Heilbrigðisstarfsfólk í hættu: 51 læknir á Ítalíu hefur látist af völdum Covid-19

Ítalska dag­blaðið Corriere della Sera heldur yfir­lit yfir þá lækna sem hafa lát­ist í land­inu í bar­átt­unni við Covid-19. Heil­brigð­is­starfs­fólk sem með­höndlar Covid-19 sjúk­linga virð­ist vera í meiri hættu að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum. Með­al­aldur ítölsku lækn­anna er langt undir með­al­tali þeirra sem lát­ist hafa af sjúk­dómnum á Ítalíu.

Heilbrigðisstarfsfólk í hættu: 51 læknir á Ítalíu hefur látist af völdum Covid-19
Einungis 49 ára Yngsti lækn­ir­inn sem hefur lát­ist á Ítalíu í bar­átt­unni við Covid 19, Ivano Garzena, var ein­ungis 49 ára gam­all. Hann sést hér með 5 ára syni sínum, Matteo.

51 læknir hefur lát­ist á Ítalíu vegna Covid-19 sjúk­dóms­ins. Ítalska blaðið Corriere della Sera fjallar um ítölsku lækn­ana sem hafa tínt lífi í bar­áttu við sjúk­dóm­inn og upp­færir stöðugt töl­urnar yfir fjölda þeirra sem falla frá. Með þessu heiðrar ítalska blaðið þær fórnir sem lækn­arnir og heil­brigð­is­starfs­fólk í land­inu færir þessa dag­ana við að berj­ast við Covid-far­ald­ur­inn.

Ítalía er það í land í heim­inum þar sem lang­flest dauðs­föll vegna sjúk­dóms­ins hafa verið og dóu tæp­lega þús­und manns á einum degi vegna sjúk­dóms­ins í fyrra­dag. Nærri 11 þús­und manns hafa nú látið lífið á Ítalíu af völdum Covid. 

Í texta Corriere della Sera um lækn­ana segir: „Margir af lækn­unum eru heim­il­is­læknar en líka tann­læknar, smit­sjúk­dóma­læknar og svæf­inga­læknar. Fjöldi heil­brigð­is­starfs­fólks sem hefur sýkst af sjúk­dómnum er komið upp í 6205. Þeir hafa tínt lífi sínu við það að reyna að bjarga lífum sinna eigin sjúk­linga.“ 

Í grein ítalska blaðs­ins La Republicca um sama efni kemur fram að heild­ar­fjöldi heil­brigð­is­starfs­fólks sem hefur lát­ist sé nú kom­inn upp í 712. Þetta þýðir að dán­ar­tíðnin meðal heil­brigð­is­starfs­fólks á Ítalíu er  rúm­lega 11 pró­sent miðað við tölur um að meira en 6200 heil­brigð­is­starfs­menn hafi fengið sjúk­dóm­inn. 

Sumir af lækn­unum sem hafa lát­ist voru sestir í helgan stein en höfðu verið kall­aðir aftur til starfa til að aðstoða við að berj­ast gegn Covid-far­aldr­inum, meðal ann­ars tann­læknar á efri árum. Með­al­aldur lækn­anna er umtals­vert lægri en þeirra ein­stak­linga sem lát­ist hafa á Ítalíu í heild­ina en með­al­aldur hinna látnu í land­inu er rúm­lega 80 ár. 

Margir af lækn­unum sýk­ust af sjúk­dómnum í kjöl­far þess að fyrstu smitin komu upp á Norður-Ítalíu (en smit­far­ald­ur­inn hófst þar í Evrópu eftir að hafa borist frá Kína).  Fólk sem sýkt­ist leit­aði sér lækn­is­að­stoðar án þess að lækn­arnir sem hjúkr­uðu þeim væru í þeim hlífð­ar­bún­aði sem nú er vitað að getur varið heil­brigð­is­starfs­fólk í meira mæli fyrir smitum. 

„Bróðir, við erum hérna til að vinna og til að berj­ast.“

Var við það að setj­ast í helgan steinVicenza Amato, sem starf­aði á sjúkra­hús­inu í Bergamo, var við það að setj­ast í helgan stein þegar hún lést. Hún var 67 ára gömul.

Yngsti læknirinn var 49 ára gamall 

Yngsti lækn­ir­inn sem hefur lát­ist á Ítalíu var Ivan Garzena, 49 ára gam­all tann­læknir frá borg­inni Tórínó.  Ivan var giftur og átti einn 5 ára gaman son, Matteo. Hann lést þann 24. mars síð­ast­lið­inn eftir að hafa byrjað kenna sér meins og átt í önd­un­ar­erf­ið­leikum tveimur vikum áður. Hann var fluttur á sjúkra­hús þann 22. mars en allt kom fyrir ekki og lést hann tveimur dögum síðar. 

Af lækn­unum 51 sem hafa fallið frá eru 50 karl­menn og ein kona, Vicenza Amato, sem starf­aði sem læknir í borg­inni Bergamo í Lombardy-hér­aði, borg sem sem hefur orðið mjög illa úti í Covid-19 far­aldr­inum. Amato var 67 ára gömul þegar hún féll frá eig­in­manni sínum og þremur upp­komnum börnum. Í við­tali við Corriere della Sera nefnir bróðir hennar að hún hafi verið við það að setj­ast í helgan stein eftir nokkra mán­uði: „Hún hefði helgað sig fjöl­skyld­unni af öllum hug og hjarta, hún hefði verið mamma og amma og ekk­ert annað,“ segir hann. 

Annað dæmi er heim­il­is­lækn­ir­inn Roberto Stella sem var einnig 67 ára þegar hann lést þann 10. mars síð­ast­lið­inn. Hann starf­aði sem heim­il­is­læknir í bænum Busto Arsizio í nágrenni Mílanó-borgar. Stella tók þá ákvörðun að hjúkra sjúk­lingum sínum áfram eftir að hann varð veikur sjálfur en hann var á end­anum lagður inn á spít­ala borg­inni Como þar sem hann lést. Í grein Corriere della Sera er haft eftir vini hans og kollega, Saverio Chiaravalle, að síð­ustu orð hans við hann hafi verið. „Bróðir, við erum hérna til að vinna og til að berj­ast.“

Roberto Stella

„Ónæm­is­kerfi hennar, líkt og hjá mörgum öðrum heil­brigð­is­starfs­mönnum kann að hafa verið orðið veikt vegna þess hversu mikið hún var útsett fyrir sjúk­dómnum.“ 

Meiri snerting við vírusinn - meiri hætta?

Talið er að heil­brigð­is­starfs­fólki sem vinnur við að sinna og hjúkra Covid-smit­uðum, líkt og þeir ítölsku læknar sem fjallað er um í fjöl­miðlum á Ítalíu, stafi meiri hætta af sjúk­dómnum sökum þess hve nálægð þeirra við vírus­inn er tíð og mikil. Um þetta hefur verið fjallað víða í fjömiðlum síð­ustu vik­urnar.

Í við­tali við CNN um miðjan mars sagði Dr. Peter Hotez, pró­fessor við lækn­is­fræði­deild Baylor-háskóla í Banda­ríkj­unum að ástæðan fyrir þessu væri ókunn. „Við vitum um hina háu dán­ar­tíðni hjá eldra fólki en af ástæðum sem okkur eru ókunnar eiga þeir heibrigð­is­starfs­menn sem vinna með Covid-smit­uðum meiri hættu á að verða alvar­lega veikir þrátt fyrir yngri aldur,“ sagði Hotez. „Kannski er það vegna þess að þeir verða fyrir meiri snert­ingu við meira magn af vírusnum,“ sagði hann tók jafn­framt fram að þetta væri til­gátu og að rann­saka þyrfti þetta atriði betur. 

Eitt af því sem er bent á í þess­ari umræðu er að kín­verski lækn­ir­inn Li Wenliang frá borg­inni Wuhann, sá sem reyndi að vara yfir­völd þar í landi við útbreiðslu Covid, lést ein­ungis nokkrum vikum eftir að hann komst í snert­ingu við vírus­inn. Hann var ein­ungis 34 ára. Sömu sögu er að segja um marga aðra kín­verska lækna eins og melt­ing­ar­lækn­inn, Xia Sisi, sem var ein­ungis 29 ára, og The New York Times fjall­aði sér­stak­lega um í grein. Dán­ar­or­sök Sisi er ekki að fullu kunn en blaða­maður New York Times bendir á mögu­leik­ann á því að stöðugt nálægð hennar við kór­óna­veiruna á spít­al­anum þar sem hún vann við að hjálpa fólk með Covid-19 sjúk­dóm­inn kunni að spila þar inn í. „Ónæm­is­kerfi hennar, líkt og hjá mörgum öðrum heil­brigð­is­starfs­mönnum kann að hafa verið orðið veikt vegna þess hversu mikið hún var útsett fyrir sjúk­dómnum.“ 

Í sænska blað­inu Dagens Nyheter í gær var birt grein um þetta og af hverju svo mik­il­vægt er að sjá heil­brigð­is­starfs­fólki fyrir besa mögu­lega útbún­aði og hlífð­ar­klæðn­aði til að verja það gegn vírusnum. Bæði Svíþjóð og Ísland geta litið til Kína og Ítalíu sem for­dæma að þessu leyti þar sem svo margir ungir og mið­aldra læknar hafa látið líf­inu, sér­stak­lega í upp­hafi þess að Covid-far­aldr­inum braust út í lönd­unum.

Í grein eins af vís­inda­blaða­mönnum Dagens Nyheter, Amina Manzoor, segir meðal ann­ars um þetta: „Það eru til nokkrar rann­sóknir sem benda ti að mann­eskjur sem eru mjög sjúkar af Covid-19 séu með meira magn af vírusum í lík­am­anum en ein­stak­ingar sem eru ekki eins sjúkir og eru með minni ein­kenni. Sams konar reynsla var af SARS-sjúk­dómnum og almennri inflú­ensu,“ segir Manzoor en af þessu leiðir að þeir sem verða fyrir vírusnum frá þessum ein­stak­lingum eru í meiri hættu. 

Hún bendir svo á hið aug­ljósa að ef læknar og heil­brigð­is­starfs­fólk veik­ist vegna þess að hlífð­ar­bún­aður þess er ekki nægi­lega góður og að þá séu einnig færri hendur til að lækna þá sem sýkj­ast af Covid-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár