Flestir á leigumarkaði í Reykjanesbæ

Umfang leigu­mark­aðs virð­ist mest í Reykja­nesbæ af öllum sveit­ar­fé­lögum.

Reykjanesbær.
Reykja­nes­bær.

Hlutfall skráðra leigu­í­búða eftir sveit­ar­fé­lögum er hvergi jafn­hátt og í Reykja­nesbæ. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu Íbúða­lána­sjóðs sem kom út í dag. 

Í úttekt­inni er að því vikið að hlut­falls­lega séu jafn­margir á leigu­mark­aði á lands­byggð­inni og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en sam­kvæmt könnun á vegum Íbúða­lána­sjóðs og Zenter eru leigj­endur í báðum til­vikum 18% íbúa.

Ef litið er á stærð leigu­mark­aðs sem hlut­falls­legan fjölda þing­lýstra leigu­samn­inga af íbúða­fjölda sést mik­ill munur milli sveit­ar­fé­laga. Þar er umrætt hlut­fall 6,7% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en tvö­falt hærra í Reykja­nesbæ, eða 13,4%. Svipuð mynd kemur upp þegar litið er til hlut­falls íbúa sem fá greiddar hús­næð­is­bætur, en það er 7% á Reykja­vík­ur­svæð­inu sam­an­borið við 9,8% í Reykja­nesbæ.

Langmest hækkun á fasteignamati

Kjarninn greindi áður frá fast­eigna­mati Þjóð­skrár fyrir árið 2019, en sam­kvæmt því mun fast­eigna­mat hækka um 41,1 pró­sent í Reykja­nesbæ á yfir­stand­andi ári, mest allra sveit­ar­fé­laga. Þessi hækkun er nær fjór­föld með­al­tals­hækk­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem spáð er að virði fast­eigna muni aukast um 11,6%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár