Svar ráðherra um styrki til Nýsköpunarmiðstöðvar var rangt

Rangar upp­lýs­ingar birt­ust í svari Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur við fyr­ir­spurn þing­manns Pírata vegna styrkja úr sam­keppn­is­sjóðum til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar. Styrkir voru sagðir hærri en þeir eru og úr færri sjóðum.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, birti rangar upp­lýs­ingar í svari sínu vegna fyr­ir­spurnar Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um styrki til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands úr opin­berum sam­keppn­is­sjóðum sem birt­ist á vef Alþingis 1. mars síð­ast­lið­inn. Kjarninn greindi ítar­lega frá svar­inu en sam­kvæmt því hafði Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands fengið 875 millj­ónir króna úthlutað í styrka frá árs­byrjun 2007 til loka árs 2015 úr tveimur sjóðum, Rann­sókn­ar­sjóði og Tækni­þró­un­ar­sjóði. Alls hefði mið­stöðin sóst eftir 2,3 millj­örðum króna og því fengið 38 pró­sent af þeirri upp­hæð sem hún sótt­ist eftir.

Í kjöl­far frétta­skýr­ingar Kjarnans, sem byggði á svari ráð­herr­ans, bár­ust ábend­ingar um að þetta gæti ekki stað­ist. Styrkirnir sem um ræddi hlytu að koma úr fleiri sjóðum en þessum tveimur og þá þótti hlut­fall þeirra styrkja­beiðna Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar sem sam­þykktar voru vera grun­sam­lega hátt miðað við það sem gengur og ger­ist hjá öðrum tíðum styrkj­ar­beið­endum.

Svar ráðherrans rangt

Kjarninn sendi því fyrspurn á ráðu­neytið og bað um útskýr­ingar á þessu. Í svari ráðu­neyt­is­ins er geng­ist við því að taflan sem birt var í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn þing­manns Pírata hafi verið röng. Svarið til Helga Hrafns hefur nú verið upp­fært með réttum upp­lýs­ingum.

Hið rétta er að Nýsköp­un­ar­mið­stöð hefur fengið tæp­lega 538 millj­ónir króna úr opin­berum sam­keppn­is­sjóðum á árunum 2007-2015 en sótt um 2,3 millj­arða króna. Því hafa 23,3 pró­sent umsókna sem mið­stöðin hefur komið að verið sam­þykktar. Langstærsti hluti umsóknar Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar hafa verið í þá sjóði sem Rannís hefur umsjón með: Tækni­þró­un­ar­sjóð, Rann­sókn­ar­sjóð, Inn­viða­sjóð og M-era.net, sjóður sem fjár­magn­aður er af Evr­ópu­sam­band­inu. Alls hefur Nýsköp­un­ar­mið­stöðin sótt um, annað hvort sem aðal­um­sækj­andi eða með­um­sækj­andi, um 1.746 millj­ónir króna í þessa sjóði á tíma­bil­inu. Alls hefur það fengið 360,2 millj­ónir króna úr sjóð­unum, eða 20,6 pró­sent þess sem sótt hefur verið um.

Næst mest fjár­magn hefur komið frá AVS sjóð­inum, rann­sókn­ar­sjóði í sjáv­ar­út­vegi, (44,2 millj­ónir króna) Vega­gerð­inni (40,6 millj­ónir króna), Orku­sjóði (32,1 millj­ónir króna), Íbúða­lána­sjóði (35,2 millj­ónir króna), úr sjóðnum Georg (fimm millj­ónir króna) og frá öðrum opin­berum sjóðum (20,5 millj­ónir króna).

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er stofnun sem heyrir undir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Hlutverk hennar, sam­kvæmt lögum um hana, er „að styrkja sam­keppn­is­stöðu íslensks atvinnu­lífs og auka lífs­gæði í land­inu“. Á árinu 2015 fékk mið­stöðin 537 millj­ónir króna í bein fram­lög úr rík­is­sjóði. Í ár er áætlað, sam­kvæmt fjár­lögum, að hún fá sam­tals 569 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og muni auk þess afla sér­tekna upp á 843 millj­ónir króna.

Samkvæmt lögum um Nýsköp­un­ar­mið­stöð fær hún tekjur sínar frá fram­lögum úr rík­is­sjóði, þjón­ustu­gjöldum, fjár­magnstekjum, tekjum vegna hlut­deildar í félögum og „öðrum tekjum“. Aðrar tekjur eru styrkir sem mið­stöðin sækir í, meðal ann­ars hjá sam­keppn­is­sjóðum sem hið opin­bera fjár­magnar.

Úthlutun úr Orkusjóði umdeild

Úthlut­anir styrkja til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands komust í fréttir í októ­ber 2015 þegar Frétta­blaðið greindi frá því að mið­stöðin hefði fengið fjórð­ung þeirra styrkja sem Orku­sjóður hafði nýverið úthlutað til alls ell­efu verk­efna. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að for­maðurnefnd­ar­innar sem velur hverjir fá styrki, Árni Sig­fús­son, er bróðir for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Þor­steins Inga Sig­fús­sonar. Árni vék ekki sæti þegar fjallað var um styrk­veit­ing­una. Árni kall­aði umfjöllun Frétta­blaðs­ins „ljótan leik“ í sam­tali við Stundina. Hann hafn­aði því að eitt­hvað væri athuga­vert við úthlut­un­ina, enda væri hún til rík­is­stofn­unar, ekki per­sónu­lega til bróður hans.

For­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins Valorku kvart­aði til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins og taldi Árna vera van­hæfan til að koma að úthlutun styrka til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar vegna vensla. Hann vildi meina að máls­með­ferðin hafi getað verið í and­stöðu við stjórn­sýslu­lög. Í öðrum kafla þeirra segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu".

Kjarninn greindi frá því í byrjun viku að umboðs­maður Alþingis hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Árni hefði verið van­hæfur til að veita styrki úr Orku­sjóði til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar í fyrra­haust vegna vensla við for­stjóra mið­stöðv­ar­innar. Hann taldi enn fremur að úthlut­anir úr Orku­sjóði í fyrra­haust hafi þar af leið­andi ekki verið í sam­ræmi við lög.

Í yfir­lýs­ingu sem Árni sendi frá sér í kjöl­farið sagð­ist hann virða nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis. Miðað við nið­ur­stöð­una hafi málið reynst hans mis­tök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár