Landsvirkjun afhendir ekki arðsemismat

Lands­virkjun segir að þrátt fyrir að áform­aðar stækk­anir virkj­ana á Þjórs­ár­svæði muni ekki skila meiri orku séu fram­kvæmd­irnar arð­bærar. Fyr­ir­tækið vill hins vegar ekki afhenda Kjarn­anum arð­sem­is­út­reikn­ing­ana.

Landsvirkjun áformar að stækka þrjár virkjanir á Þjórsár-Tungnaársvæðinu: Sigölduvirkjun, Vatnsfellsvirkjun og Hrauneyjafossvirkjun.
Lands­virkjun áformar að stækka þrjár virkj­anir á Þjórsár-Tungna­ár­svæð­inu: Sig­öldu­virkjun, Vatns­fells­virkjun og Hraun­eyja­foss­virkjun.

„Af sam­keppn­is­á­stæðum afhendum við ekki arð­sem­is­út­reikn­inga ein­stakra verk­efna,“ segir í svari Ragn­hildar Sverr­is­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­virkj­unar, við beiðni Kjarnans um að fá afhent arð­sem­is­mat það sem liggur fyrir vegna áform­aðra stækk­ana þriggja virkj­ana á Þjórs­ár­svæð­inu. Lands­virkjun hefur sagt að fram­kvæmd­irnar verði arð­bærar þrátt fyrir að stækkun Vatns­fells-, Sigöldu- og Hraun­eyja­foss­virkj­ana leiði ekki til auk­innar raf­orku­fram­leiðslu. Til að svo megi verða þurfi að renna meira vatn í gegnum þær. Þrennt getur upp­fyllt þá þörf: Bráðnun jökla, sem er fyr­ir­séð vegna lofts­lags­breyt­inga, meiri úrkoma og ný veita.

[adspot]

Þetta er ekki endi­lega það sem allir áttu von á er Lands­virkjun kynnti hug­myndir sínar um að stækka virkj­an­irnar þrjár. Því var fagnað að bæta ætti vinnslu­getu virkj­ana sem fyrir væru í við­kvæmri nátt­úru Íslands í stað þess að byggja nýjar. Að með stækkun virkj­ana væri hægt að svara auk­inni orku­þörf án þess að brjóta nýtt land, eins og stundum er sagt. Án þess að stífla fleiri ár. Minnka rennsli fleiri fossa. En sú er ekki raunin – að óbreyttu.

Lögum breytt til að stækka án rammaáætlunar

Til að liðka fyrir stækk­unum virkj­ana var lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun breytt á loka­metrum þings­ins og þurfa slíkar fram­kvæmdir ekki lengur að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar, svo fram­ar­lega sem þær feli ekki í sér rask á órösk­uðu landi. „Með því að und­an­skilja stækk­anir á virkj­unum sem ein­göngu hafa áhrif á það land­svæði sem þegar er búið að taka ákvörðun um að heim­ila nýt­ingu á verður hægt að hraða fram­kvæmdum til að auka afkasta­getu þeirra virkj­ana sem þegar eru í rekstri,“ sagði í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

[links]Samtals hyggst Lands­virkjun auka upp­sett afl virkj­an­anna þriggja um 210 MW en áætlað er að sam­an­lögð orku­vinnslu­geta myndi með þessu aðeins aukast um 25–42 gíga­vatt­stundir (GWst) á ári. „Athygli vekur að aukn­ing í orku­vinnslu­getu vatns­afls­virkj­an­anna þriggja er lítil miðað við hve upp­sett afl eykst mikið,“ sagði í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. Í venju­legu árferði hefði vatns­afls­virkjun með upp­sett afl 210 MW orku­vinnslu­getu upp á um 1300 GWst á ári. „En því er ekki að heilsa hvað þessar áform­uðu stækk­anir Lands­virkj­unar áhrærir.“

Og þessi stað­reynd vakti athygli ann­arra en höf­unda frum­varps­ins. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið lögð­ust yfir fyr­ir­ætl­anir Lands­virkj­unar og telja að stækk­an­irnar séu hluti af stærri áformum – áformum um nýja virkjun á vatna­sviði Þjórsár, skammt frá mörkum friðlands­ins í Þjórs­ár­verum. Lands­virkjun ætli með stækk­un­unum að fara „bak­dyra­megin í Kjalöldu­veitu“. Stækk­an­irnar séu „óarð­bærar og gagns­lausar“ nema að fyr­ir­tækið fari einnig í þá fram­kvæmd. „Án þess að fá við­bót­ar­vatn úr Þjórsá yrði við­bót­arraforku­fram­leiðsla alltof lítil til að bera sig fjár­hags­lega,“ sögðu sam­tökin Nátt­úru­grið í frétta­til­kynn­ingu nýverið.

Kostnaður 6-8 sinnum meiri en mögulegar tekjur

Máli sínu til stuðn­ings vís­uðu þau í arð­sem­is­mat sem Sigurður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Íslands, vann að beiðni þeirra. Hann mat núvirtar fram­tíð­ar­tekjur af þeim á bil­inu 600–2.500 millj­ónir króna miðað við hag­rænan afskrift­ar­tíma upp á 25 ár. Til sam­an­burðar yrði kostn­aður við fram­kvæmd­irnar sam­an­lagt vart undir 15–20 millj­örðum, eða um 5–7 millj­arðar króna á hverja stækkun. Kostn­aður yrði því um 6–8 sinnum meiri en mögu­legar tekjur og væri þar þá ekki tekið til­lit til vaxta­kostn­aðar eða orku­sölu­taps meðan á fram­kvæmdum stæði.

Lands­virkjun hefur ítrekað hafnað því að Kjalöldu­veitu þurfi til svo að stækk­an­irnar verði arð­samar. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins neita því hins vegar ekki að sú virkjun myndi bæta nýt­ingu vatns á svæð­inu, „og þar með arð­semi bæði núver­andi virkj­ana og stækk­ana á þeim,“ líkt og fram kom í minn­is­blaði Lands­virkj­unar sem sent var umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis í byrjun mán­að­ar­ins er frum­varp um laga­breyt­ing­una var þar til umfjöll­unar. Engu að síður væri Kjalöldu­veita „ekki for­senda slíkra stækk­ana“.

Orkuskipti, vindorkan og bráðnun jökla

Ástæða þess að Lands­virkjun er að skoða að stækka vatns­afls­virkj­anir á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu er „að þörf er á því að auka afl í kerfi fyr­ir­tæk­is­ins og þar með sveigj­an­leika til að mæta breyti­legri eft­ir­spurn,“ skrif­aði Kristín Linda Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, í minn­is­blað­inu. Nú væri staðan sú að afl­þörf á Suð­vest­ur­landi væri hærri en vinnslu­geta sem valdi auk­inni áhættu í raf­orku­af­hend­ingu. „Orku­skipti, fjöl­breytt­ari raf­orku­not­endur en stór­iðja, og fram­tíð­ar­upp­bygg­ing vinds kalla á meiri sveigj­an­leika í raf­orku­vinnslu. Jafn­framt til að nýta jök­ul­bráðnun af völdum hnatt­rænnar hlýn­unar í núver­andi virkj­unum þá þarf að auka afl þeirra.“

Afl í raun uppurið í kerfinu

Á nýliðnum vetri voru vinnslu­met ítrekað slegin í kerfi Lands­virkj­unar þegar vinnslan fór í fyrsta sinn yfir 1900 MW „og við þær aðstæður var afl í raun uppurið í kerf­inu,“ skrif­aði Gunnar Guðni Tómasson, fram­kvæmda­stjóri vatns­afls hjá Lands­virkjun, í aðsendri grein í Kjarn­anum nýverið. „Hætt er við að á kom­andi vetri geti orðið aflskortur í kerf­inu sem leitt getur til þess að grípa þurfi til skerð­inga hjá við­skipta­vinum Lands­virkj­unar jafn­vel þótt nægi­legt vatn verði í miðl­un­ar­lónum.“

Það er m.a. til að bregð­ast við þessum aðstæðum sem Lands­virkjun er að skoða mögu­leika á stækkun virkj­ana á Þjórs­ár­svæði, skrifar Gunnar Guðni. Ljóst er hins vegar að virkj­an­irnar verða ekki stækk­aðar, ef til fram­kvæmda kemur yfir höfuð, fyrr en að umhverf­is­mati þeirra lýkur. Það ferli getur tekið fleiri mán­uði.

Umframorka „getur verið til staðar“

Kostn­að­ar­verð afl­setn­ingar tekur mið af kostn­aði og ábata Lands­virkj­unar af fram­kvæmd­inni, útskýrir Kristín Linda í fyrr­greindu minn­is­blaði sem hún rit­aði eftir að umhverfis- og sam­göngu­nefnd óskaði eftir skýr­ari svörum um for­sendur þess að ráð­ast þyrfti í stækk­an­irnar. Meg­in­kostn­að­ar­liðir eru fjár­fest­ing í upp­hafi, skrifar hún, fjár­magns­kostn­aður, skattar og rekstr­ar­kostn­aður á líf­tíma eign­ar­innar. „Til ábata telst sala á afli til að mæta álagstoppum og til að jafna vind­orku­vinnslu, en einnig getur verið til staðar umframorka sem sam­eig­in­lega mynda tekjur í verk­efn­inu.“

Kostn­aður og ábati séu svo færð á núvirði með ávöxt­un­ar­kröfu Lands­virkj­unar til að reikna út kostn­að­ar­verðið. „Þau stækk­unar og aflaukn­ing­ar­verk­efni sem Lands­virkjun ræðst í þurfa hverju sinni að skila arð­semi í sam­ræmi við kröfur eig­anda Lands­virkj­unar,“ heldur hún áfram, og ítrekar að end­ingu að kostn­að­ar­verð fyrir allar stækk­anir og aflaukn­ingar í virkj­unum á Þjórs­ár­svæði séu skoð­aðar „óháð Kjalöldu­veitu“.

Einn nefnd­ar­manna, Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, taldi minn­is­blaðið ekki stað­festa arð­bærni stækk­an­anna sem sjálf­stæðra fram­kvæmda. Álit meiri­hluta nefnd­ar­innar var annað. Með hlið­sjón af skýr­ingum Lands­virkj­unar yrðu þær arð­bærar „einar og sér“ og án Kjalöldu­veitu.

Lítil viðbótar orka „skiptir litlu máli“

Arðsemi stækk­un­ar­verk­efna byggir ein­göngu á því afli eða sveigj­an­leika sem þau bæta við kerfið og verð­lagn­ing á mark­aði verður að taka mið af því, skrif­aði Gunnar Guðni í sinni grein. „Sú litla orku­vinnsla sem bæt­ist við í kerf­inu sam­fara þessum stækk­unum skiptir litlu máli í þessu sam­bandi og hún er ekki for­senda fyrir því að ráð­ast í slík verk­efni. Það er því mis­skiln­ingur að þessi verk­efni séu ekki arð­bær án auk­ins rennslis til virkj­an­anna. Þvert á móti þurfa þau að vera arð­söm án auk­ins rennslis til virkj­an­anna og í þau verður ekki ráð­ist án þess að sú arð­semi sé tryggð.“

[adspot]

Ef Lands­virkjun á að hafa veru­legar tekjur af stækk­un­unum verður verð­lagn­ing á raf­magni að breyt­ast, skrifar Sigurður, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar, í áliti því sem hann gaf Nátt­úru­griðum á arð­semi stækk­an­anna. Erlendis sé raf­magns­verð síbreyti­legt – hæst þegar eft­ir­spurnin er mest. En slíku er ekki að heilsa hér á landi. Verð­lagn­ingin er, að sögn Sigurðar, „frum­stæð­ari“ en í grann­lönd­unum. „Heild­sölu­verð er treg­breyti­legt og varla hægt að segja að það taki mið af fram­boði og eft­ir­spurn. Meg­in­á­stæðan er yfir­burða­staða Lands­virkj­unar, sem í raun er ein­ráð á heild­sölu­mark­aði.“

Lög gera ráð fyrir að Landsnet reki markað með raf­magn. Slíkur mark­aður hefur að sögn Sigurðar nokkrum sinnum verið boð­aður, enn ekk­ert hefur enn orðið úr þeim ráða­gerðum.

Umhverfismat hafið

„Með þess­ari aflaukn­ingu eykst orku­vinnslu­geta stöðv­ar­innar aðeins lít­il­lega nema að til komi meira rennsli, til dæmis með auk­inni bráðnun jökla eða auk­inni úrkomu,“ segir Lands­virkjun í nýfram­lag­aðri mats­á­ætlun vegna stækk­unar Sig­öldu­virkj­unar um allt að 65 MW. Þar með er hafið umhverf­is­mat á stækkun fyrstu virkj­un­ar­innar af þremur.

„Ákvörðun um hvort ráð­ist verði í þessar fram­kvæmdir verður ekki tekin fyrr en mat á umhverf­is­á­hrifum liggur fyrir og fer að sjá fyrir end­ann á leyf­is­ferlum, sem getur tekið drjúgan tíma eins og dæmin sanna,“ segir í svari Ragn­hildar, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­virkj­unar, við beiðni Kjarnans um að fá arð­sem­is­út­reikn­inga stækk­unar­á­for­manna afhenta. „Verði ákveðið að ráð­ast í fram­kvæmdir þá á enn eftir að leita til­boða í verk­þætti og svo fram­vegis.“

Og af sam­keppn­is­á­stæðum afhenti Lands­virkjun ekki arð­sem­is­út­reikn­inga ein­stakra verk­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár