Utanríkisráðuneytið hafnar því að hafa ekki upplýst ráðuneyti Kristjáns Þórs

Utan­rík­is­ráðu­neytið upp­lýsti vel­ferð­ar­ráðu­neytið um fram­lagn­ingu til­lögu að við­auka við TISA-samn­ing­inn sem í felst mikil mark­aðsvæð­ing á heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta gerði ráðu­neytið þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Um leið var boðað til sam­ráðs­fundar um TISA-við­ræð­urnar með öllum tengiliðum í fagráðu­neytum til að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Fulltrúi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins tók þátt í þeim fundi, en hann fór fram 14. jan­úar 2015. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Innihald yfir­lýs­ing­ar­innar er í and­stöðu við það sem Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Þar sagði Kristján að eng­inn starfs­maður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins hafi haft aðkomu að TISA-við­ræð­unum, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa, sem var opin­beruð í frétt Kjarnans í gær, hafi ekki verið borin undir hann.

"Margt á huldu í utanríkisráðuneytinu"


Aðspurður um leynd­ina sem hvílir yfir samn­ings­gerð­inni og hvort hann væri sam­mála þeirri afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að taka ekki þátt í við­ræðum um við­auk­ann sagði Kristján: „Það er margt á huldu í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­málum. Það er alveg á hreinu.“ Hann hafi hins vegar engar for­sendur til að tjá sig um eða taka afstöðu til máls sem hann þekki ekki „hæt­is­hót“ til.

Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­unum, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Kjarninn birti í gær, í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn, ný gögn úr við­ræð­unum. Gögnunum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­farið. Hægt er að nálg­ast gögnin í heild sinni hér.

Samhliða fjall­aði Kjarninn ítar­lega um inni­hald gagn­anna.

Svör Kristjáns Þórs stangast á við upplýsingarnar


Svör Krist­jáns stang­ast algjör­lega á við upp­lýs­ingar sem utan­rík­is­ráðu­neyti Gunnars Braga Sveins­sonar hefur óskað eftir að komið verði á fram­færi. Um er að ræða upp­lýs­ingar sem snúa að sam­ráði innan stjórn­ar­ráðs­ins um TISA-við­ræð­urnar, og "sér­stak­lega að því er varðar fréttir um við­auka um heil­brigð­is­þjón­ustu sem lagður er til af Tyrk­landi."

Alls vill ráðu­neytið koma á fram­færi sex atriðum:

  1. Ákvörð­unin um að Ísland tæki þátt í TISA við­ræð­unum var tekin í tíð fyrri rík­is­stjórnar af þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra í des­em­ber 2012.

  2. TISA við­ræð­urnar voru kynntar í rík­is­stjórn með sér­stöku minn­is­blaði í júní 2013. Einnig var fjallað um þær í skýrslu ráð­herra til Alþingis um utan­rík­is­mál í mars 2014. Auk þess hefur verið sér­stök umræða um þær á Alþingi og þær kynntar í utan­rík­is­mála­nefnd.

  3. Líkt og og ítrekað hefur komið fram opin­ber­lega og má kynna sér frekar á heima­síðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, er við­haft víð­tækt sam­ráð í tengslum við TiSA við­ræð­urnar og á það ekki síst við milli ráðu­neyta og stofn­ana þeirra, þ.m.t. við vel­ferð­ar­ráðu­neytið.

  4. Tyrkland hafði áður sent sam­bæri­lega til­lögu um við­auka í frí­versl­un­ar­við­ræðum EFTA og Tyrk­lands sem send var til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins þann 14. októ­ber 2014 til athuga­semda. Svar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins barst 20. októ­ber 2014.

5. Í nóv­em­ber 2014 voru fyrstu drög að við­auk­anum send þátt­töku­ríkj­unum til umræðu í TiSA samn­inga­lot­unni sem fór fram í byrjun des­em­ber 2014.

  1. Þann 6. jan­úar 2015 upp­lýsti utan­rík­is­ráðu­neytið vel­ferð­ar­ráðu­neytið um fram­lagn­ingu við­aukans og sendi texta hans. Var um leið boðað til sam­ráðs­fundar um TiSA við­ræð­urnar þann 14. jan­úar 2015 með öllum tengiliðum í fagráðu­neytum til þess að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Fulltrúi vel­ferð­ar­ráðu­neytis tók þátt í þeim fundi þar sem þetta mál var rætt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár