Stóri bróðir má fylgjast með

Hvað má hið opin­bera í Danmörku ganga langt í eft­ir­liti sínu með borg­ur­unum? Um þetta var tek­ist á í rétt­ar­höldum sem staðið hafa í þrjú ár en nið­ur­stöð­unnar hafa margir beðið með óþreyju. Hún liggur nú fyrir, dómur var kveð­inn upp sl. mið­viku­dag.

Stóri bróðir
Stóri bróðir Mynd: Skjáskot úr myndinni 1984 sem kom út árið 1984.

Árið 2007 tók gildi ný til­skipun í Danmörku. Með henni var sú skylda lögð á herðar síma- og net­þjón­ustu­fyr­ir­tækja að varð­veita, í eitt ár, upp­lýs­ingar um sím­hring­ingar, sím­töl og sam­skipti við­skipta­vina sinna. Enn­fremur í gegnum hvaða símamastur sam­skiptin færu.

Til­skip­unin í Danmörku tengd­ist nýtil­kominni til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins í kjöl­far hryðju­verka í Lundúnum og Madrid. Til­skip­unin þótti ganga mjög langt varð­andi heim­ildir til að fylgj­ast með borg­ur­unum. Peter Hustinx, þáver­andi yfir­maður gagna­verndar hjá ESB, sagði til­skip­un­ina veita stjórn­völdum rýmri heim­ildir, en áður hefðu þekkst hjá sam­band­inu, til að fylgj­ast með borg­ur­unum.

Óljós mörk

Áður­nefndur Peter Hustinx var ekki einn um þá skoðun að heim­ild­irnar til að fylgj­ast með borg­ur­unum væru rúmar. Fjöl­margir, þar á meðal lög­fræð­ingar og mann­rétt­inda­sam­tök, bentu á að með þess­ari til­skipun væri stjórn­völdum færð óeðli­lega mikil völd. Sömu­leiðis væri margt óljóst varð­andi notkun stjórn­valda á þeim gögnum og mörgum spurn­ingum ósvarað.

Í til­skip­un­inni var ekki til­greint hvenær heim­ilt væri að nota upp­lýs­ingar. Er það ein­göngu þegar brýn nauð­syn krefur, til dæmis þegar öryggi lands­ins og borg­ar­anna er í húfi? Má lög­reglan nota gögnin til að kom­ast að ferðum manns sem grun­aður er um að hafa stolið reið­hjóli, eða brot­ist inn í geymslu og stolið ein­hverju smá­legu?

Þrír dómar

Þótt margir hefðu gagn­rýnt til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins og fljót­lega hefðu heyrst raddir um að hún bryti í bága við mann­rétt­inda­lög varð nokkur bið á að kærur vegna hennar bær­ust Evr­ópu­dóm­stólnum. Til þessa dags hefur dóm­stóll­inn kveðið upp þrjá dóma varð­andi til­skip­un­ina. Sá fyrsti var kveð­inn upp árið 2014. Dóm­stól­inn úrskurð­aði til­skip­un­ina ólög­lega, sagði hana alvar­legt inn­grip í einka­líf borg­ar­anna. Nefndi sömu­leiðis að í til­skip­un­inni væri ekki tekið fram að það mætti aðeins not­ast við upp­lýs­ingar síma­fyr­ir­tækj­anna þegar brýna nauð­syn bæri til.

Dönsk stjórn­völd töldu þennan dóm hafa lítil áhrif á fram­kvæmd­ina í Danmörku. Einungis yrði að breyta dönskum sér­reglum sem settar höfðu verið um eft­ir­lit með inter­net­inu. Allt annað stæð­ist til­skip­un­ina, að mati danska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Tele2/Watson dómurinn

Í des­em­ber árið 2016 kvað Evr­ópu­dóm­stóll­inn upp annan dóm. Sá hefur gengið undir nafn­inu Tele2/Watson dóm­ur­inn. Þar var því slegið föstu að tak­marka­laust eft­ir­lit, án ákveð­ins til­gangs væri ólög­legt. Søren Pape Poulsen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra Dana, sagði á fundi þing­nefndar, nokkrum mán­uðum síðar, að breyta þyrfti dönskum reglum. Nánari útfærsla á þeim breyt­ingum lá ekki fyrir og ráð­herr­ann sagði að nú yrðu teknar upp við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, og síma­fyr­ir­tækin, en not­ast yrði við gömlu regl­urnar þangað til nýjar reglur Evr­ópu­sam­bands­ins, sem væru vænt­an­legar, myndu líta dags­ins ljós.

Nýju ESB regl­urnar birt­ust aldrei en í danska dóms­mála­ráðu­neyt­inu var brátt farið að vísa til þess að nýir dómar væru vænt­an­legir, frá Evr­ópu­dóm­stólnum, og þarmeð yrði óvissu um fram­kvæmd til­skip­un­ar­innar vænt­an­lega eytt.

Þriðji dómurinn

Í októ­ber 2020 kvað Evr­ópu­dóm­stóll­inn upp dóm, þann þriðja vegna til­skip­un­ar­innar sem, vel að merkja, var þá fimmtán ára gömul. Í þeim dómi var slegið úr og í, að mati sér­fræð­inga dönsku fjöl­miðl­anna. Þar var víð­tækt og óheft eft­ir­lit, eins og það sem Danir höfðu heim­ilað, dæmt ólög­legt. En, hins­vegar voru jafn­framt í dómnum til­greind fjöl­mörg dæmi þar sem beita mætti víð­tæku eft­ir­liti. Einkum og sér­ílagi þegar um væri að ræða ógnun við þjóðar­ör­yggi.

Þetta var himna­send­ing í hendur danskra stjórn­valda (orða­lag stjórn­mála­skýranda Berl­ingske) og danska dóms­mála­ráðu­neytið benti strax á að Danir hefðu árum saman búið við mikla hryðju­verkaógn. Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi jafn­framt að ýmsu þyrfti að breyta, eft­ir­lit með venju­legri glæp­a­starf­semi, eins og það var orðað, félli til dæmis ekki undir skil­grein­ing­una um ógnun við þjóðar­ör­yggi.

Eitt í orði, annað á borði

Þótt dóms­mála­ráð­herr­ann hafi lýst yfir að síma­fyr­ir­tækj­unum sé ekki lengur skylt, og í raun óheim­ilt, að varð­veita allar upp­lýs­ingar um notkun við­skipta­vina mælti hann samt sem áður með því að fyr­ir­tækin héldu óbreyttu verk­lagi, sem sé að geyma allar upp­lýs­ingar, þangað til nýjar verk­lags­reglur líti dags­ins ljós.

Andstæðingar eftirlits höfðuðu mál

Samtök sem barist hafa gegn skrán­ingu síma­notk­unar (For­en­ingen imod Ulovlig Logning) höfð­uðu árið 2018 mál gegn danska dóms­mála­ráðu­neyt­inu í því skyni að fá ákvörð­unum stjórn­valda um skrán­ingu og síma­notkun ein­stak­linga hnekkt. Samtökin höfðu safnað fé til að standa straum af mála­rekstr­inum. Julie Bak- Larsen lög­maður sam­tak­anna sagði í við­tölum við fjöl­miðla að nauð­syn­legt væri að fá á hreint hvaða lög og reglur gildi.

Dóms­mála­ráð­herrar, bæði núver­andi og fyrr­ver­andi, hafi við­ur­kennt að Danir fylgi ekki úrskurðum Evr­ópu­dóm­stóls­ins en drepi mál­inu á dreif. Lög­mað­ur­inn sagði að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að bregð­ast við árið 2014, þegar fyrsti dóm­ur­inn kom. Það gerði hann ekki. Sama var upp á ten­ingnum árið 2016 og 2020.

Ríkið vann í undirrétti

Julie Bak- Larsen sagði það óboð­legt að mörg ár tæki að fá nið­ur­stöðu í dóms­máli. Skömmu eftir dóms­upp­kvaðn­ingu Evr­ópu­dóm­stóls­ins í októ­ber í fyrra var til­kynnt að Eystri-Lands­réttur myndi 30. júní kveða upp úrskurð sinn í máli Samtaka gegn skrán­ingu síma­notk­unar gegn dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Það gekk eftir. Þá voru liðin þrjú ár og mán­uði betur síðan málið var höfðað.

Skemmst er frá því að segja að nið­ur­staðan var rík­inu í hag. Í nið­ur­stöð­unni (120 blað­síðum) kemur meðal ann­ars fram að ekki sé hefð fyrir því að úrskurða til­skipun (bek­end­t­gørelse) ógilda.

Lögmaður stefn­end­anna sagði dóms­nið­ur­stöð­una von­brigði. Helene Qvist- Petersen lög­maður hjá ráð­gjafa­stof­unni Justita sagði miður að dóm­stóll­inn hefði ekki talað skýrt. „Það er afleitt að hafa reglur og lög sem gilda, en er ekki fylgt í reynd.“

Samtökin gegn ólög­legri skrán­ingu síma­notk­unar hafa lýst yfir að þau muni áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar. Hvort heim­ild fæst til þess að fá málið tekið fyrir þar hefur ekki verið til­kynnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár