Hátt í 100 þúsund félagar á flokksskrám stjórnmálaflokkanna

Skráðir félagar í stjórn­mála­flokkum á Íslandi eru hátt í 100 þús­und tals­ins, sem er ákaf­lega hátt hlut­fall kjós­enda í alþjóð­legum sam­an­burði. Líklega eru þó margir skráðir í fleiri en einn flokk.

Svona er hlutfallsleg skipting skráðra félaga í flokkunum, samkvæmt því sem Kjarninn kemst næst.
Svona er hlut­falls­leg skipt­ing skráðra félaga í flokk­unum, sam­kvæmt því sem Kjarninn kemst næst. Mynd: Kjarninn

Í alþjóð­legum sam­an­burði eru ákaf­lega margir skráðir í stjórn­mála­flokka á Íslandi, en skráðir félagar í flokk­unum eru sam­an­lagt hátt í 100 þús­und, sam­kvæmt því sem Kjarninn kemst næst eftir að hafa leitað svara hjá flokk­unum sjálfum. Ekki er ósenni­legt að margir ein­stak­lingar séu skráðir í fleiri en einn stjórn­mála­flokk og því er fjöldi þeirra ein­stak­linga sem eiga þessar tæp­lega 100 þús­und aðildir að flokk­unum eflaust eitt­hvað lægri.

Allir flokkar lands­ins nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn reynd­ust til­búnir að gefa upp hve margir félagar þeirra eru þegar Kjarninn leit­aði svara um það nýlega.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er langstærstur íslenskra flokka. Óljóst er þó nákvæm­lega hversu margir félag­arnir á flokks­skrá Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru, en eftir því sem Kjarninn kemst næst eru þeir á bil­inu 40 til 50 þús­und tals­ins. Heim­ildum ber ekki saman og flokk­ur­inn neitar að gefa fjölda félaga út opin­ber­lega. Sama hvora töl­una er stuðst við þá er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn langstærstur er litið er til fjölda félaga.

Í sam­taln­ingu Kjarnans verður miðað við að félagar í flokknum séu um 45 þús­und tals­ins, sem er mitt á milli þeirra talna sem vísað hefur verið til af fólki sem þekkir til. Árið 2009 gaf flokk­ur­inn sjálfur út að félagar væru um 50 þús­und tals­ins.

Miðflokkurinn þögull sem gröfin

Ekki hefur reynst mögu­legt að kom­ast að því hversu margir eru í Mið­flokknum, en flokk­ur­inn hefur þá stefnu að gefa ekki upp fjölda félaga, sam­kvæmt svari starfs­manns flokks­ins til Kjarnans. Mið­flokk­ur­inn, sem var stofn­aður í aðdrag­anda kosn­inga 2017, er því ekki með í þess­ari sam­taln­ingu Kjarnans. Svörin sem feng­ust frá ein­stak­lingum sem þekkja til mála í Mið­flokknum þegar blaða­maður reyndi að lokka fram svör voru þó þau að fjöldi flokks­manna hlypi á þús­undum, eða þá að flokks­menn væru „nógu margir“.

Samfylkingin næst stærsta hreyfingin

Fjöldi félaga var minna feimn­is­mál hjá öðrum stjórn­mála­öflum sem Kjarninn leit­aði til með fyr­ir­spurnir. Fyrir utan Sjálf­stæð­is­flokk­inn er Sam­fylk­ingin sá flokkur sem hefur flesta skráða félaga. Samkvæmt svörum sem feng­ust frá flokknum eru félagar í Sam­fylk­ing­unni um 15 þús­und tals­ins um þessar mundir, en flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1998 með sam­runa Alþýðu­flokks­ins og nokk­urra ann­arra afla á vinstri væng stjórn­mál­anna, í breið­fylk­ingu íslenskra jafn­að­ar­manna sem ætlað var að verða mót­væg­is­afl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Framsóknarmenn flestir í landsbyggðunum

Þar næst kemur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem er með 12.664 félaga á lands­vísu, sam­kvæmt svari frá skrif­stofu flokks­ins. Í svar­inu frá Framsókn, sem er elsti starf­andi stjórn­mála­flokkur lands­ins, fékkst einnig sund­ur­liðun á fjölda félaga eftir kjör­dæmum. Þar kemur í ljós að þeir eru hlut­falls­lega mun miklu fleiri í lands­byggð­ar­kjör­dæmum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Flestir eru skráðir Fram­sókn­ar­menn í Suð­ur­kjör­dæmi, eða hátt í 3.300 tals­ins og fæstir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, eða rúm­lega 2.100 manns.

Í Reykja­vík allri, þar sem 36 pró­sent kjós­enda kjósa eru félagar í Fram­sókn­ar­flokknum ein­ungis rúm­lega hund­rað fleiri en í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem tæp 12 pró­sent kjós­enda voru á kjör­skrá í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra. Flokk­ur­inn hefur haft það að mark­miði að auka fylgi sitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og teflir nú fram tveimur af þremur ráð­herrum sínum í odd­vita­sætum í Reykja­vík.

Vinstri græn aldrei verið fleiri

Félagar í Vinstri grænum eru sam­kvæmt svari frá skrif­stofu flokks­ins um 8.000 tals­ins og hafa aldrei verið fleiri en um þessar mundir, en eins og Kjarninn sagði frá á vor­dögum tútn­uðu kjör­skrár flokks­ins út í aðdrag­anda próf­kjöra sem haldin voru hjá flokknum í öllum kjör­dæmum.

Eru þá upp­taldir félagar í fjór­flokknum svo­kall­aða, þeim fjóru rót­grónu flokkum og arf­tökum þeirra sem hafa verið með yfir­burða­stöðu á Íslandi frá því að þeir urðu til á fyrri hluta síð­ustu aldar. Sam­an­lagður fjöldi skráðra félaga í þessum fjórum flokkum er um eða yfir 80 þús­und manns.

Nýju flokkarnir minni einingar

Eins og eðli­legt má telja eru nýju flokk­arnir, sem allir hafa orðið til á und­an­förnum ára­tug, öllu minni í sniðum en þeir sem eru rót­grón­ari í íslenskum stjórn­málum og með lengri sögu á bak við sig.

Ef litið er til fjölda félaga eru Píratar stærstir af nýju flokk­unum, en flokk­ur­inn bauð í fyrsta skipti fram til Alþingis árið 2013. Samkvæmt svari frá flokknum eru félag­arnir hart­nær 5.200 tals­ins, þar af tæp­lega 1.800 í Reykja­vík.

Viðreisn, sem bauð fyrst fram árið 2016, seg­ist vera með um 2.700 félags­menn, en í svari starfs­manns flokks­ins til Kjarnans var þess sér­stak­lega getið að flokk­ur­inn hefði aldrei haldið próf­kjör, sem eru jú ein helsta ástæðan fyrir því að fólk skráir sig í stjórn­mála­flokka.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem býður nú fram til Alþingis í fyrsta sinn, hefur verið að safna liði af nokkrum krafti und­an­farna mán­uði og gefur reglu­lega út að félögum sé að fjölga. Samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá flokknum á síð­ustu vikum var fjöldi félaga að nálg­ast 2.700.

Flokkur fólks­ins seg­ist síðan vera með um 1.000 félaga, en flokk­ur­inn bauð fyrst fram til Alþingis árið 2016.

Til við­bótar við þessa flokka hafa fleiri flokkar sprottið fram á sjón­ar­sviðið á síð­asta rúma ára­tug, sem hafa verið umbrota­tímar í íslenskum stjórn­málum, en síðan horfið á nú jafn­harðan. Aug­ljós­asta dæmið um slíkt stjórn­mála­afl er Björt fram­tíð, sem býður ekki fram til Alþingis að þessu sinni eftir að hafa tekið sæti í rík­is­stjórn fyrir ein­ungis fimm árum síðan.

Flokkar í vanda?

Þrátt fyrir þennan mikla fjölda félaga í flokk­unum hafa verið settar fram efa­semdir um virkni íslensku flokk­anna á und­an­förnum miss­erum. Sjálf­boða­starf í sam­fé­lag­inu almennt hefur farið minnk­andi og flokk­arnir, sem eru orðnar vel fjár­magn­aðar ein­ingar með síhækk­andi fram­lögum hins opin­bera, þurfa æ minna á virkri þátt­töku almenn­ings að halda þar sem þeir hafa fólk á launum í hinum ýmsu hlut­verkum. Eða svo virð­ist mörgum raunin vera utan­frá.

[box]

Eitt nýjasta dæmið um skarpa gagn­rýni á hlut­verk flokk­anna í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi á Íslandi kom fram í pistli frá Styrmi Gunn­ars­syni heitnum í Morg­un­blað­inu fyrir rúmum mán­uði síðan. Þar sagði hann íslensku stjórn­mála­flokk­ana hrein­lega vera í vand­ræðum.

„Nýju flokk­arnir eru nafnið tómt og á bak við þá eru fámennir hópar fólks. Gömlu flokk­arnir eiga sér lengri sögu og sumir þeirra eru með þús­undir og jafn­vel tug­þús­undir flokks­manna. En þeirra vanda­mál er stöðnun. Þeim hefur ekki tekizt að laga sig að breyttu sam­fé­lagi og eru hræddir við nýjar hug­myndir eða aðrar skoð­anir en þær sem eru ríkj­andi hverju sinni,“ skrif­aði Styrmir.

Í grein sinni lagði Styrmir út frá stuttu við­tali Kjarnans við Guðjón Brjáns­son frá­far­andi þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, sem þar setti fram vanga­veltur um að flokk­ur­inn þyrfti mögu­lega að hugsa sinn gang. „Það mundi kveikja mikið líf í þeim flokki ef efnt yrði til opins fundar í flokknum um þessa spurn­ingu Guðjóns,“ skrif­aði Styrmir, en taldi lík­urnar á því þó hverf­andi.

Hann sagði að með sama hætti ætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn „að efna til opins fundar um hálend­is­þjóð­garð, sem ein­hverjir þing­menn þvæld­ust fyrir að yrði sam­þykktur á þingi“ og sagði að slíkur fundur gæti ef til vill opnað augu ein­hverra þing­manna fyrir því að „and­staða við hálend­is­þjóð­garð er aft­ur­hald af verstu teg­und.“ Ekki væru þó miklar líkur á því.

Styrmir sagði sömu­leiðis að hið sama mætti segja um Vinstri græn. „Þegar skoð­ana­könn­unin birt­ist um and­stöðu kjós­enda VG við sam­starfið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn hefði verið eðli­legt að efna til opins fundar í VG um þá könnun. Það var ekki gert,“ skrif­aði rit­stjór­inn fyrr­ver­andi í sitt gamla blað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár