Samherji fjárfest fyrir 11 milljarða á Eyjafjarðarsvæðinu á 3 árum

Mikil upp­bygg­ing er framundan hjá Samherja á Dalvík.

Frá undirritun lóðaleigusamnings Samherja á Dalvík.
Frá und­ir­ritun lóða­leigu­samn­ings Samherja á Dalvík.

Samherji und­ir­rit­aði í gær lóða­leigu­samn­ing við Dal­vík­ur­byggð um 23.000 fer­metra lóð undir nýtt hús­næði land­vinnslu félags­ins á Dalvík, en heild­ar­um­fang fjár­fest­ing­ar­innar er áætlað um 3,5 millj­arðar króna. „Með samn­ingnum er stigið stórt skref í átt að nýrri og full­komn­ari vinnslu Samherja á Dalvík. Flutn­ingur starf­semi Samherja á hafn­ar­svæðið skapar jafn­framt mögu­leika fyrir bæj­ar­fé­lagið að skipu­leggja svæðið með öðrum hætti til hags­bóta fyrir sam­fé­lagið í heild,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins vegna þessa.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, opin­ber­aði þessi áform fyr­ir­tæk­is­ins á fjöl­mennum hátíð­ar­fundi með starfs­fólki Samherja á Dalvík og for­svars­mönnum Dal­vík­ur­byggðar. Hrósaði hann starfs­fólki sér­stak­lega og það traust sem ríkti á milli þess, og einnig bæj­ar­yf­ir­valda.

Í ræðu sinni á fund­inum sagði að Samherji hefði tekið á móti nýjum Björg­úlfi EA í Tyrk­landi. Nýja skipið muni leysa hinn 40 ára gamla nafna sinn af hólmi og komi til heima­hafnar á Dalvík í byrjun júní. „Með nýju vinnsl­unni og smíði Björg­úlfs EA er Samherji að fjár­festa í veiðum og vinnslu á Dalvík fyrir a.m.k. sex millj­arða. Heild­ar­fjár­fest­ing Samherja í veiðum og vinnslu í Eyja­firði verður því um ell­efu millj­arðar króna á ein­ungis þremur árum,“ sagði Þor­steinn Már, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Óhætt er að segja að fjár­hags­staða Samherja sé sterk. Í lok árs 2015 var eigið fé félags­ins yfir 80 millj­arðar og hagn­að­ur­inn 13,9 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár