Var verjandi Bjarka og gagnrýndi dóm yfir Ólafi – stýrir nú þingnefndinni sem fjallar um fléttuna þeirra

Brynjar Níelsson stýrir þing­nefnd­inni sem tekur fyrir rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um við­skiptafléttu Ólafs Ólafs­sonar og Bjarka Diego. Brynjar er fyrr­ver­andi verj­andi Bjarka og hefur ítrekað tjáð sig um mál­efni Ólafs vegna Al-Thani máls­ins.

Var verjandi Bjarka og gagnrýndi dóm yfir Ólafi – stýrir nú þingnefndinni sem fjallar um fléttuna þeirra

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, flutti munn­lega skýrslu á Alþingi í dag um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans árið 2003.

Athygli vakti að Brynjar vildi ekki slá því föstu, líkt og rann­sókn­ar­nefndin gerir, að blekk­ingum hefði verið beitt við einka­væð­ing­una á Bún­að­ar­bank­anum. „Ég ætla ekki að hafa skoðun á því hvort stjórn­völd hafi verið blekkt,“ sagði Brynjar. 

Í þing­ræðu sinni tók Brynjar ekki fram að sem lög­maður gegndi hann verj­enda­störfum fyrir Bjarka Diego eftir hrun, en Bjarki er einn þeirra sem spil­uðu lyk­il­hlut­verk í gerð leyni­legra bak­samn­inga þegar Ólafur Ólafsson og fleiri keyptu Bún­að­ar­bank­ann 2003 sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Bjarki kemur tals­vert við sögu í skýrsl­unni en að því er fram kemur í frétt RÚV af mál­inu telur Brynjar að þetta skipti engu fyrir störf sín á þingi. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd mun fjalla um rann­sókn­ar­skýrsl­una og ákveða hver …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár