Aldrei fleiri skráð í VG – kjörskrár tútnuðu út í aðdraganda forvals

Met­fjöldi félaga er um þessar mundir skráður í VG, eða yfir 7.100 manns. Frá ára­mótum hafa á bil­inu 1.400 til 1.500 manns bæst í flokk­inn. Þing­maður sem tap­aði odd­vitaslag seg­ist efins um fyr­ir­komu­lagið sem flokk­ur­inn notar til að velja sér full­trúa.

Fjöldi félaga í Vinstri hreyf­ing­unni – grænu fram­boði hefur vaxið all­nokkuð það sem af er ári og kjör­skrár í nokkrum kjör­dæmum þar sem for­völ hafa farið fram nú þegar hafi tútnað ræki­lega út, sam­an­borið við síð­asta ár.

Á fimmtu­dags­morgun voru félagar í hreyf­ing­unni orðnir 7.111 tals­ins, sam­kvæmt svari frá Björgu Evu Erlends­dóttur fram­kvæmda­stjóra VG við fyr­ir­spurn Kjarnans, en þeir hafa aldrei verið fleiri en um þessar mundir.

Björg segir að hana reki minni til þess að fjöldi félaga hafi verið á bil­inu 5.600 til 5.700 tals­ins um ára­mót, sem þýðir að félögum hafi fjölgað um 1.400 til 1.500 á innan við fjórum mán­uðum.

Þingmaður sem tapaði oddvitaslag efins um leikreglurnar

Athygli vakti á dög­unum að þing­mað­ur­inn Lilja Rafney Magn­ús­dóttir steig fram eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Bjarna Jónssyni í for­vali flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sagði hrein­lega að smalað hefði verið gegn sér í for­val­inu.

Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna laut í lægra haldi í oddvitaslag í Norðvesturkjördæmi.
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður Vinstri grænna laut í lægra haldi í odd­vitaslag í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

„[M]ér finnst þetta ekki endi­lega vera heið­ar­legar leik­reglur eða lýð­ræð­is­legar í sjálfu sér og umhugs­un­ar­efni til fram­tíðar hvort þetta sé leiðin til þess að velja fólk á lista, að fjöldi manns komi inn og kannski fari út strax að for­vali loknu,“ sagði Lilja Rafney í sam­tali við RÚV þegar úrslit lágu ljós fyrir.

Ekki grenjandi en telur endurskoðunar þörf

Kjarninn heyrði í Lilju Rafneyju og hún er enn sama sinnis. Hún seg­ist vita fyrir víst að um 500 nýir félagar hafi hafi bæst við flokk­inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi rétt fyrir for­valið og veltir því fyrir sér hvort að þetta sé besta leiðin til þess að velja full­trúa flokks­ins með lýð­ræð­is­legum hætti.

Hún segir að það sé auð­vitað ekki óleyfi­legt sam­kvæmt lögum og reglum flokks­ins að hvetja fólk til þess að ganga í hreyf­ing­una og ljá sér stuðn­ing í for­vali. Svipað eigi sér einnig stað í öðrum flokkum, að margir komi nýir inn skömmu áður en flokks­menn fari í það að velja sér full­trúa með atkvæða­greiðslum. En þetta finnst Lilju Rafney vera of stór þáttur í ferl­inu.

„Þetta virð­ast hlut­irnir ganga út á og mér finnst að alla­vega minn flokkur þurfi að taka til end­ur­skoð­unar,“ segir Lilja Rafney, sem hefur verið full­trúi VG í Norð­vest­ur­kjör­dæmi á þingi frá árinu 2009. Hún segir að nýliðar þurfi að sjálf­sögðu að eiga mögu­leika á að kom­ast að, en segir spurn­ingu hvernig aðferða­fræðin eigi að vera.

Á henni er að heyra að núver­andi fyr­ir­komu­lag geri sitj­andi þing­mönnum ef til vill erfitt fyrir við að leggja störf sín í dóm flokks­manna. Sjálf er hún ekki enn búin að ákveða hvort hún þiggi 2. sætið á lista Vinstri grænna í kjör­dæm­inu.

„Ég er enn að velta vöngum yfir þessu. Það er aldrei að vita hvað maður gerir. Maður er bar­áttu­maður í eðli sínu og er ekki grenj­andi yfir þessu,“ segir Lilja Rafney og seg­ist vilja horfa á heild­ar­sam­hengi hlut­anna. Hún hafi þannig fengið um 30 pró­sent fleiri atkvæði en síð­ast þegar hún og Bjarni átt­ust við í for­val­inu árið 2016. En það hafi líka verið um það bil 50 pró­sent fleiri á kjör­skránni en voru skráðir í félagið skömmu fyrir for­valið.

Nýir félagar flykkjast að í aðdraganda forvala

Í ljósi þess­ara orða Lilju Raf­n­eyjar og ummæla hennar um að 500 nýja félaga sem hefðu bæst við í aðdrag­anda for­vals­ins óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum frá hreyf­ing­unni um þróun í fjölda flokks­fé­laga frá ára­mótum og bað flokk­inn sömu­leiðis um að gefa upp hvernig þróun fjölda flokks­fé­laga í hverju kjör­dæmi fyrir sig hefði verið, ef mögu­legt væri.

Í svari frá flokknum var gefið upp hversu margir voru á kjör­skrá í for­vali flokks­ins nú og þær tölur bornar saman við fjölda félaga í ein­staka kjör­dæmum eins og hann var þann 19. mars árið 2020. Fram­kvæmda­stjóri flokks­ins segir þó að nær öll fjölg­unin sem hér er fjallað um hafi verið á yfir­stand­andi ári. Tekið skal fram að fjöldi skráðra félaga í hverju kjör­dæmi gefur ekki mynd af heild­ar­tölu skráðra félaga, þar sem hluti félaga VG eru búsettir erlendis eða ekki skráðir í kjör­dæma­fé­lög.

Í kjör­dæmi Lilju Raf­n­eyjar, Norð­vest­ur­kjör­dæmi, jókst fjöldi félaga um 502 á milli ára. Þar voru félagar 949 í mars í fyrra en síðan voru 1.451 á kjör­skránni í for­val­inu sem fram fór fyrr í mán­uð­inum. Það er rösk­lega 52 pró­sent aukn­ing.

Félagar í svæðisfélögum VG í mars 2020 og svo fjöldi félaga sem voru eða eru komnir á kjörskrá í svæðisfélögum VG. Hafa ber í huga að ekki eru allir félagar í VG skráðir í svæðisfélag. Heimild: VG
Félagar í svæð­is­fé­lögum VG í mars 2020 og svo fjöldi félaga sem voru eða eru komnir á kjör­skrá í svæð­is­fé­lögum VG. Hafa ber í huga að ekki eru allir félagar í VG skráðir í svæð­is­fé­lag. Heimild: VG

Mest fjölgun hefur orðið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem einnig var odd­vita­slagur fyrr í þessum mán­uði. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og vara­for­maður hreyf­ing­ar­innar hafði betur gegn þing­mann­inum Ólafi Þór Jónssyni, sem hafn­aði í öðru sæti. Þar voru félagar 1.139 tals­ins í mars í fyrra en 1.698 manns end­uðu á kjör­skrá flokks­ins í for­val­inu, sem er fjölgun um 559 manns. Rúmlega 49 pró­sent fjölgun.

Mest hlut­falls­leg fjölgun hefur hins vegar orðið í Suð­ur­kjör­dæmi, en þar voru skráðir félagar ein­ungis 388 í mars í fyrra. Á kjör­skránni í spenn­andi for­vali, þar sem Hólm­fríður Árna­dóttir skóla­stjóri úr Sand­gerði hreppti odd­vita­sætið, voru 668 manns, 280 fleiri en skráðir voru í flokk­inn í kjör­dæm­inu fyrir rösku ári síðan. Þetta er 72 pró­sent fjölgun félaga.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem Óli Hall­dórs­son sveit­ar­stjórn­ar­maður frá Húsavík hafði betur í odd­vitaslag gegn þing­flokks­for­mann­inum Bjarkeyju Gunn­ars­dóttur Olsen, fjölg­aði einnig hlut­falls­lega mikið, en þar voru skráðir félagar 647 tals­ins í mars í fyrra og svo voru 1.040 manns á kjör­skrá þegar for­valið fór fram í mars. Félög­unum fjölgar um 393 og er um 60 pró­sent fjölgun á milli ára að ræða.

Enn hægt að komast inn á kjörskrána í Reykjavík

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum hefur ekki enn farið fram for­val, en það verður snemma í maí. Allir sem verða félagar í svæð­is­fé­lagi Vinstri grænna í Reykja­vík fyrir kl. 8 að morgni fimmtu­dags­ins 6. maí geta kosið í for­val­inu.

Félagar í svæð­is­fé­lagi VG í Reykja­vík eru nú 2.566 tals­ins en voru 2.366 í mars í fyrra – sem er fjölgun um 200 manns. Reikna má með því að enn fjölgi á næstu dögum, en bar­átta er um 2. sæti á listum í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og reyna fram­bjóð­endur og stuðn­ings­fólk þeirra að vekja athygli á sér og virkja tengsla­netið til þátt­töku í for­val­inu.

Í bar­átt­unni um 2. sætið etja sitj­andi þing­menn, Steinunn Þóra Árna­dóttir og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, kappi við þau Daníel E. Arnarson, Andrés Skúlason, Orra Pál Jóhanns­son og Elvu Hrönn Hjart­ar­dóttur, sem öll bjóða sig fram í 2. sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár