Býður Ólafur Ragnar sig fram til aðalritara Sameinuðu þjóðanna?

Óræður blaða­manna­fundur Ólafs Ragnars Gríms­sonar hefur verið tengdur við for­seta­fram­boð hans, en hann gæti ætlað sér stærra hlut­verk.

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti hefur boðað til blaða­manna­fundar síðar í dag, en vill ekki gefa upp efni fund­ar­ins. Efni fund­ar­ins gæti verið annað en end­ur­tekið for­seta­fram­boð Ólafs Ragnars.

Uppfært: Ólafur Ragnar býður sig aftur fram til for­seta Íslands þrátt fyrir að hafa áður boðað að það myndi hann ekki gera.

Leiddar hafa verið líkur að því að Ólafur ætli sér að bjóða sig aftur fram til emb­ættis for­seta Íslands, þótt hann hafi áður til­kynnt að hann hyggð­ist stíga úr stóli for­seta.

Ólíklegt þykir að Ólafur Ragnar haldi blaða­manna­fund án þess að gefa upp til­efnið, nema um sé að ræða stór­tíð­indi.

Nú stendur yfir und­ir­bún­ingur fyrir kosn­ingar í emb­ætti aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna. Kjör­tíma­bil Ban Ki-moon, núver­andi aðal­rit­ara frá Suður-Kóreu, lýkur 31. des­em­ber næst­kom­andi. 

Nú þegar hafa níu manns boðið sig fram í stöð­una, sem er ein mesta virð­ing­ar­staða heims. Und­an­farna daga hafa fram­bjóð­endur verið spurðir af alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í óform­legum kapp­ræðum.

Í frétt UN News Centre kemur fram að von gæti verið á fleiri fram­bjóð­endum á næstu vikum.

Ólafur með Pútín
Ólafur með Pútín Náin tengsl Ólafs Ragnars við umdeilda þjóð­ar­leið­toga hafa vakið umræður.

Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið orð­aður við stöð­una, þótt hann sé ekki á lista Wikipedia yfir þá sem nefndir hafa verið í fjöl­miðlum sem mögu­legir fram­bjóð­endur. Hann hefur lagt þunga áherslu á náin tengsl við helstu stór­veldin, Kína, Indland og Rússland, svo eitt­hvað sé nefnt.

Málið skýrist á blaða­manna­fundi á Bessa­stöðum klukkan 16.15 í dag. 

Eftirfarandi aðilar hafa þegar boðið sig fram

Reiknað er með að næsti aðal­rit­ari Sam­ein­un­uðu þjóð­anna verði lík­lega kona og/eða frá Austur-Evrópu, þar sem sögu­lega sé komið að þeim heims­hluta og breyttir tímar kalli á að kona gegni stöð­unni í fyrsta sinn.

Irina Bokova, 63 ára, frá Búlgaríu

Helen Clark, 66 ára, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands

Natalia Gherman, 47 ára, utan­rík­is­ráð­herra Moldóvu

António Guterres, 66 ára, frá Portúgal

Vuk Jeremic, 40 ára, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Serbíu

Srgjan Kerim, 67 ára, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Makedóníu

Igor Luksic, 39 ára, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Svart­fjalla­lands

Vesna Pusic, 63 ára, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Króatíu

Danilo Turk, 64 ára, fyrr­ver­andi for­seti Slóveníu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

SkoðunForsetakosningar 2016

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár