Hvernig COVID-19 herjar á Hveragerði: „Komin af stað í ferðalag sem við pöntuðum ekki“

Fimmt­ungur bæj­ar­búa í Hvera­gerði var á sama tíma í sótt­kví og bær­inn fast að því lamaður. Vel á annan tug fólks er smitað af COVID-19 kór­óna­veirunni í bænum og sam­fé­lagið varð fyrir áfalli þegar fyrsta dauðs­fall Íslend­ings af völdum veirunnar reið yfir bæinn. Þrátt fyrir allt þetta ríkir ein­hugur, kær­leikur og sam­heldni í bæj­ar­fé­lag­inu, nú sem aldrei fyrr. Hver­gerð­ingar ætla sér að kom­ast í gegnum far­ald­ur­inn, saman. „Þetta líður hjá,“ er orð­tæki bæj­ar­búa.

Hvernig COVID-19 herjar á Hveragerði: „Komin af stað í ferðalag sem við pöntuðum ekki“
Þetta líður hjá Þetta líður hjá er orð­tæki sem Hver­gerð­ingar nota þessa dag­ana mikið. Þrátt fyrir áföll stenda bæj­ar­búar þétt saman og hugsa um náung­ann. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þegar setja þarf 250 börn, sum hver aðeins 6 eða 7 ára gömul í sótt­kví, í bæj­ar­fé­lagi sem í búa 2.700 manns er aug­ljóst að afleið­ing­arnar eru gríð­ar­legar.  Þetta neydd­ust Hver­gerð­ingar til að gera um miðjan þennan mánuð þegar í ljós kom að starfs­maður við grunn­skól­ann í bænum reynd­ist smit­aður af COVID-19 kór­óna­veirunni.

Allt í allt má áætla að um 500 manns hafi verið í sótt­kví á sama tíma í bænum, sótt­kví sem ekki var aflétt fyrr en síð­ast­lið­inn mánu­dag. Þrátt fyrir það haga íbúar Hvera­gerðis sér enn að mörgu leyti eins og þeir séu enn í sótt­kví. Fólk vinnur heima ef kostur er, fer lítið um, hittir fáa, heldur fjar­lægð.

Konan látin og maður í lífshættu

Hvera­gerði hefur orðið illa fyrir barð­inu á kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Þetta litla sveit­ar­fé­lag sem helst hefur verið þekkt fyrir gróð­ur­hús, jarð­hita, ísgerð, tívolí og apana í Eden í gegnum tíð­ina varð fyrsta sam­fé­lagið til að missa mann­eskju af völdum COVID-19 veirunnar þegar 71 árs gömul kona lést síð­ast­lið­inn mánu­dag. Konan hafði búið í Hvera­gerði ára­tugum saman. 

„Það ríkir meiri náungakærleikur núna en áður og við þurfum að reyna að finna leiðir til að halda í hann þegar þessum ósköpum öllum líkur“

Á sama tíma lýsa íbúar því að sam­hugur og ein­drægni sé það sem ein­kennir bæj­ar­brag­inn, og ekki síst eftir þetta mikla högg sem frá­fall kon­unnar var. Hver­gerð­ingar biðja til góðra vætta og senda bar­áttu­kveðjur til eft­ir­lif­andi eig­in­manns kon­unnar sem liggur alvar­lega veikur á gjör­gæslu og berst þar við sömu veiru.

Þrátt fyrir þessi áföll öll ríkir bar­áttu­hugur í Hvera­gerði og íbúar ætla sér að kom­ast út úr brim­skafl­inum saman. Hver­gerð­ingar vísa í því sam­hengi í lista­verk lista­mann­anna Elísa­betar Jök­uls­dóttur og Matth­í­asar Rúnars Sig­urðs­sonar sem stendur á bakka Varmár og segja: Þetta líður hjá. Því einnig þessir erf­ið­leikar líða hjá. „Það ríkir meiri náunga­kær­leikur núna en áður og við þurfum að reyna að finna leiðir til að halda í hann þegar þessum ósköpum öllum líkur,“ segir íbúi í Hvera­gerði. 

Síðasta mán­uð­inn hafa Íslend­ingar tek­ist á við COVID-19 veiru­far­ald­ur­inn af síauknu afli, með til­heyr­andi breyt­ingum á þjóð­líf­inu. Þó flestir sem hafa smit­ast séu búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og sömu­leiðis flestir þeir sem hafa þurft að fara í sótt­kví, þá hitta afleið­ingar far­ald­urs­ins lands­menn alla fyrir, með sam­komu­banni, röskun á ferðum milli landa, tíma­bundnu hruni ferða­þjón­ust­unnar sem atvinnu­greinar og efna­hags­legum afleið­ingum sem ekki sér fyrir end­ann á. 

Heilsu­stofn­un­inn lokaðHeilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði var lokað í dag en að jafn­aði dvelja þar um 150 gestir.

Allt að fimmtungur íbúa í sóttkví á sama tíma

Hvera­gerði hefur orðið fyrir víð­tæku raski vegna far­ald­urs­ins. 14. mars voru á milli 250 og 300 nem­endur við grunn­skól­ann í bænum skip­aðir í sótt­kví til 23. mars, sam­kvæmt til­mælum lög­reglu, sótt­varn­ar­yf­ir­valda og almanna­varna, eftir að í ljós kom að starfs­maður við skól­ann var smit­aður af COVID-19 veirunni. Nemendur allra bekkja, utan 3., 8. og 9. bekkja urðu því að fara í sótt­kví auk þess sem að hluti starfs­manna og kenn­ara við skól­ann urðu einnig að gera slíkt hið sama vegna sam­skipta við umræddan starfs­mann. 

„Ég hugsa að það hafi vel ríf­lega 500 manns verið í sótt­kví á einum og sama tím­anum“

„Þetta hafði eðli­lega mjög mikil áhrif á bæj­ar­brag­inn. Kannski urðu áhrifin af veiru­far­aldr­inum hvað fyrst og mest hér í Hvera­gerði, af land­inu öllu. Það hefur svo­lítið gleymst í umræð­unni að þegar þarf að setja 250 börn í sótt­kví, stóran hluta af þeim ung börn, þetta 6, 7 eða 8 ára, þá geta þau ekki verið ein heima. Þar af leið­andi þurfti stór hópur for­eldra líka að fara í sótt­kví með börn­unum, og jafn­vel yngri systk­ini þeirra líka. Sam­fé­lagið hér fór bara meira og minna í sótt­kví. Ég hugsa að það hafi vel ríf­lega 500 manns verið í sótt­kví á einum og sama tím­anum, á meðan að þessi skóla­sótt­kví varði,” segir Aldís Haf­steins­dóttir bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár