Dreifir gleði til að takast á við óttann

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir er ein þeirra fjöl­mörgu sem hafa skráð sig í bak­varða­sveit und­an­farna daga. Í dag mætir hún til starfa á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilið Lund á Hellu, ekki þó sem heil­brigð­is­starfs­maður heldur sem gleði­dreif­ari. Faðir Eddu, 97 ára, dvelur á Lundi. Þau feðgin hafa ekki sést svo vikum skiptir, öðru­vísi en í gegnum gler, svo búast má við fagn­að­ar­fundum.

Dreifir gleði til að takast á við óttann
Feðginin Und­an­farnar vikur seg­ist Edda hafa hangið á glugg­unum á Lundi, þar sem pabbi hennar dvelur, til þess að geta horft á hann meðan hún talar við hann í síma. Hún hittir hann í dag og hlakkar mikið til. Mynd: Úr einkasafni

Um síð­ustu helgi bók­aði Edda Björg­vins­dóttir leik­kona sig inn á Hótel Stracta á Hellu. Þar hefur hún verið í ein­angrun í góðu yfir­læti, lifað heil­næmu lífi og umfram allt haldið sig fjarri öllu fólki, í því miði að geta hafið störf á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Lundi sem allra fyrst sem með­limur bak­varða­sveitar heim­il­is­ins. „Ég get fús­lega játað að það er af mjög eig­in­gjörnum for­sendum sem ég vil vera einmitt þarna, en auð­vitað langar mig líka til að hjálpa við þessar aðstæður. Ég er með skáta­hjarta eins og pabbi minn og við tökum það mjög alvar­lega að gera góð­verk einu sinni á dag. Ég slæ tvær flugur í einu höggi með þessu, geri góð­verk og fæ að vera nálægt fjöl­skyldu minni líka. Pabbi minn er nefni­lega á þessu hjúkr­un­ar­heim­ili og dóttir mín er þar hjúkr­un­ar­for­stjóri,“ segir Edda. 

„Ég er með skáta­hjarta eins og pabbi minn“

Frá því ein­angrun Eddu hófst á hót­el­inu hefur hún verið í beinu sam­bandi við covid-teymi Land­spít­al­ans og sparar ekki hrósyrðin um starfs­fólk þess. „Ég er svo aðdá­un­ar­full yfir vinnu þessa teymis, sem ég hef verið í stöð­ugu sam­bandi við,“ segir Edda. Áður en hún fór í ein­angrun hafði hún verið í sjálf­skip­aðri sótt­kví svo vikum skipti og meðal ann­ars ekki hitt stóran hluta afkom­enda sinna. Nú hafi hún fengið grænt ljós hjá teym­inu um að henni sé óhætt að hefja störf. „Nú er ég orðin alveg örugg og hlakka bara alveg ofboðs­lega til. Fyrsta verk mitt verður að lesa fyrir fólkið á Lundi uppúr bók­inni sem ég var byrjuð á áður en heim­ilið lok­aði fyrir heim­sóknir – hrika­lega skemmti­leg bók um hana Guðrúnu Ásmunds, gleði­gjafa og vin­konu mína,“ segir hún. 

Lok, lok og læs

Í venju­legu árferði gæti Edda eflaust ekki dvalið lang­dvölum fyrir austan, enda hefur hún haft mikið að gera í starfi sínu sem leik­kona und­an­farin ár og mán­uði. Hún hefur einmitt nýlokið tökum á bíó­mynd gerðri eftir bók Auðar Jóns­dóttur, Skjálfta, í leik­stjórn Tinnu Hrafns­dóttur. „Tökum lauk akkúrat þegar allt fór í lás – lok, lok og læs. Fram að því hafði ég verið í tökum hálfa vik­una og hjá pabba á þessu ynd­is­lega hjúkr­un­ar­heim­ili, þar sem hann var í hvíld­ar­inn­lögn, hinn helm­ing vik­unnar. Þá hvarfl­aði að mér að það væri stór­snjallt hjá mér að semja við Stracta-hót­elið á Hellu um að fá að setja mig þar í ein­angrun í dálít­inn tíma, svo að ég geti nú komið á hverjum degi á hjúkr­un­ar­heim­ilið, gert þar eitt­hvert gagn og dreift gleði til að takast á við ótt­ann. Ég myndi hvort sem er helst vilja hanga þar öllum stundum sem ég hef fríar, til að vera nálægt honum pabba. Það eru allir svo örlátir og fullir af vilja til að hjálpa, þannig að við komumst að dásam­legu sam­komu­lagi, frá­bæra fólkið á Stracta og ég.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár