TISA-leyniskjöl: Lagt til að heilbrigðisþjónusta verði markaðsvædd

Tillaga var lögð fram í TISA-við­ræðu­lotu sem fram fór í sept­em­ber um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Samkvæmt til­lög­unni eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­unum. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagði fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum gögnum sem Kjarninn birtir í dag í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Gögnunum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­farið. Hægt er að nálg­ast gögnin í heild sinni hér.

Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­unum, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Mikil leynd hvílir yfir við­ræð­unum. Náist að klára þær með samn­ingi mun sá samn­ingur gilda að öllu leyti hér­lendis.

Segja tillöguna auka ójöfnuð


Samkvæmt til­lög­unni sem rædd var í sept­em­ber á að auka frelsi sjúk­linga til að ferð­ast til ann­arra aðild­ar­landa samn­ings­ins til að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu, kjósi þeir svo. Þannig mynd­ist mark­aður með slíka.

Odile Frank, læknir sem starfar hjá Alþjóða­sam­tökum starfs­fólks í almanna­þjón­ustu (PSI), hefur rýnt í til­lög­una og segir að til­lagan myndi auka kostnað við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu í þró­un­ar­löndum og minnka gæði hennar í þró­uðum löndum Evrópu, Norður-Ameríku, Ástralíu og víðar.

PSI segir að til­lagan gangi út frá því að heil­brigð­is­þjón­usta sé vara eins og hver önnur sem hægt sé að kaupa og selja á mark­aði. Samtökin segja að slíkt sjón­ar­mið líti fram hjá almanna­hag og muni auka ójöfnuð veru­lega.

Samkvæmt pró­fessor Jane Kelsey, breskum sér­fræð­ingi í þjón­ustu­við­skiptum, myndi sú lausn sem lögð er til í til­lög­unni gagn­ast auð­ug­ari ein­stak­lingum og einka­fyr­ir­tækjum innan heil­brigð­is­geirans. Peningar myndu hins vegar sog­ast úr heil­brigð­is­kerfum þjóða, en lág fjár­fest­ing í þeim er einmitt ein þeirra ástæða sem nefnd er sem rök fyrir því að bjóða upp á aukna aflands­þjón­ustu innan heil­brigð­is­geirans. Þannig stækki lausnin eitt þeirra vanda­mála sem hún á að leysa.

Ísland á meðal þátttakenda


TISA stendur fyrir Trade in Services Agreement. Við­ræð­urnar hafa staðið yfir frá því á vor­mán­uðum 2013. Alls taka 23 aðilar þátt í þeim (Evr­ópu­sam­bandið, sem kemur fram fyrir sín 28 aðild­ar­lönd, er talið sem einn aðili í við­ræð­unum), þeirra á meðal er Ísland. Því eru alls 50 lönd þátt­tak­endur í við­ræð­unum.

[caption id="attachment_2799" align="alignnone" width="730"] Ísland er þáttak­andi í við­ræð­unum. Ábyrgð á þeim heyrir undir utan­rík­is­ráðu­neytið. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.[/caption]

Ísland er þáttakandi í viðræðunum. Ábyrgð á þeim heyrir undir utanríkisráðuneytið. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Ísland er þáttak­andi í við­ræð­unum. Ábyrgð á þeim heyrir undir utan­rík­is­ráðu­neytið. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.

Við­ræð­urnar eru marg­hliða og snú­ast um að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Yfirlýst mark­mið þeirra er að fækka hindr­unum í vegi fyr­ir­tækja sem starfa á vett­vangi þjón­ustu­við­skipta og auka gegn­sæi í milli­ríkja­við­skiptum með þjón­ustu. Samn­ings­við­ræð­urnar skipta Ísland miklu máli enda spanna þátt­töku­ríkin helstu mark­aðs­svæði íslenskra fyr­ir­tækja.

Einungis einn almennur alþjóð­legur samn­ingur um þjón­ustu­við­skipti hefur verið gerður í sög­unni. Hann gengur undir nafn­inu GATS og gekk í gildi árið 1996. Síðan hefur ekki náðst að semja um nýja lausn sem tekur til­lit til þeirra breyt­inga sem orðið hafa á heim­inum und­an­farna tæpa tvo ára­tugi.

Gríðarleg leynd yfir viðræðunum


Hægt er að lesa þau skjöl í heild sinni hér.

Skjölin eru dag­sett 14. apríl 2014 og höfðu aldrei birst opin­ber­lega áður. Í þeim kom fram að vilji væri til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.

wiki
wiki

Mikil leynd hvílir yfir umræddum skjölum og við­ræð­unum í heild. Þær þykja gríð­ar­lega við­kvæmar, enda verið að sýsla með grund­vall­ar­rétt­indi á vett­vangi sem lýtur í raun engum reglum. Á for­síðu skjal­anna sem Wikileaks lét Kjarnann hafa sagði meðal ann­ars að ekki mætti aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Við­ræð­urnar fara líka fram utan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) og lúta því ekki þeim reglum sem gilda um þá stofnun. Ljóst er á skjöl­unum frá bæði Wikileaks og nú AWP að vilji er til þess að auka frelsi í að selja þjón­ustu milli landa all­veru­lega.

Ætla að gera endanlega útgáfu TISA opinbera


Íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið deilir ekki mati alþjóð­legra stétt­ar­fé­laga á borð við PSI sem telja að TISA-sam­komu­lagið muni auka hagnað alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja á kostnað rétt­inda þeirra og hag­sæld þeirra sem verra hafa það. Mark­miðið með þátt­töku Íslands í TISA-við­ræð­unum sé að gera íslensk fyr­ir­tæki sem stunda þjón­ustu­við­skipti „betur sam­keppn­is­hæf á heims­vísu og draga úr við­skipta­hindr­unum“. Þetta er meðal þess sem kom fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um TISA-við­ræð­urnar sum­arið 2014.

Þar sagði einnig að TISA-samn­ing­ur­inn yrði gerður opin­ber strax og Ísland hefur und­ir­ritað hann og íslensk upp­lýs­inga­lög gildi um öll gögn sem Ísland leggur fram í samn­ings­við­ræð­unum. Íslensk stjórn­völd virða hins vegar „þá stað­reynd að ólíkar reglur gilda um opin­beran aðgang að upp­lýs­ingum ein­stakra þátt­töku­ríkja“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár