TISA-viðræðum gæti lokið á næsta ári

Líkur eru á að TISA-samn­ing­ur­inn geti verið til­bú­inn til und­ir­rit­unar á næsta ári. Heim­ildir Kjarnans herma að búið sé að fast­setja við­ræðu­lotur út þetta ár en að ólík­legt sé talið að samn­ings­gerðin klárist á þeim tíma. Næsta við­ræðu­lota er fyr­ir­huguð í apríl.

Þeir starfs­menn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem sjá um við­ræð­urnar fyrir hönd Íslands mættu á fund utan­rík­is­mála­nefndar síð­ast­liðin þriðju­dag til að fara yfir stöðu TISA-við­ræðn­anna. Þar var farið yfir mark­mið Íslands í þeim og hver næstu skref yrðu.

TISA stendur fyrir Trade in Services Agreement. Við­ræð­urnar hafa staðið yfir frá því á vor­mán­uðum 2013. Alls taka 23 aðilar þátt í þeim (Evr­ópu­sam­bandið, sem kemur fram fyrir sín 28 aðild­ar­lönd, er talið sem einn aðili í við­ræð­unum), þeirra á meðal er Ísland. Því eru alls 50 lönd þátt­tak­endur í við­ræð­unum.

Við­ræð­urnar eru marg­hliða og snú­ast um að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Yfirlýst mark­mið þeirra er að fækka hindr­unum í vegi fyr­ir­tækja sem starfa á vett­vangi þjón­ustu­við­skipta og auka gegn­sæi í milli­ríkja­við­skiptum með þjón­ustu. Samn­ings­við­ræð­urnar skipta Ísland miklu máli enda spanna þátt­töku­ríkin helstu mark­aðs­svæði íslenskra fyr­ir­tækja.

Einungis einn almennur alþjóð­legur samn­ingur um þjón­ustu­við­skipti hefur verið gerður í sög­unni. Hann gengur undir nafn­inu GATS og gekk í gildi árið 1996. Síðan hefur ekki náðst að semja um nýja lausn sem tekur til­lit til þeirra breyt­inga sem orðið hafa á heim­inum und­an­farna tæpa tvo ára­tugi.

Stimplað trúnaðarmál


Mikil tor­tryggni er í garð samn­ings­ins í ýmsum kreðsum, sér­stak­lega vegna þeirrar miklu leyndar sem hvílt hefur yfir við­ræð­unum hingað til. Í júní 2014 birti Kjarninn og ýmsir fjöl­miðlar víða um heim, í sam­starfi við Wikileaks, fyrstu leyniskjölin sem láku úr TISA-við­ræð­unum.

Í þeim kom fram að vilji væri til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.

wiki
wiki

Á for­síðu skjal­anna sem Wikileaks lét Kjarnann hafa sagði meðal ann­ars að ekki mætti aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Við­ræð­urnar fara líka fram utan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) og lúta því ekki þeim reglum sem gilda um þá stofnun. Ljóst er á skjöl­unum frá bæði Wikileaks og nú AWP að vilji er til þess að auka frelsi í að selja þjón­ustu milli landa all­veru­lega.

Það er þó ekki vilji til þess á meðal þeirra sem fara með við­ræð­urnar fyrir hönd Íslands að það hvíli nein sér­stök leynd yfir þeim.

Tyrkir leggja fram tillögu


Í byrjun febr­úar greindi Kjarninn síðan frá því að til­laga hafi verið lögð fram um við­auka um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Samkvæmt til­lög­unni eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­unum. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagði fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Vert er að taka fram að öllum löndum er frjálst að leggja fram til­lögur um við­auka.Ísland og Noregur hafa til að mynda í hyggju að leggja fram til­lögu um við­auka um orku­þjón­ustu, sem löndin tvö standa mjög fram­ar­lega í að veita.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var tekið afar dræmt í til­lögu Tyrkja þegar hún var lögð fram í við­ræðu­lot­unum í sept­em­ber og des­em­ber á síð­asta ári.

Vöktu mikla athygli


Fréttir af til­lög­unni vöktu samt sem áður heims­at­hygli. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sendi meðal ann­ars frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem hún sagði mjög skýrt að heil­brigð­is­kerfi aðild­ar­ríkja verði ekki einka­vædd af Evr­ópu­sam­band­inu né í við­skipta­samn­ingum á borð við TISA, sem sam­bandið gerir fyrir hönd aðild­ar­ríkja sinna.

[caption id="attachment_19235" align="alignnone" width="624"] Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra.[/caption]

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra.

Málið olli líka póli­tísku fjaðrafoki á Íslandi. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra var spurður um það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn. Hann sagði að eng­inn starfs­maður heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hafi aðkomu að TISA-við­ræð­unum, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa, sem utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér, hafi ekki verið borin undir hann.

Utan­rík­is­ráðu­neytið brást við orðum Krist­jáns með því að senda frá sér til­kynn­ingu um að það hafi upp­lýst vel­ferð­ar­ráðu­neyti hans um fram­lagn­ingu til­lögu um við­auka við TISA-samn­ing­inn. Það hafi ráðu­neytið gert 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Síðan hafi verið haldin fundur með tengiliðum úr öllum fagráðu­neytum þann 14. jan­úar. Tengiliður úr ráðu­neyti Krist­jáns hefði tekið þátt í þeim fundi.

Ljóst er að enn er áhugi á að fá að vita meira um stöðu við­ræðn­anna á meðal alþing­is­manna. Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, lagði fram fyr­ir­spurn á Alþingi í gær þar sem hann óskaði meðal ann­ars eftir því að fá að vita hvot til greina kæmi að semja um mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu eða ein­hverra ann­arra þátta sem flokka má undir sam­fé­lags­inn­viði, og hvort hugs­an­legar samn­ings­nið­ur­stöður verði bornar undir Alþingi áður en þær verða und­ir­rit­aðar?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár