Hópur af fólki sem situr eftir með sárt ennið

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að ákvarð­anir Seðla­bank­ans hafi póli­tískar afleið­ingar – og að fast­eigna­verð muni ekki lækka um leið og vextir hækka.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: RÚV/Skjáskot

„Ég veit eig­in­lega ekki hvar maður á að byrja á þessu. Mér finnst eins og það sé verið að horfa algjör­lega fram hjá núver­andi verð­bólgu sem eru fast­eigna­verðs­hækk­an­irnar. Og það er líka verið að horfa fram hjá rót, í raun­inni, þess­ara launa­hækk­un­arfasa sem við lendum reglu­lega í sem er und­ir­liggj­andi óstöð­ug­leiki í efna­hags­líf­inu þar sem fast­eigna­mark­að­ur­inn er mjög stór partur. Og það er póli­tískt mál.“

Þetta sagði Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Silfrinu á RÚV í dag þegar hún var spurð út í orð Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra um launa­hækk­anir sem framundan eru.

Á fundi pen­inga­stefnu­nefnd­ar í vik­unni sagði hann orð verka­lýðs­for­yst­unn­ar um að virkja ætti ákvæði í kjara­samn­ing­um um hag­vaxt­ar­auk­ann vegna mik­ils hag­vaxt­ar, ofan á kjara­samn­ings­bundn­ar launa­hækk­an­ir um ára­mót, vera eins og verstu öf­ug­mæla­vís­ur. „Eins og að vatn renni upp í móti,“ sagði hann og bætti við að hag­vöxt­ur­inn núna væri að koma í kjöl­far mik­ils sam­drátt­ar á síð­asta ári vegna far­ald­urs­ins. Benti hann á að þrátt fyr­ir hag­vöxt­inn und­an­farið væri lands­fram­leiðslan enn minni en fyr­ir far­ald­ur. „Hag­kerfið er að fá á sig launa­hækk­an­ir sem ekki eru studd­ar af auk­inni fram­leiðslu,“ sagði hann.

Pólitískar ákvarðanir hafa komið Íslendingum í þessa stöðu

Kristrún sagði í Silfrinu það vera póli­tíska ákvörðun að reka hús­næð­is­mark­að­inn eins og hann er rek­inn í dag. „Það var póli­tísk ákvörðun í fyrra að ákveða að fara í flestar aðgerðir sem rík­is­stjórnin fór í til þess að styðja við heim­ilin og fyr­ir­tækin í gegnum banka­kerfið. Það var ákveðið að skrúfa frá heil­miklu fjár­magni og sagt við bank­ana: „Þið látið þetta fjár­magn á þá staði sem þið viljið og er örugg­ast.“ Og við komum út úr þessu ástandi núna þrátt fyrir alla umræðu um að hag­vöxtur eða sam­dráttur hafi verið minni en spár gerðu ráð fyrir en spár eru bara spár – og það vita það allir hag­fræð­ingar og allir sem vinna við spá­gerð að ætla að segja það að ein­hvern tím­ann hafi verið spáð ein­hverju hræði­legu og síðan hafi það ekki raun­gerst að jafn­miklu marki það þýðir ekki endi­lega að það hafi verið gert það besta sem var hægt í stöð­unni.

Af því við erum að koma út úr þess­ari stöðu engu að síður með mjög háa verð­bólgu, með mjög hátt fast­eigna­verð og við erum líka að sjá sömu banka sem fengu lækkun á eig­in­fjár­kvöðum, þeir fengu svig­rúm til útlána, eru að skila met­hagn­aði – tug­millj­arða króna sem verða greiddir út – og miklar eigna­verðs­hækk­anir og það eru póli­tískar ákvarð­anir sem hafa komið okkur í þá stöðu sem við erum í.“

Pólitískar afleiðingar af ákvörðunum seðlabankastjóra

Kristrún hefur mestar áhyggjur af að umræða um verð­bólgu, launa­hækk­anir og hvernig seðla­banka­stjóri talar snú­ist um að aðgerðir seðla­bank­ans séu svo hlut­lausar að þær geti ekki haft póli­tískar afleið­ingar. „Það hefur bara gígantískar póli­tískar afleið­ingar að sjá eign­ar­verðir rjúka upp, að sjá fast­eigna­verð rjúka upp og ef rík­is­stjórnin ætlar bara að stíga til hliðar og segja: „Ja, við gerðum okkar. Svo gerði Seðla­bank­inn eitt­hvað og svo gerðu mark­aðir eitt­hvað.“ Mér finnst það bara ekki boð­legt í þess­ari stöðu.

Þetta er afleið­ing af ákvörð­un­ar­fælni sem var til staðar í fyrra og að lokum langar mig að segja af því að það er oft við­kvæmni við það að stjórn­mála­menn megi ekki gagn­rýna seðla­banka­stjóra – en nú kem ég úr þannig bak­grunni úr hag­fræð­inni að það sé svona „holy grail“ sko, það verður að vera algjör lína þarna á milli. En við sjáum það alveg að það eru póli­tískar afleið­ingar af ákvörð­unum þarna og ég vil sjá að rík­is­stjórnin stígi þarna kröft­ug­lega inn á hús­næð­is­mark­að­inn og ráð­ist í ákveðnar aðgerðir sem tryggi það að mark­að­ur­inn sé ekki alltaf að sveifl­ast með fjár­mála­sveifl­unni. Þetta er ekki eins og hver annar eigna­mark­aður, við erum að reyna að reka sam­fé­lag hérna. Þetta snýst ekki bara um að láta fjár­magn flæða eitt­hvað,“ sagði Kristrún.

Seðla­banka­stjóri hefur sagt að það þurfi að kæla niður hús­næð­is­mark­að­inn. Spyrill Silf­urs­ins, Egill Helgason, sagði að vaxta­hækkun væri til­raun til þess en hún kæmi nátt­úru­lega illa í bakið á fjölda fólks. Kristrún sagði að vand­inn við umræð­una um vaxta­hækk­anir væri að 2 pró­sent vextir væri ekki slæmt ástand. „Ég ætla bara að fá að full­yrða það hérna í ljósi sög­unnar. Ég meina, það er 4,5 pró­sent verð­bólga. Vandinn er afleið­ing þess að beita þessu tæki svona kröft­ug­lega í stað­inn fyrir að beita rík­is­fjár­mál­unum meira í fyrra sem er sú að núna þegar vextir fara hækk­andi þá mun fast­eigna­verð ekki lækka á móti. Og eftir stendur hópur af fólki sem var ekki í stöðu – var ekki í réttu fjöl­skyld­unni, með rétta eig­in­féð á bak við sig, á rétta staðnum í lífi sínu – til þess að nýta þetta litla tíma­bil í sög­unni und­an­farin ár til þess að fara inn og bæta við sig skuldum og kaupa. Og það eru þeir ein­stak­lingar sem sitja eftir með sárt ennið og við öll hin sitjum eftir með verð­bólg­una og hærri fast­eigna­skatta fyrir vikið.“

„Það gerist ekkert af sjálfu sér“

Guðrún Haf­steins­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók við orð­inu en hún telur að flestir séu sam­mála um það að Íslend­ingar séu að koma núna ótrú­lega vel út úr hinu efna­hags­lega áfalli sem heims­far­ald­ur­inn hefur valdið.

„Það ger­ist ekk­ert af sjálfu sér. Það ger­ist vegna þess að rík­is­sjóður brást rétt við. Og mér finnst mik­il­vægt að taka það fram hér við Kristrúnu að til dæmis bara Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og fleiri slíkar stofn­anir hafa bent á það að þær aðgerðir sem hér var farið í hafi verið réttar – hafi verið góðar og hafi hjálpað til.

Við skulum heldur ekki líta fram hjá því að hækkun á fast­eigna­verði er ekk­ert eins­dæmi hér á Íslandi. Við erum að sjá það í öllum lönd­unum hér í kringum okkur,“ sagði Guðrún.

Þurfum að vera með betri áætlanir

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sagði að það skorti íbúðir. „Bara ef við lítum til dæmis á í októ­ber þá voru aðeins 1.500 íbúðir í boði. Við höfum aldrei séð minna fram­boð síðan að mæl­ingar hófust. Þannig að við skulum líka hafa það á hreinu þegar við erum að tala um að rík­is­stjórnin eigi að koma inn í þetta að við þurfum að eiga miklu betra sam­ráð og sveit­ar­fé­lögin þurfa nátt­úru­lega að koma inn í þetta með því að auka fram­boðið, númer eitt tvö og þrjú. Og þarna held ég að sé ein­hver mis­brestur.

Þarna er mark­aðsmið­brestur á ferð og við verðum að gera þá kröfu að það sé meiri sam­fella í þessu vegna þess að þetta skýrir að hluta til þessa miklu hækkun. Auðvitað eru lægri vextir og vextir eru lægri núna en þegar við fórum inn í heims­far­ald­ur­inn en það sem mun­ur­inn er hér á Íslandi og erlendis er þessi hús­næð­isliður. Hann skýrir helm­ing­inn af verð­bólg­unni á meðan í Evrópu þá er það elds­neyt­is­verð sem skýrir það þar.“

Hún sagði að Íslend­ingar þyrftu að vera með betri áætl­anir til þess að tryggja þetta fram­boð á íbúðum. „Ég er alveg sam­mála því að það sé mjög vara­samt þegar ungt fólk þarf að skuld­setja sig mjög mikið og við sjáum það auð­vitað núna þar sem það er svo margir komnir yfir í óverð­tryggð lán að vaxta­lækk­anir munu strax hafa þessi áhrif. En þarna þurfum við að gera betur.“

Sveiflurnar alltaf ýktari hér á landi

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar sagði að vaxta­hækk­anir hefðu miklar afleið­ingar fyrir sam­fé­lagið.

„Höggið á heim­ili sem voru búin að skuld­setja sig alveg gríð­ar­lega mikið verður tug­þús­undum hærra á mán­uði. Stóri fíll­inn í þessu hér á Íslandi í her­berg­inu er síðan alltaf það að við erum með sveiflóttan gjald­miðil, við erum með krón­una sem gerir það að verkum að sveifl­urnar verða alltaf ýkt­ari hér. Við erum að fara að horfa fram á það vaxta­hækk­un­ar­ferlið verði mun ýkt­ara hér á Íslandi heldur en ann­ars staðar,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár