Kaupþing að selja tíu prósent hlut í Arion banka

Stærsti hlut­hafi Arion banka hefur ákveðið að selja um tíu pró­senta hlut í bank­anum. Virði hlut­ar­ins ætti að vera um 15 millj­arðar króna.

Kaupþing ehf. , sem á 32,67 pró­sent hlut í Arion banka, hefur sett tíu pró­senta hlut í bank­anum í sölu. Virði hlut­ar­ins miðað við skráð gengi bréfa Arion banka í Kauphöll Íslands, er um 15 millj­arðar króna.

Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins. Þar segir að banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn Citi, sænska verð­bréfa­fyr­ir­tækið Carnegie og Fossar mark­aðir eru ráð­gjafar Kaup­þings við söl­una.

Arion banki var skráður á markað í fyrra. Hann varð þá fyrsti íslenski bank­inn sem skráður var á hluta­bréfa­markað eftir banka­hrunið. Áður en að af skrán­ing­unni varð nýttu þeir erlendu sjóðir sem eru stærstu eig­endur Kaup­þings sér for­kaups­rétt á 13 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í bank­anum og greiddu fyrir 23 millj­arða króna.

Tilkynnt var um hluta­fjár­út­boð vegna tví­skrán­ingar Arion banka á Íslandi og í Svíþjóð um miðjan maí 2018. Í því var um 29 pró­sent hlutur í Arion banka seldur til nýrra fjár­festa. Bankinn var svo skráður á mark­aði í júní.

Í dag er eign­ar­hald Arion banka með þeim hætti að Kaupþing ehf. er enn stærsti eig­and­inn með 32,67 pró­sent. Þá á Arion banki 9,31 pró­sent hlut í sjálfum sér. Vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital (tíu pró­sent), Attestor Capital (7,15 pró­sent) og Och-Ziff Capital (6,58 pró­sent) koma þar næst. Stærsti inn­lendi fjár­festir­inn í bank­anum er Gildi líf­eyr­is­sjóður með 2,52 pró­sent hlut.

Hagn­aður sam­stæðu Arion banka á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 nam 1,6 millj­arði króna sam­an­borið við 4,1 millj­arðs króna tap á sama tíma­bili 2017, og var hagn­að­ur­inn á árinu 2018 7,8 millj­arðar króna. Á árinu 2017 var hagn­að­ur­inn hins vegar 14,4 millj­arð­ar. 

Arð­semi eigin fjár var 3,2 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 sam­an­borið við 7,3 pró­sent á sama tíma­bili árið 2017, en það telst fremur lág arð­semi í banka­rekstri. Arð­semi var 3,7 pró­sent sam­an­borið við 6,6 pró­sent arð­semi á árinu 2017. 

Eigið fé Arion banka var 200,9 millj­arðar í lok árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár