Fréttamál

Covid-19

Greinar

FréttirCovid-19

Eigendur Bláa lóns­ins spara sér nærri 200 millj­ónir á mán­uði með rík­is­að­stoð­inni

Grímur Sæmund­sen, for­stjóri og stærsti eig­andi Bláa lóns­ins, hefur rök­stutt þá ákvörðun fyr­ir­tæk­is­ins að nýta sér hluta­starfs­leið­ina með því að verið sé að verja 600 störf. Eigendur Bláa lóns­ins spara sér einnig hund­ruð millj­óna króna með því að sleppa því að hafa fólk á launa­skrá eða segja því upp.
ViðtalCovid-19

Dreifir gleði til að takast á við ótt­ann

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir er ein þeirra fjöl­mörgu sem hafa skráð sig í bak­varða­sveit und­an­farna daga. Í dag mætir hún til starfa á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilið Lund á Hellu, ekki þó sem heil­brigð­is­starfs­maður heldur sem gleði­dreif­ari. Faðir Eddu, 97 ára, dvelur á Lundi. Þau feðgin hafa ekki sést svo vikum skiptir, öðru­vísi en í gegnum gler, svo búast má við fagn­að­ar­fundum.
FréttirCovid-19

Gjafir streyma inn á Land­spít­al­ann

„Ég held að fá orð fái lýst því hvað við erum þakk­lát,“ segir Benedikt Olgeirs­son á Land­spít­al­anum. Setja þurfti af stað sér­stakt verk­efni og vef­síðu til að taka við gjöfum og erindum. Spít­al­inn fær allt frá orku­drykkjum og orku­stöngum til önd­un­ar­véla og þá er tals­vert um að spít­al­anum ber­ist fé úr stórum og smáum söfn­unum og boð um ýmis konar aðstoð.
FréttirCovid-19

Fjár­sterkar útgerðir fá einnig skattaí­viln­anir eftir breyt­ingar Alþingis

Frum­varpið um aðgerðir til að bregð­ast við Covid-far­aldr­inum breytt­ist í með­förum Alþingis, Orðalag í lög­unum felur það í sér að fjár­sterk fyr­ir­tæki sem verða fyrir tekju­falli geta einnig fengið frest á skatt­greiðslum jafn­vel þó þau eigi mikið fé. Samtök atvinnu­lífs­ins sendu meðal ann­ars umsögn þar sem bent var á að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki ættu að geta nýtt sér úrræðin.

Mest lesið undanfarið ár