Læknanemar tilbúnir að leggja sitt af mörkum á óvissutímum

Íslenskur lækna­nemi í Ung­verja­landi segir nema til­búna að leggja sitt af mörkum þegar álagið í heil­brigð­is­kerf­inu eykst. Nemar hafa verið beðnir um koma til starfa í Ung­verja­landi og Land­spít­ali hefur einnig leitað til nema sem eru á loka­ári í námi ytra.

Hrafnhildur Edda Magnúsdóttir, formaður Félags íslenskra læknanema í Ungverjalandi.
Hrafn­hildur Edda Magn­ús­dóttir, for­maður Félags íslenskra lækna­nema í Ung­verja­landi.

Land­spít­al­inn hefur sett sig í sam­band við íslenska lækna­nema sem eru loka­ári í námi erlendis, en staddir hér á landi, um að koma til starfa og létta undir með spít­al­anum, nú þegar álag vegna COVID-19 far­ald­urs­ins er að aukast.

Tómas Guð­bjarts­son hjarta­skurð­læknir á Land­spít­ala fjall­aði um það á Facebook í gær að hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar væru farnar að biðla til lækna- og hjúkr­un­ar­nema um að ráða sig inn á sjúkra­hús vegna far­ald­urs­ins og sagði að ágætt væri að huga að því hér­lendis að virkja alla krafta með því að ráða inn lækna­nema við Háskóla Íslands og erlenda háskóla. Nú virð­ist það í und­ir­bún­ingi.

Hrafn­hildur Edda Magn­ús­dóttir, for­maður Félags íslenskra lækna­nema í Ung­verja­landi, segir við Kjarnann að hópur íslenskra nema sem eru á loka­ári í námi þar í landi hafi nú þegar fengið boð um að koma til starfa.

Þessi hópur sjötta árs nema er þegar staddur á Íslandi, en búið er að fella niður allt verk­legt nám lækna­nema í Ung­verja­landi ótíma­bundið til þess að minnka smit­hættu og því lítið fyrir sjötta árs nem­ana, sem eru ein­ungis í verk­legu námi, að gera ytra.

„Við erum öll af vilja gerð að hjálpa, líka á 4. og 5. ári, svo lengi sem náms­fram­vinda okkar mun stand­ast. Hér í Ung­verja­landi hafa þeir nú þegar fyrir tæpri viku beðið lækna­nema á klínísku árunum að ger­ast sjálf­boða­liðar gegn far­aldr­inum,“ segir Hrafn­hildur, en sjálf er hún á fjórða ári í námi sínu við háskól­ann í Debrecen.

Hún segir að sjötta árs nem­arnir horfi margir fram á að fresta útskrift sinni úr skól­anum, sem átti að vera í upp­hafi sum­ars. „Þetta er stór stund að ljúka lækna­námi og yrði súrt epli að bíta í að fagna þannig áfanga, ef útskrift­ar­at­höfn væri haldin eftir sótt­varna­reglum og eng­inn gæti mætt í athöfn­ina. En ólík­legt er úr þessu að útskriftir verði á næst­unni, ef eng­inn getur tekið praktík eða emb­ætt­is­próf hér útaf far­aldr­inum,“ segir Hrafn­hildur Edda.

Hún segir að stundum á síð­ustu árum hafi skotið upp koll­inum umræða um að íslensku sam­fé­lagi vanti ekki allan þann starfs­kraft sem snýr til baka úr lækna­námi erlendis.

„Við sem erum hér í námi vonum að eftir að þessum far­aldri lýkur, að bæði heil­brigð­is­stéttir og auð­lindin sem náms­menn erlendis sækja í sarp­inn, sé metin að verð­leikum,“ segir Hrafn­hildur Edda, sem hefur tekið þátt í hags­muna­bar­áttu nem­enda gagn­vart LÍN.

Hún segir lækna­nem­ana í Debrecen vera í tölu­verðri óvissu, þar sem enn er stefnt á að halda loka­próf í vor. Fólk vilji ekki eiga á hættu að falla á ári ef svo fari að ekki reyn­ist mögu­legt að kom­ast aftur til Ung­verja­lands í vor til þess að taka loka­próf, en ríkið lok­aði í síð­ustu viku landa­mærum sínum fyrir öðrum en ung­verskum rík­is­borg­urum og óvissa er um hve lengi sú lokun mun vara, eins og svo margt annað.

Námið í Ung­verja­landi er kostn­að­ar­samt og greiða íslensku nem­end­urnir fyrir úr eigin vasa og hætta meira að segja að fá skóla­gjalda­lán frá LÍN þegar námið er hálfnað, þar sem þá er heild­ar­upp­hæðin komin upp í þak skóla­gjalda­lána hjá LÍN, upp­hæð sem hefur staðið í stað allt frá árinu 2007. Svo það væri fjár­hags­legt högg að falla á ári fyrir að fara til Íslands að hjálpa til í heil­brigð­is­kerf­inu.

„Því miður er aðalfakt­or­inn í þess­ari ákvarð­ana­töku um hvort við gætum farið heim og hjálpað, án þess að það setji strik í okkar eigin reikn­ing, hvort og hvenær próf verða haldin eða ekki, sem er óstað­fest sökum óvissu­á­stands­ins,“ segir Hrafn­hildur og bætir við að hún sé ekki bjart­sýn á að sú ákvörðun verði tekin alveg á næst­unni þrátt fyrir að hags­muna­fé­lög nem­enda hafi pressað á skóla­yf­ir­völd um að gera það.

Orbán hefur kennt innlytjendum um útbreiðsluna

Samkvæmt tölum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Ung­verja­landi höfðu 103 til­felli verið greind þar í landi í gær, er búið var að greina 3.007 sýni. Fjórir hafa lát­ist og yfir­völd segja að dreif­ingin inn­an­lands hafi nú náð „öðru stigi“ og ljóst sé að COVID-19 sé farið að ganga á milli hópa fólks.

Viktor Orbán for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hefur kennt útlend­ingum um útbreiðslu veirunnar og sagt að það séu „aug­ljós“ og „rök­rétt“ tengsl á milli ólög­legra inn­flytj­enda og útbreiðslu veirunnar og bætti við að það setti Ung­verja­land í væn­lega stöðu til þess að verj­ast veirunni, þar sem landið hefði nú þegar girt fyrir komu flótta­fólks. Hrafn­hildur segir að þessi orð­ræða for­set­ans hafi ekki komið sér á óvart.

„Hins vegar hefur ung­verska lækna­ráðið verið alveg mót­fallið því sem rík­is­stjórnin var að gera,“ segir Hrafn­hildur og bætir við að und­an­farna viku eða svo hafi rík­is­stjórnin farið að grípa til þeirra aðgerða sem lækna­ráðið mælir með, fellt niður skóla­hald og sett á sam­komu­bann, auk þess að loka landa­mær­unum og hafa sér spít­ala­stofn­anir fyrir COVID-19 sjúk­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár