„Faraldurinn er eins og staðan er núna á niðurleið“

Toppnum í nýsmitum COVID-19 hér á landi virð­ist náð, að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Far­ald­ur­inn er því á nið­ur­leið, en Alma Möller land­læknir minnir á að enn sé nokkuð í að toppi verði náð hvað álag á heil­brigð­is­kerfið varðar.

„Ég held að við getum sagt að við séum búin að ná toppnum eins og staðan er núna,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

[links]

Fjöldi þeirra sem er að batna er nú meiri en nýgreindra, sem þýðir að sögn Þórólfs að lík­lega er R-talan svo­kall­aða, útbreiðslutalan sem segir til um hve marga hver og einn smit­aður ein­stak­lingur er að smita að með­al­tali, komin undir 1.

„Far­ald­ur­inn er eins og staðan er núna á nið­ur­leið, held ég að við getum sagt, en það er alveg ljóst að það má ekk­ert mikið út af bregða og þetta getur breyst með nýjum hóp­sýk­ingum ef menn gá ekki af sér,“ sagði Þórólfur.

Hann sagði þó að hægt væri gleðj­ast yfir þessu og einnig því að það væri greini­lega mjög lítið um sam­fé­lags­legt smit, en ein­ungis um 0,07 pró­sent þeirra sem Íslensk erfða­grein­ing skimaði í gær reynd­ist vera með veiruna, eða eitt smit af alls 1.284 sýnum sem tekin voru úr sam­fé­lag­inu.

[adspot]

Þórólfur sagði að far­ald­ur­inn væri nokk­urn­veg­inn að fylgja bestu for­spá úr spálík­ani vís­inda­manna við Háskóla Íslands, Land­spít­ala og frá land­lækn­is­emb­ætt­inu, nema hvað fjölda inn­lagna varð­aði. Sótt­varna­læknir sagði að líkanið hefði verið mjög hjálp­legt og stutt heil­brigð­is­yf­ir­völd vel í því sem verið væri að gera.

Þá sagði Þórólfur að grein­ing­ar­tæki á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, sem hefur verið bilað, væri komið í lag. Því væri hægt að greina sýni þar á auknum afköstum, sem væri mjög ánægju­legt.

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að þó ánægju­legt væri að við værum að lík­indum búin að ná toppi í nýsmitum, ætti mesta álagið, topp­ur­inn, eftir að koma í ljós í heil­brigð­is­kerf­inu en búist er við því að álagið verði mest um mán­uð­inn miðjan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár