Víðtæk og alvarleg áhrif vegna kjaradeilna útgerða og sjómanna

Sjó­manna­verk­fall hefur staðið yfir frá 14. des­em­ber og lausn er ekki í sjón­máli. Afar nei­kvæð áhrif víða í sveit­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni, segir í Morg­un­blað­inu.

Verkfall sjó­manna hefur alvar­leg og víð­tæk áhrif í sveit­ar­fé­lögum sem eiga mikið undir sjáv­ar­út­vegi. Útsvars­tekjur drag­ast stór­lega saman, sem og tekjur hafn­ar­sjóð­anna. 

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag, en Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, segir að allt sam­fé­lagið líði fyrir vinnslu­stopp þegar eng­inn afli kemur í land.

Verkfall sjó­manna hefur staðið yfir frá 14. des­em­ber og er lausn í kjara­deilum þetta við útgerðir ekki í sjón­máli. Útgerð­irnir hafa ekki viljað verða við kröfum sjó­manna.

Elliði segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að þótt sveit­ar­fé­lagið verði af tekjum þoli það tekju­missi lengur en fjöl­skyld­urnar sem reki sig frá launa­seðli til launa­seð­ils. „Það á bæði við um fjöl­skyldur sjó­manna og aðra. Við höfum fundið það mjög sterkt, sér­stak­lega á sein­ustu rúmri viku, að fisk­verka­fólk er að lenda í alvar­legum vanda­málum. Það leitar eðli­lega eftir aðstoð sveit­ar­fé­lags­ins og við reynum eftir fremsta megni að hjálpa,“ segir Elliði.

Vitað er sölu­fyr­ir­tæki og mörg minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru komin í nokkur vand­ræði, enda kemst engin vara á markað á meðan ekki er fiskað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár