Fréttamál

Covid-19

Greinar

FréttirCovid-19

Heil­brigð­is­starfs­fólk í hættu: 51 læknir á Ítalíu hefur lát­ist af völdum Covid-19

Ítalska dag­blaðið Corriere della Sera heldur yfir­lit yfir þá lækna sem hafa lát­ist í land­inu í bar­átt­unni við Covid-19. Heil­brigð­is­starfs­fólk sem með­höndlar Covid-19 sjúk­linga virð­ist vera í meiri hættu að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum. Með­al­aldur ítölsku lækn­anna er langt undir með­al­tali þeirra sem lát­ist hafa af sjúk­dómnum á Ítalíu.
VettvangurCovid-19

Hvernig COVID-19 herjar á Hvera­gerði: „Komin af stað í ferða­lag sem við pönt­uðum ekki“

Fimmt­ungur bæj­ar­búa í Hvera­gerði var á sama tíma í sótt­kví og bær­inn fast að því lamaður. Vel á annan tug fólks er smitað af COVID-19 kór­óna­veirunni í bænum og sam­fé­lagið varð fyrir áfalli þegar fyrsta dauðs­fall Íslend­ings af völdum veirunnar reið yfir bæinn. Þrátt fyrir allt þetta ríkir ein­hugur, kær­leikur og sam­heldni í bæj­ar­fé­lag­inu, nú sem aldrei fyrr. Hver­gerð­ingar ætla sér að kom­ast í gegnum far­ald­ur­inn, saman. „Þetta líður hjá,“ er orð­tæki bæj­ar­búa.

16 mín. lestur

FréttirCovid-19

Óttast að smit­ast af covid-19 á Ásbrú

Hæl­is­leit­endur sem dvelja í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar að Ásbrú í Reykja­nesbæ ótt­ast covid-19 smit og forð­ast margir að nota sam­eig­in­lega eld­hús­að­stöðu. Í fjöl­menn­asta úrræði stofn­un­ar­innar búa sjö­tíu og sex karl­menn tveir og tveir saman í her­bergi. Upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar segir það gilda um íbúa á Ásbrú eins og aðra, að þeir verði að leggja sitt að mörkum til að minnka líkur á smiti.

Mest lesið undanfarið ár