Ráðuneytið telur rétt að bíða með að svara hvort Árni Sigfússon hafi verið vanhæfur

Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið telur rétt að bíða með að svara því hvort Árni Sig­fús­son, for­maður stjórnar Orku­sjóðs, hafi verið van­hæfur til að taka ákvarð­anir um styrki til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands sökum vensla. Ráðu­neytið stað­festir að kvörtun vegna máls­ins hafi borist og að það sé í form­legri skoðun í ráðu­neyt­inu. Réttast sé hins vegar að bíða eftir form­legri nið­ur­stöðu þeirrar skoð­unar áður en nokkuð sé full­yrt af hálfu ráðu­neyt­is­ins um hæfi eða van­hæfi Árna. Annars gæti ráðu­neytið verið van­hæft til að fjalla um kvörtun­ina.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær­morgun að Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands hefði fengið sam­tals 4,6 millj­ónir króna í styrk­veit­ingu frá Orku­sjóði í ár. Formaður nefndar sem gerir til­lögu um styrk­veit­ingar úr Orku­sjóði er Árni Sig­fús­son en bróðir hans, Þor­steinn Ingi Sig­fús­son, er for­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar.

Einn umsækj­end­anna um styrk í Orkusjóð, Valorka, hefur kvartað til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna styrk­veit­inga til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar og telur að aðkoma Árna að þeim sé í and­stöðu við stjórn­sýslu­lög vegna vensla hans við Þorstein. Í öðrum kafla þeirra segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu“.

Um fjórð­ungur allra styrka sem Orku­sjóður deildi út í ár fór til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, sem er stofnun á fjár­lögum.

Segja alla mega sækja um, líka stofnanir


Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna máls­ins í gær­kvöldi.

Þar sagði að engin tak­mörk væru á því hverjir mættu sækja í Orkusjóð önnur en þau að Orku­stofnun sé það óheim­ilt þar sem hún ann­ast rekstur sjóðs­ins. "Fjölmörg dæmi eru um að stofn­anir og háskólar hafi fengið styrki úr sjóðnum. Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er meðal þeirra og hlaut m.a. styrk úr sjóðnum árið 2012. Stjórn Orku­sjóðs gerir til­lögu um styrk­veit­ingar til ráð­herra og byggir sú ráð­gjöf á fag­legu mati Orku­stofn­unar á ein­stökum verk­efnum. Umrædd verk­efni Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar voru á meðal þeirra verk­efna sem fengu jákvæð­asta umsögn."

Í til­kynn­ing­unni var einnig til­tekið að fyr­ir­tækið Valorka hefði fengið ýmsa opin­bera styrki á und­an­förnum árum. Alls nemi þeir 51,7 milljón króna frá árinu 2008.

Ný nefnd skipuð í byrjun árs


Orku­sjóður er í eigu rík­is­ins og er hlut­verk hans að stuðla að hag­kvæmri nýt­ingu orku­linda lands­ins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða sem miða að því að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Yfir­um­sjón og ábyrgð með sjóðnum er hjá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Í des­em­ber í fyrra sam­þykkti Alþingi að gera breyt­ingar á lögum um Orkusjóð. Í þeim breyt­ingum fólst meðal ann­ars að Orkuráð var lagt niður en í stað þess á iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra að skipta þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til fjög­urra ára sem hefur það hlut­verk að gera til­lögur til ráð­herra um lán­veit­ingar og ein­stakar greiðslur úr Orku­sjóði sam­kvæmt fjár­hags- og greiðslu­á­ætlun sjóðs­ins.

Laga­breyt­ingin tók gildi 1. jan­úar 2015 og í byrjun árs skip­aði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, þrjá ein­stak­linga í ráð­gjafa­nefnd­ina. Þeir eru Árni Sig­fús­son, Franz Viðar Árnason og Halla Hrund Loga­dóttir.

Árni var auk þess skip­aður for­maður nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár