Flokkur

Innlent

Greinar

FréttirEinkavæðing bankanna

Bjarni vill ekki rann­saka einka­væð­ingu bank­anna

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill draga lær­dóm af blekk­ingum við einka­væð­ingu bank­anna en ekki rann­saka hana nánar. Meðlimur einka­væð­ing­ar­nefndar sagði af sér vegna óásætt­an­legra vinnu­bragða við sölu rík­is­ins á Lands­bank­anum og taldi for­menn flokk­anna hafa hand­valið kaup­endur bank­anna. Ólafur Ólafsson afsal­aði Fram­sókn­ar­flokknum húsi mán­uði áður en hann keypti Bún­að­ar­bank­ann af rík­inu á fölskum for­sendum.
AfhjúpunEinkavæðing bankanna

Einka­væð­ing bank­ans byggði á blekk­ing­ar­vef hóps fólks undir for­ystu Ólafs Ólafs­sonar

Lyk­il­at­riðið í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans var blekk­ing sem hópur fólks tók þátt í eða var með­vit­aður um. Menn á vegum fjár­fest­is­ins Ólafs Ólafs­sonar nýttu skatt­skjól til að fela raun­veru­lega slóð eign­ar­halds­ins og láta líta út fyrir að þýskur banki væri aðili að kaup­unum. Ólafur var síðar dæmdur fyrir að taka þátt í sýnd­ar­við­skiptum til að auka trú­verð­ug­leika bank­ans þegar hann stefndi í þrot. Bankinn varð gjald­þrota fimm árum eftir einka­væð­ingu. En Ólafur er nú í millj­arða­fjár­fest­ingum með lóðir í Reykja­vík.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu