ESB: Heilbrigðiskerfi aðildarríkja verða ekki markaðsvædd af okkur

Evr­ópu­sam­bandið (ESB) ætlar ekki að taka þátt í gerð við­skipta­samn­inga sem mark­aðsvæða grunn­þjón­ustu í heil­brigð­is­kerfum aðild­ar­landa þess. Ákvörðun um skref í þá átt séu alfarið í höndum aðild­ar­ríkj­anna sjálfra. Slík skref verði hins vegar ekki stigin á vett­vangi sam­bands­ins né í við­skipta­samn­ingum sem það gerir fyrir hönd sinna aðild­ar­ríkja. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sendi frá sér í gær­kvöldi vegna leka á, og umfjöll­unar um, til­lögu Tyrk­lands um við­auka við TISA-samn­ing­inn svo­kall­aða.

Tillaga Tyrkja snérist um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Kjarninn hefur birt fréttir sem byggja á gögn­unum und­an­farna daga en hann tók þátt í birt­ingu þeirra í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Kjarninn var eini íslenski fjöl­mið­ill­inn sem var hluti af því sam­starfi.

Ætla sér ekki að hætta gæðum heilbrigðiskerfa


Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar segir að Evr­ópu­sam­bandið hafi ekki, og ætli sér ekki, að taka neinar skuld­bind­andi ákvarð­anir sem varða grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu sem er fjár­mögnuð með opin­beru fé í þeim við­skipta­samn­inga­við­ræðum sem það tekur þátt í, þar með talið TISA. „Evr­ópu­sam­bandið hefur alltaf und­ir­strikað skuld­bind­ingu sína gagn­vart því að verja opin­bera þjón­ustu á öllum stigum stjórn­sýsl­unnar[...]Allar ákvarð­anir um að afreglu­væða, einka­væða eða færa slíka þjón­ustu á einka­markað er algjör­lega undir rík­is­stjórnum þjóða komið[...]Við­skipta­samn­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins munu ekki breyta því; TISA mun ekki breyta því, né mun TISA krefj­ast þess að rík­is­stjórnir Evr­ópu­sam­bands­ríkja eða heil­brigð­is­kerfi þeirra setji neitt á markað“.

Cecila Malm­ström, fram­kvæmda­stjóri við­skipta hjá Evr­ópu­sam­band­inu, segir á sama vett­vangi að hún vilji taka allan vafa af um að hún myndi „aldrei leggja til við­skipta­sam­komu­lag sem fæli í sér ákvæði um flytj­an­leika heil­brigð­is­þjón­ustu. Ég lít ekki á hana sem við­skipta­legt við­fangs­efni og Fram­kvæmda­stjórnin mun ekki hætta hinum miklu gæðum sem heil­brigð­is­kerfin okkar búa yfir í við­skipta­samn­ingi“.

Ísland tekur þátt


Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­unum, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa og því vöktu fréttir um til­lögu Tyrkja mikla athygli hér­lendis þegar þær birt­ust á mið­viku­dag.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu strax um kvöldið þar sem fram kom að Ísland telji ekki að við­auk­inn, sem Tyrkland lagði fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum, ætti heima í TISA-samn­ingnum.

[caption id="attachment_19234" align="alignnone" width="736"] Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í TISA-málið á Alþingi í gær.[/caption]

katajaknytt (1)
kata­jaknytt (1)

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í málið á Alþingi í gær. Þar sagði Kristján að eng­inn starfs­maður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins hafi haft aðkomu að TISA-við­ræð­unum, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa hafi ekki verið borin undir hann.

Aðspurður um leynd­ina sem hvílir yfir samn­ings­gerð­inni og hvort hann væri sam­mála þeirri afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að taka ekki þátt í við­ræðum um við­auk­ann sagði Kristján: „Það er margt á huldu í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­málum. Það er alveg á hreinu.“ Hann hafi hins vegar engar for­sendur til að tjá sig um eða taka afstöðu til máls sem hann þekki ekki „hæt­is­hót“ til.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi þar sem þessu var hafnað. Þar kom fram að utan­rík­is­ráðu­neytið upp­lýsti vel­ferð­ar­ráðu­neytið um fram­lagn­ingu til­lögu að við­auka við TISA-samn­ing­inn sem í felst mikil mark­aðsvæð­ing á heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta gerði ráðu­neytið þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Um leið var boðað til sam­ráðs­fundar um TISA-við­ræð­urnar með öllum tengiliðum í fagráðu­neytum til að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Fulltrúi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins tók þátt í þeim fundi, en hann fór fram 14. jan­úar 2015.

Næsta samn­ingslota í TISA-við­ræð­unum, sú tíunda, fer fram í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár