Sneru á Kínverja

Kínversk stjórn­völd hugsa Dönum þegj­andi þörf­ina eftir að danskir þing­menn hjálp­uðu and­ófs­manni, sem átti yfir höfði sér fang­els­is­dóm, að kom­ast frá Hong Kong til Dan­merkur.

Ted Hui var þingmaður á svæðisþinginu í Hong Kong.
Ted Hui var þing­maður á svæð­is­þing­inu í Hong Kong. Mynd: EPA

Í nóv­em­ber í fyrra fékk Ted Hui, þing­maður á svæð­is­þing­inu í Hong Kong boð um að koma til Dan­merkur. Boðið kom frá tveimur dönskum þing­mönnum, þeim Katarina Ammitzbøll og Uffe Elbæk. Ted Hui hafði verið ákærður fyrir að hafa níu sinnum brotið lög í tengslum við bar­áttu hans fyrir auknu lýð­ræði. Slík brot varða margra ára fang­els­is­vist. Ted Hui hafði verið hand­tek­inn en síðar lát­inn laus gegn trygg­ingu, hann mátti hins­vegar ekki fara úr landi.

Boðs­bréf­inu fylgdi dag­skrá og þar kom fram að Ted Hui byð­ist að taka þátt í nokkrum fundum og að minnsta kosti tveimur ráð­stefnum. Lög­reglan í Hong Kong taldi að Ted Hui hefði, í krafti þing­mennsk­unnar, fengið þetta boð og myndi í ferð­inni hitta danska þing­menn og full­trúa umhverf­is­sam­taka. Ted Hui flaug til Dan­merkur í des­em­ber.

[adspot]

Hvorki fundir né ráðstefnur

Fljót­lega eftir að Ted Hui var kom­inn til Dan­merkur kom í ljós að til­gangur ferð­ar­innar var ekki að hitta þing­menn, sitja ráð­stefnur eða ræða við umhverf­is­vernd­ar­sinna. Ted Hui var ein­fald­lega að flýja land og naut til þess aðstoðar dönsku þing­mann­anna. Katarina Ammitzbøll útbjó boðs­bréfið og Uffe Elbæk „skáld­aði” dag­skrána. Kínversk stjórn­völd náðu ekki upp í nefið á sér fyrir bræði þegar í ljós kom að dönsku þing­menn­irnir höfðu platað þau upp úr skónum.

Til Bretlands og síðar Ástralíu

Ted Hui stóð ekki lengi við í Danmörku. Eftir nokk­urra daga dvöl í Kaup­manna­höfn hélt hann til Bret­lands og síð­ast­lið­inn þriðju­dag (9. mars) kom hann til Ástralíu. Þar hyggst hann setj­ast að og halda áfram bar­áttu sinni gegn stjórn­völdum í Kína.

Það hefur lengið verið grunnt á því góða milli ástr­al­skra og kín­verskra stjórn­valda. Ástralir hafa verið mjög gagn­rýnir á stefnu Kínverja í mann­rétt­inda­málum og hafa kært sig koll­ótta um hót­anir þeirra í sinn garð. Kín­verjar hafa snið­gengið og bannað inn­flutn­ing á áströlskum varn­ingi.

Fékk hjálp áströlsku ríkisstjórnarinnar

Ted Hui hefur greint frá því að hann hafi notið aðstoðar rík­is­stjórnar Ástralíu til að kom­ast þangað. Vegna kór­ónu­veirunnar gilda mjög strangar reglur um komur til lands­ins. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði Ted Hui að áströlsk stjórn­völd hefði veitt sér und­an­þágu frá fjöl­mörgum reglum varð­andi það að kom­ast inn í landið. Og þau hefðu enn­fremur aðstoðað sig við að finna flug til lands­ins. Hann hefði verið í flug­vél með fjölda Ástrala á leið heim. Ted Hui sagði að hann hefði fengið svo­kall­aða ferða­manna­á­ritun sem gildir í eitt ár.

Kínverjar hafa í hótunum

Carrie Lam, æðsti stjórn­andi Hong Kong hefur harð­lega gagn­rýnt Ted Hui fyrir að flýja til Dan­merkur. Örygg­is­stofnun Hong Kong (hlut­verk hennar er að sjá til þess að lögum sé fylgt) upp­lýsti í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að í und­ir­bún­ingi væri að hefja saka­mála­rann­sókn gegn Katarina Ammitzbøll og Uffe Elbæk og hugs­an­lega tveimur öðrum Dönum, Anders Storgaard og Thomas Rohden sem einnig hefðu aðstoðað Ted Hui. Tals­maður Örygg­is­stofn­un­ar­innar sagði í áður­nefndu við­tali að sam­kvæmt gild­andi lögum í Hong Kong væri ólög­legt að aðstoða ein­stak­linga sem grun­aðir eru um afbrot, við að flýja. Óljóst er hvort yfir­völd í Hong Kong gefa út alþjóð­lega hand­töku­skipun á dönsku fjór­menn­ing­ana. Dag­blaðið Jót­land­s­póst­ur­inn greindi frá því í síð­ustu viku að Danska leyni­þjón­ustan, PET, hefði varað fjór­menn­ing­ana við að ferð­ast til landa þar sem þau yrðu hugs­an­lega hand­tekin og fram­seld til Kína.

Sýnir hið rétta andlit Kína

Af fjór­menn­ing­unum sem aðstoð­uðu Ted Hui er Uffe Elbæk þekkt­astur. Hann hefur setið á þingi frá árinu 2011 og var um tíma menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í stjórn Helle Thorning-Schmidt. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken fyrir skömmu sagð­ist Uffe Elbæk ekki vita hversu alvar­legar hót­anir Kínverja í sinn garð væru. „Þær sýna hins vegar hið rétta and­lit stjórn­valda í Kína, sem vilja þagga niður í öllum sem and­mæla skoð­unum þeirra og ákvörð­unum.”

Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur seg­ist undr­andi á yfir­lýs­ingum Kínverja um hugs­an­legar hand­tökur og dóms­mál. Danskir þing­menn, líkt og aðrir Danir, séu frjálsir að því að hitta og ræða við þá sem þeim sýn­ist. Utan­rík­is­ráð­herr­ann sagði enn­fremur að ef til þess komi að Kín­verjar gefi út hand­töku­skip­anir á hendur dönsku fjór­menn­ing­unum yrði því mætt af fullri hörku. Hann bætti því við að hugs­an­legri fram­sals­beiðni frá Kín­verjum yrði ekki ansað. Allir flokkar á danska Þinginu, Fol­ket­inget, hafa lýst yfir stuðn­ingi við þing­menn­ina tvo, þau Katarina Ammitzbøll og Uffe Elbæk.

Kín­verjar hafa ekki tjáð sig um ummæli danska utan­rík­is­ráð­herr­ans og þing­manna, en þegar Evr­ópu­þingið lýsti yfir stuðn­ingi við þing­menn­ina tvo svar­aði kín­verska Örygg­is­stofn­unin fullum hálsi. Þar sagði meðal ann­ars að heima­stjórnin í Hong Kong líði ekki aðgerðir sem vinni gegn hags­munum sam­fé­lags­ins. Tals­maður kín­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að fram­koma dönsku þing­mann­anna gætu skaðað orðstír Dan­merkur.

Anders Storgaarad, einn fjór­menn­ing­anna sem aðstoð­uðu Ted Hui við flótt­ann sagði ekki nóg að danskir þing­menn lýstu yfir stuðn­ingi, utan­rík­is­ráð­herr­ann þyrfti að kalla kín­verska sendi­herr­ann „á teppið” og gera honum grein fyrir að hug­myndir og yfir­lýs­ingar um alþjóð­legar hand­töku­skip­anir á hendur dönskum stjórn­mála­mönnum væru ólíð­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár