inn segir að borgin sé búin að kaupa alls 144 íbúðir og spyr sig hvort þörf sé á að ný rík­is­stjórn setji fjölda félags­legra íbúða í sveit­ar­fé­lögum í lög. Töluverð umræða hefur skap­ast síð­ustu daga um aðstæður fólks sem búa í tjöldum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, segir það þjóð­ar­skömm að fólk þurfi að haf­ast við á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal gegn sínum vilja vegna hús­næð­is­vanda.

Þetta kemur fram í færslu hans á Facebook í morgun.

„Sú staða að tals­verður fjöldi fólks væri í miklum hús­næð­is­vanda hefur verið ljós frá í sumar og borgin hefur því á und­an­förnum vikum keypt fjölda íbúða og er jafn­framt að útbúa nokk­urs konar neyð­ar­hús­næði í Víðinesi fyrir þá Reyk­vík­inga sem hafa ekki í önnur hús að venda,“ segir í færsl­unni.

Dagur segir jafn­framt að 144 íbúðir og úrræði sé búið að kaupa og verið sé að stand­setja. „Könnun vett­vangsteymis Vel­ferð­ar­sviðs sem fór til fundar við íbúa tjald­svæð­is­ins í Laug­ar­dalnum leiddi hins vegar í ljós að umtals­verður hluti þess hóps sem hefst þar við er úr nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur og af lands­byggð­inni vegna þess að þar hefur ekki verið hús­næði að fá - og tjald­svæðum jafn­vel lokað yfir vetr­ar­tím­ann. Þetta ætti kannski ekki að koma á óvart því flestir við­mæl­endur fjöl­miðla í Laug­ar­dalnum und­an­farna daga eru úr öðrum sveit­ar­fé­lögum.“

Kjarninn fjall­aði um hús­næð­is­mál í síð­ustu viku en þar kom fram að um síð­ustu ára­mót átti Reykja­vík­ur­borg 2.445 félags­legar íbúðir. Ljóst er að þeim hefur fjölgað um á annað hund­rað í ár. Til sam­an­burðar áttu þau nágranna­sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar sem koma þar næst, Kópa­vogur (436 félags­legar íbúðir) og Hafn­ar­fjörður (245 félags­legar íbúðir) sam­tals 681 félags­lega íbúð í lok síð­asta árs. Í Garðabæ eru 35 slíkar, 30 í Mos­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­ar­nesi. Því hefur Reykja­vík­ur­borg, ásamt Félags­bú­stöðum, keypti næstum tvö­falt fleiri íbúðir á allra síð­ustu vikum sem munu nýt­ast þeim sem þurfa á félags­legu hús­næði að halda en Garðabær, Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes áttu sam­tals í heild um síð­ustu ára­mót.

Borginni ber siðferðisleg skylda til að hugsa um fólkið

Dagur telur að borg­inni beri sið­ferði­leg skylda til að líta líka til þessa fólks varð­andi neyð­ar­lausnir á þeirra vanda, sam­hliða því að trygga Reyk­vík­ingum öruggt húsa­skjól. „En frum­skyldan hlýtur að liggja heima fyrir og mér finnst reyndar full­kom­lega eðli­legt að vel­ferð­ar­svið borg­ar­innar sendi við­kom­andi sveit­ar­fé­lögum reikn­ing­inn,“ segir hann í færsl­unni.

Hann segir að Reykja­vík leggi allt kapp á að glíma við hús­næð­is­vand­ann og auka fram­boð félags­legs hús­næðis og hús­næðis á við­ráð­an­legu verði. En það sé jafn­ljóst að önnur sveit­ar­fé­lög verða að standa sig betur. „Ég hef haft orð á því áður - en það er ótrú­lega lítið talað um þá stað­reynd - að þrátt fyrir mikla umræðu um hús­næð­is­mál og hús­næð­is­vanda fólks er það fyrst og fremst í Reykja­vík sem unnið er að því að fjölga félags­legum íbúðum, leigu­í­búðum fyrir fólk með lítil efni, stúd­enta­í­búðum og íbúðum fyrir aldr­aða. Fyrir er Reykja­vík með lang hæst hlut­fall slíkra íbúða. Fjölmörg sveit­ar­fé­lög eru með allt of fáar íbúðir á sínum vegum og engar áætl­anir um að fjölga þeim.“

Biðlar til nýrrar ríkisstjórnar að setja lög um skyldur sveitarfélaga

Hann spyr hvort ný rík­is­stjórn þurfi hugs­an­lega að leiða skyldu sveit­ar­fé­laga til að fjölga þessum íbúðum í lög, þannig að mun­ur­inn á milli Reykja­víkur og ann­arra haldi ekki bara áfram að aukast. „Ég vona alla vega að ræki­lega sé fjallað um hús­næð­is­mál í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar því þau eru og verða eitt mik­il­væg­asta verk­efni stjórn­mál­anna,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár