Kristján Þór Júlíusson: "Það er margt á huldu í utanríkisráðuneytinu"

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra segir að eng­inn starfs­maður heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hafi aðkomu að TISA-við­ræð­unum, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa, sem var opin­beruð í frétt Kjarnans í gær, hafi ekki verið borin undir hann.

Þetta kom fram í svörum Krist­jáns Þórs við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, í þing­inu í dag. Fyr­ir­spurn Katrínar byggði á frétt Kjarnans frá því í gær um að til­laga hafi verið lögð í TISA-við­ræðu­lotu í sept­em­ber sem í fólst að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Kjarninn birti gögn sem sýndu fram á þetta. Upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sendi Kjarn­anum síðan póst í gær­kvöldi þar sem fram kom að Ísland telji til­lög­una ekki eiga heima í við­ræð­unum og taki ekki þátt í við­ræðum um að gera hana að við­auka við TISA-samn­ing­inn.

Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­unum, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa.

Svo mikil leynd að ráðherrar málaflokka vita ekkert


Katrín spurði Kristján hvort honum hafi verið kunn­ugt um til­lög­una og hver afstaða hans væri til hennar. Kristján sagð­ist fyrst hafa heyrt um hana í fréttum í gær og að eng­inn starfs­maður hans ráðu­neytis kæmi að við­ræð­unum. Utan­rík­is­ráðu­neytið hafi síðan veitt þær upp­lýs­ingar að það telji að til­lagan eigi ekki heima í TISA-við­ræð­unum.

Katrín kom þá aftur í pontu og sagð­ist telja það all nokkur tíð­indi ef heil­brigð­is­ráð­herra læsi um að til­laga sem þessi væri orðin hluti af samn­ings­við­ræð­unum og að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi lýst yfir afstöðu sinni til máls­ins án þess að upp­lýsa Kristján.

[caption id="attachment_19233" align="alignnone" width="732"] Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í TISA-við­ræð­urnar í dag.[/caption]

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra út í TISA-viðræðurnar í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í TISA-við­ræð­urnar í dag.

Katrín sagði það und­ar­legt að Ísland tæki þátt í við­ræðum sem svo mikil leynd hvíldi yfir að ráð­herrar í rík­is­stjórn vissu ekki að verið væri að ræða þeirra mála­flokka. Auk þess fengi almenn­ingur í land­inu mjög litlar upp­lýs­ingar um við­ræð­urnar og utan­rík­is­ráðu­neytið hefði raunar lýst því yfir að leynd myndi hvíla yfir öllum upp­lýs­ingum þangað til að samn­ingur yrði und­ir­rit­aður. Hún spurði Kristján að lokum hvort hann væri sam­mála afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í mál­inu.

Kristján svar­aði fyr­ir­spurn­inni með því að segja: „Það er margt á huldu í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­málum. Það er alveg á hreinu.“ Hann hafi hins vegar engar for­sendur til að tjá sig um eða taka afstöðu til máls sem hann þekki ekki "hæt­is­hót" til.

Telja ónýtta möguleika vera í markaðsvæðingu heilbrigðistþjónustu


Samkvæmt til­lög­unni sem lögð var fram í TISA-við­ræðu­lot­unni í sept­em­ber eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­unum. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagði fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum gögnum sem Kjarninn birtir í dag í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Gögnunum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­farið. Hægt er að nálg­ast gögnin í heild sinni hér.

Næsta við­ræðu­lota í TISA-við­ræð­unum, sú tíunda, hefst í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár