Almenna leigufélagið: Aðlögum leigusamninga að markaðsverði

Almenna leigu­fé­lagið skýrir hækkun leigu­verðs á eignum þess að það hafi verið langt undir mark­aðs­verði og að sömu­leiðis verði að taka mið að fast­eigna­verði. Formaður VR hefur gagn­rýnt þessar hækk­anir.

„Síðan við tókum yfir höfum við því þurft að ganga í það að aðlaga þessa leigu­samn­inga að mark­aðs­verði og höfum við verið að gera það í skrefum til að leigj­endur fái svig­rúm til aðlög­unar,“ segir í svari Almenna leigu­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gagn­rýnir þessar hækk­anir í facebook-færslu í dag. Þar segir hann að um sé að ræða 50 til 70 pró­sent hækk­anir á rúmum tveimur árum. „Mörg til­felli eru af ein­stak­lingum og tekju­lágum fjöl­skyldum sem eru að missa það litla sem eftir er af ráð­stöf­un­ar­tekjum til að brauð­fæða sig og sína og eru margir skilj­an­lega í áfalli og standa ráð­þrota gagn­vart þessu. Val­kost­ur­inn er að taka þessu eða enda á göt­unni,“ segir hann í færsl­unni.

Almenna leigu­fé­lagið tók við rekstri tveggja stórra eigna­safna árið 2017 sem sam­sett voru af eignum sem voru að stærstum hluta í eigu Íbúð­ar­lána­sjóðs. Annars vegar leigu­fé­lagið Klett, sem var í eigu ÍLS, og hins vegar félagið BK eignir sem var sam­an­sett af nokkrum eigna­söfnum frá ÍLS, segir í svari Almenna leigu­fé­lags­ins.

Í svar­inu segir jafn­framt að í mörgum til­fellum sé leigu­verð búið að standa óbreytt frá árunum 2009 til 2010 og hafi það því verið mjög langt undir mark­aðs­verði. Félagið hafi verið að greiða háar fjár­hæðir með þessum eignum vegna rekstrar- og fjár­magns­kostn­aðar.

Leiguverð verði að taka mið af fasteignaverði

Segir enn fremur í svar­inu að þau hafi skiln­ing á að það geti verið þungt fyrir leigj­endur þegar leigu­verð hækkar, en leigu­verð taki auð­vitað fyrst og fremst mið af fast­eigna­verði, sem hafi hækkað mjög und­an­farin ár.

„Leigu­verð þarf svo auð­vitað að standa straum af fast­eigna­gjöldum og önnur opin­berum gjöldum, sem hafa hækkað gríð­ar­lega und­an­farin ár með hækk­andi fast­eigna­mati. Viðhald fast­eigna vegur mjög þungt í kostn­aði og svo erum við auð­vitað að reka skrif­stofu með öllu því sem fylgir, erum með fjölda manns í vinnu við að sinna fast­eign­unum og leigj­endum okkar og bjóðum upp á 24/7 sím­svörun og neyð­ar­þjón­ustu fyrir við­skipta­vini okkar. Langstærsti lið­ur­inn í rekstri allra fast­eigna­fé­laga er svo fjár­magns­kostn­aður sem er gríð­ar­lega hár hér á landi vegna vaxta­stigs­ins.

Einka­rekin leigu­fé­lög eru alls staðar í hinum vest­ræna heimi hluti af heil­brigðum og fjöl­breyttum hús­næð­is­mark­aði þar sem fólk hefur val í búsetu­málum. Til þess að við getum tekið þátt í því þarf rekstur þess­ara félaga að standa undir sér.

Í dag skipt­ist leigu­mark­að­ur­inn þannig að tveir þriðju hlutar allra leigu­í­búða eru í eigu ein­stak­linga.

Við fáum mjög oft til okkar fólk sem hefur verið að leigja af slíkum aðilum og hafa lent í vand­ræðum varð­andi við­hald, hefur lent í því að fá ekki trygg­ing­arfé sitt greitt til baka að leigu­tíma loknum, hefur þurft að flytja oft vegna þess að leigu­í­búðir þeirra eru seldar,“ segir í svari Almenna leigu­fé­lags­ins.

Kannast ekki við málningarvinnugjald

Ragnar gagn­rýndi enn fremur að fólk sem hefur fengið aðra íbúð innan félags­ins sé rukkað um rúm­lega 120.000 krónur í flutn­ings­gjald og í flestum til­fellum sé kraf­ist hærri trygg­inga í nýjum samn­ingum.

Í svari Almenna leigu­fé­lags­ins segir að flutn­ings­gjald sé kostn­aður við flutn­ing milli íbúða innan félags­ins. Það séu mjög margir leigj­endur hjá þeim sem nýta sér þessa þjón­ustu en það fylgi henni mik­ill kostn­aður fyrir félagið. „Önnur íbúðin stendur alltaf ótekju­ber­andi í ákveð­inn tíma meðan flutn­ingur á sér stað, auk þess sem stand­setn­ingar- og umsýslu­kostn­aður er tölvu­verður. Þetta er gjald sem er alþekkt hjá leigu­fé­lögum erlendis og hér­lendis. Til dæmis rukk­aði Leigu­fé­lagið Klettur, sem var í eigu Íbúð­ar­lána­sjóðs, einn auka mánuð fyrir þessa þjón­ustu, en við kusum að fara þessa leið að hafa þetta fast gjald, kr. 120.000,- til að halda kostn­aði í lág­marki.“

Í þriðja lagi nefnir Ragnar að reynt sé að lauma inn í samn­inga að leigj­andi greiði 95.000 krónur fyrir máln­ing­ar­vinnu eða skili af sér nýmál­uðu ef leigu­samn­ingi er sagt upp. Almenna leigu­fé­lagið kann­ast ekki við slíkt máln­ing­ar­vinnu­gjald. „Leigj­andi greiðir fyrir máln­ingu ef hann hefur neglt eða borað í veggi, en þó ekki ef 5 ár eru liðin frá upp­hafi leigu­tíma þar sem þá er kom­inn eðli­legur tími á heil­máln­ingu íbúðar. Þetta á að sjálf­sögðu ein­ungis við ef íbú­inn hefur fengið íbúð­ina afhenta nýmál­aða,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár