Sósíalistaflokkurinn mælist nánast jafn stór og Miðflokkurinn

Bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn mæl­ast nokkuð undir kjör­fylgi en Framsókn hefur unnið á síð­ustu vikur. Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig sam­an­lagt um tíu pró­sentu­stigum og Sós­í­alistar mæl­ast með 5,7 pró­sent fylgi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins og Gunnar Smári Egilsson er formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins og Gunnar Smári Egilsson er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Sós­í­alista­flokkur mælist nán­ast jafn stór og Mið­flokk­ur­inn í nýj­ustu könnun Maskínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar á fylgi stjórn­mála­flokka.

Sá fyrr­nefndi, sem hefur aldrei áður boðið fram í þing­kosn­ingum, hefur ekki kynnt fram­boðs­lista sína né stefnu­skrá fyrir kom­andi kosn­ingar, mælist með 5,7 pró­sent fylgi sem myndi tryggja við­veru á Alþingi að óbreyttu, miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar. Mið­flokk­ur­inn, sem vann mik­inn kosn­inga­sigur haustið 2017 þegar hann fékk bestu kosn­ingu sem nýr stjórn­mála­flokkur hefur nokkru sinni fengið með 10,9 pró­sent atkvæða, mælist nú með 6,1 pró­sent fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins með 21,8 pró­sent fylgi, en er langt frá kjör­fylgi sínu. Vinstri græn mæl­ast með með 13,2 pró­sent og hafa líka dala umtals­vert á kjör­tíma­bil­inu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,9 pró­sent, sem er nán­ast það sama og flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2017. [adspot]Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapað sjö pró­sentu­stigum af fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu og ósenni­legt að þeir gætu end­ur­nýjað stjórn­ar­sam­starfið miðað við þá stöðu sem ríkir sam­kvæmt könnun Maskinu.

Þrír andstöðuflokkar hafa bætt við sig

Af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum fimm tapa tveir fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Áður­nefndur Mið­flokkur, sem hefur tapað 44 pró­sent af stuðn­ingi sínum, og Flokkur fólks­ins, sem mælist nú með 4,4 stuðn­ing. Það myndi ekki duga Flokki fólks­ins til að ná inn á þing að óbreyttu.

Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokkur lands­ins þótt hún hafi dalað umtals­vert í könn­unum Maskínu á und­an­förnum mán­uðum. Alls segj­ast 13,7 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa flokk­inn. Píratar og Viðreisn mæl­ast báðir með 12,1 pró­sent og þessir þrír flokkar eru allir að bæta við sig frá 2017.

Þá fengu Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn sam­an­lagt 28 pró­sent atkvæða en fylgi þeirra nú mælist næstum tíu pró­sentu­stigum meira, eða 37,9 pró­sent.

Könnun Maskínu byggir á tveimur mæl­ingum sem gerðar voru á dög­unum 15. til 25. febr­úar og 11. til 18. mars. Svar­endur voru 1.620 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár