Fréttamál

Covid-19

Greinar

FréttirCovid-19

Segja nú að öllum beri að bera and­lits­grímur

Nokkur Evr­ópu­lönd skylda nú fólk til þess að bera and­lits­grímur. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa snúið afstöðu sinni og mæl­ast nú einnig til þess. Ólafur S. Andr­és­son, pró­fessor í erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands, segir að grímur veiti falskt öryggi. Sótt­varna­læknir taldi „vafa­samt“ að láta almenn­ing bera grímur.
FréttirCovid-19

Eins og geim­farar á gjör­gæslu

„Hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir á Covid-stof­unni okkar minna helst á geim­fara á leið til tungls­ins. Vírnetið í örygg­is­rúð­unni tengir mig hins vegar við rimla í fang­elsi, enda taka hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir okkar 3-4 klst. tarnir þarna inni, tvisvar á vakt, án þess að nær­ast eða kom­ast á kló­sett.“ Á þennan hátt lýsir Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir ástand­inu á þeim hluta gjör­gæslu­deildar Land­spít­ala þar sem COVID-19 sjúk­lingar njóta með­höndl­unar.
FerðirCovid-19

Fastar á Kyrra­hafs­eyju: „Lán í óláni“

Þegar vin­kon­urnar Ásdís Embla Ásmunds­dóttir, Unnur Guð­munds­dóttir og Margrét Hlín Harð­ar­dóttir lögðu af stað í heims­reisu í febr­úar óraði þær ekki fyrir því hvaða stefnu ferðin myndi taka. Þær eru nú á Cook-eyjum í Suður-Kyrra­hafi, ætl­uðu að dvelja þar í viku, en hafa nú verið þar í mánuð, því nán­ast engar flug­sam­göngur hafa verið til og frá eyj­unum und­an­farnar þrjár vikur vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þær hafa ving­ast við heima­fólk sem hefur aðstoðað þær á alla lund og segj­ast vart geta verið á betri stað, fyrst aðstæður eru með þessum hætti.
FréttirCovid-19

Fór í frí og kemst ekki heim til sín

Guð­mundur Ingi Jónsson alþjóða­við­skipta­fræð­ingur býr í borg­inni Haimen í Jinangsu-hér­aði á aust­ur­strönd Kína. Hann fór þaðan til Fil­ipps­eyja um miðjan jan­úar, í það sem átti að vera stutt frí, en vegna ýmissa ferða­tak­mark­ana vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hefur hann ekki kom­ist til síns heima og dvelur nú í Taílandi. Þar í landi tók útgöngu­bann gildi í gær.

Myndband

Fréttir

Kergja og kraum­andi reiði: „Hvar er samn­ing­ur­inn?“

Laun fjöl­margra hjúkr­un­ar­fræð­inga á Land­spít­ala lækk­uðu um tugi þús­unda um mán­aða­mótin þegar vakta­á­lags­greiðslur þeirra féllu niður. Ár er síðan kjara­samn­ingur þeirra rann út og ekk­ert gengur í við­ræðum. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar segja þetta skrýtin skila­boð þegar almenn­ingur klappar fyrir þeim á götum úti fyrir að standa vakt­ina í COVID-19 far­aldr­inum. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar deila nú myndum af launa­seðlum sínum á sam­fé­lags­miðlum undir merk­inu #hvar­er­samn­ing­ur­inn.

Mest lesið undanfarið ár