Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.616 hér á landi. Í gær voru þau 1.586 og hefur þeim því fjölgað um þrjátíu á einum sólarhring. Í dag eru 4.195 manns í sóttkví en í gær var fjöldinn 4.407. Alls hafa 13.898 lokið sóttkví.
Í dag eru 977 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 1.021. Alls hafa 633 náð bata.
29 ný smit greindust í því 671 sýni sem tekið var á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Af 1.284 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfðagreiningu fannst aðeins eitt nýtt smit. Alls hafa 30.947 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Enn er yfir helmingur þeirra sem greinist með sýkingu þegar í sóttkví sem sóttvarnalæknir hefur sagt sýna mikilvægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunnar.
Á sjúkrahúsi liggja 39 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af þrettán á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex látin.
Gert er ráð fyrir því að rúmlega 2.100 manns muni greinast með COVID-19 hér á landi í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð 2.600 samkvæmt svartsýnni spá. Þetta kemur fram í forspá vísindamanna Háskóla Íslands, Landspítala og landlæknisembættisins, sem miðast við gögn til og með 5. apríl.
[links]Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúkdóm nái hámarki í þessari viku og að þeir verði um 1.400 talsins. Samkvæmt svartsýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 einstaklingar hafi þá virkan sjúkdóm á sama tíma.
Samkvæmt nýjustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins fer yfir þurfi 140 manns að leggjast inn á sjúkrahús, en fjöldinn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heilbrgiðisþjónustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Uppfærð forspá gerir ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni 28 einstaklingar veikjast alvarlega og þurfa gjörgæsluinnlögn, en svartsýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúklingar verði allt að 41 talsins.
Mestu álagi á gjörgæsludeildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúklingar liggi á gjörgæslu á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 19 manns.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir