Eva er í New York: „Þori ekki að hugsa út í það versta sem gæti gerst“

Dæmi eru um að íbúar í New York hafi ekki farið út úr húsi svo vikum skiptir af ótta við COVID-19. Þetta segir Eva Ing­ólfs­dóttir fiðlu­leik­ari sem býr og starfar í borg­inni. Hlerum er slegið fyrir glugga versl­ana og fyr­ir­tækja.

Aldrei upplifað annað eins
Aldrei upp­lifað annað eins Eva, sem er hér með dóttur sinni Andreu sem býr í Brooklyn í New York, segir að ástandið í borg­inni sem aldrei sefur sé full­kom­lega súr­r­eal­ískt nú þegar COVID-19 far­ald­ur­inn geysar þar. Mynd: Úr einkasafni

Eva Ing­ólfs­dóttir fiðlu­leik­ari segir að hún hafi aldrei, á þeim sautján árum sem hún hefur búið í New York borg í Banda­ríkj­unum, upp­lifað nokkuð eins og ástandið sem COVID-19 far­ald­ur­inn þar hefur haft í för með sér. Hvergi í Banda­ríkj­unum er ástandið jafn alvar­legt og í New York ríki, þar sem yfir 75 þús­und til­felli af veiru­sýk­ing­ing­unni voru stað­fest seinnipart dags í gær, meira en fimm­falt fleiri en í nokkru öðru ríki Banda­ríkj­anna. Yfir eitt þús­und eru látnir þar af völdum sjúk­dóms­ins. 

Eva býr í New York ásamt manni sínum Kristni Helga­syni, sem starfar fyrir Sam­ein­uðu þjóð­irnar þar ytra, og dóttur þeirra Andreu Krist­ins­dóttur. Þau hafa búið í New York frá árinu 2003 og þekkja því borg­ina að segja má inn og út. „Við höfum aldrei upp­lifað neitt þessu líkt hér áður. Fyrir þessa borg er þetta ástand algjör­lega súr­r­eal­ískt. Fyrir þremur vikum síðan hefði eng­inn getað ímyndað sér að nokkuð svona lagað gæti gerst,“ segir Eva.

„Ég veit um marga sem ekki hafa farið út úr húsi í tvær vikur, sumir lengur“

Þau hjón eru búsett í hverf­inu Upper West Side á Man­hattan, nálægt Central Park. „Í grunn­inn er þetta frekar rólegt hverfi og hér býr mikið af eldra fólki. Það er svo mikil hræðsla í fólki hérna núna, á þessum síð­ustu dögum, að ég veit um marga sem ekki hafa farið út úr húsi í tvær vikur, sumir lengur. Fólk er mjög ótta­slegið, veru­lega hrætt við að hitta annað fólk eða koma nálægt öðrum, af ótta við veiruna. Það kemur mér líka svo­lítið á óvart að það virð­ist vera mik­ill ótti hjá ungu fólki líka,“ segir Eva enn­fremur.

Meira að segja áfengisverslanir lokaðar

Eva segir það vera sína upp­lifun að fólk sé passa­samt. Það gæti sín mjög á að nálg­ast ekki aðra um of, virði fjar­lægð­ar­merk­ingar í versl­unum og víki þegar það mæti fólki á götu. „Þó fólk sé ótta­slegið, þá sýnir það öðrum til­lits­semi.“

Hins vegar megi segja að sífellt minna reyni á þessa passa­semi þar sem sífellt færra fólk sé á ferð­inni. Enda ekki margt að sækja í raun. „Það eru tvær mat­vöru­versl­anir í hverf­inu hjá okkur sem eru enn opnar en maður hefur fylgst með öðrum versl­unum og fyr­ir­tækjum loka dag frá degi, það eru bara dregnir hlerar fyrir glugga. Meira að segja áfeng­is­versl­anir, sem hafa nú verið mjög vin­sælar hingað til, þær eru að loka.“

Eva er fiðlu­leik­ari og starfar sjálf­stætt við það. Hún segir að búið sé að aflýsa öllum við­burðum sem hún átti að taka þátt í næstu vikur og mán­uði. Hún vinnur þó heima við að semja músík og er með verk­efni þessa dag­ana sem hún getur sinnt heima. Kristinn vinnur líka heima og það eru nokkur við­brigði að þau séu bæði heima alla daga, allan dag­inn. „Við eigum hund og það er mjög gott fyrir okkur að hann dregur okkur út á morgn­ana í göngut­úra, það er, held ég, mjög mik­il­vægt fyrir okkur bæði and­lega og lík­am­lega. Við göngum um Central Park dag­lega og það er afskap­lega fámennt þar þessa dag­ana. Það eru helst aðrir hunda­eig­endur sem við sjáum og svo ein­staka hlaup­andi mann­eskja eða fólk á hjóli. Ég heyrði um dag­inn fréttir af því frá sam­tökum sem bjóða fólki upp á að taka að sér dýr, að fólk hefði tekið að sér öll dýr þaðan. Fólk er að greini­lega að leita sér að félags­skap, það er ein­mana og sækir í að fá gælu­dýr þessa dag­ana.“

Fara ekki til Íslands vegna hundsins

Eva segir að ekki hafi komið til greina fyrir þau hjón að fara heim til Íslands, eins og svo margir landar þeirra hafa gert, vegna þess að þau séu með dýr. Þau hafi ekki viljað sjá á eftir hund­inum í margra vikna sótt­kví. Ef ekki hefði verið fyrir það hefðu þau velt því alvar­lega fyrir sér að koma til Íslands á meðan veiru­far­ald­ur­inn geis­aði í New York.

„Ég bara þori ekki að hugsa út í það versta sem gæti gerst“

Eva segir erfitt að segja til um hvernig borg­inni muni reiða af, og hvernig mál muni þró­ast eftir að far­ald­ur­inn gengur yfir. Tjónið sem orðið er sé svo gríð­ar­legt, bæði mann­tjón og efna­hags­legt tjón. „Maður veit ekk­ert hversu lengi þetta mun vara en það mun auð­vitað allt verða gert til að koma á venju­legu lífi í New York. Maður verður að reyna að vera jákvæður, ég bara þori ekki að hugsa út í það versta sem gæti gerst.“

Yfir 1.000 látnir í New York

Um 900 manns lét­ust af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar í Banda­ríkj­unum öllum á síð­asta sól­ar­hring, sam­kvæmt opin­berum tölum frá Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna. Dauðs­föll af völdum veirunnar hafa ekki verið fleiri á einum sól­ar­hring þar vestra áður. Yfir 4.000 dauðs­föll af völdum veirunnar eru stað­fest í Banda­ríkj­unum öllum, sam­kvæmt tölum frá John Hopkins háskól­anum en þar er haldið utan um töl­fræði er varðar veiru­far­ald­ur­inn.

Það jafn­gildir um tíu pró­sentum af dauðs­föllum í heim­inum öllum. 

Staðfest smit í Banda­ríkj­unum voru í gær tæp­lega 190 þús­und tals­ins en stað­fest smit í heim­inum öllum á sama tíma 874 þús­und tals­ins. Lang­verst er ástandið í New York ríki en þar eru um 1.100 manns látnir af völdum veirunnar. Sjúkra­skip banda­ríska flot­ans, með um 1.000 sjúkra­rúm, kom til New York í gær til að létta álagi af sjúkra­húsum borg­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár