Fjórðungur styrkja úr Orkusjóði fóru til stofnunar sem bróðir formanns nefndar stýrir

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands fékk tæpan fjórð­ung þeirra styrkja sem Orku­sjóður úthlut­aði til alls ell­efu verk­efna fyrr í þessum mán­uði. Fjallað var um úthlut­un­ina á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag sökum þess að for­maður nefnd­ar­innar sem velur hverjir fá styrki, Árni Sig­fús­son, er bróðir for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Þor­steins Inga Sig­fús­sonar. Árni vék ekki sæti þegar fjallað var um styrk­veit­ing­una.

Ljóst er að hæfi Árna til að koma að þeirri máls­með­ferð gæti mögu­lega verið í and­stöðu við stjórn­sýslu­lög. Í öðrum kafla þeirra segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu".

En styrk­veit­ingar til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar, sem er á fjár­lögum, úr sam­keppn­is­sjóðum hafa verið gagn­rýndar vegna ýmissa ann­arra ástæðna. Hlutverk hennar sam­kvæmt lögum er að aðstoða frum­kvöðla, ekki keppa við þá um styrki.

Árni formaður nýrrar nefndar

Orku­sjóður er í eigu rík­is­ins og er hlut­verk hans að stuðla að hag­kvæmri nýt­ingu orku­linda lands­ins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða sem miða að því að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Yfir­um­sjón og ábyrgð með sjóðnum er hjá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Í des­em­ber í fyrra sam­þykkti Alþingi að gera breyt­ingar á lögum um Orkusjóð. Í þeim breyt­ingum fólst meðal ann­ars að Orkuráð var lagt niður en í stað þess á iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra að skipta þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til fjög­urra ára sem hefur það hlut­verk að gera til­lögur til ráð­herra um lán­veit­ingar og ein­stakar greiðslur úr Orku­sjóði sam­kvæmt fjár­hags- og greiðslu­á­ætlun sjóðs­ins.

Laga­breyt­ingin tók gildi 1. jan­úar 2015 og í byrjun árs skip­aði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, þrjá ein­stak­linga í ráð­gjafa­nefnd­ina. Þeir eru Árni Sig­fús­son, Franz Viðar Árnason og Halla Hrund Loga­dóttir.

Árni var auk þess skip­aður for­maður nefnd­ar­innar.

Árni er vel­þekktur úr íslensku stjórn­mála­lífi. Hann var borg­ar­full­trúi í Reykja­vík fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í þrettán ár á níunda og tíunda ára­tugnum og var borga­stjóri höf­uð­borg­ar­innar í nokkra mán­uði árið 1994. Árni varð síðar bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ í tólf ár fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá árinu 2002 og fram að síð­ustu kosn­ingum, vorið 2014, þegar flokkur hans tap­aði miklu fylgi og missti völdin í sveita­fé­lag­inu. Árni situr enn sem óbreyttur aðal­full­trúi í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar og er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar. Starf bæj­ar­full­trúa er hluta­starf.

Und­an­farið ár hefur Árni fengið nokkur verk­efni frá rík­inu. Þann 22. októ­ber 2014 skip­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verk­efna­stjórn sem hefur það hlut­verk að fylgja eftir útbreiðslu og notkun raf­rænna skil­ríkja. Sú verk­efna­stjórn réð síðan Árna sem verk­efna­stjóra inn­leið­ingar raf­rænna skil­ríkja.

Tæpur fjórðungur til Nýsköpunarmiðstöðvar

Ráð­gjafa­nefnd Orku­sjóðs gerir til­lögu um úthlut­anir og ráð­herr­ann tekur ákvarð­anir um þær á grund­velli þeirra til­lagna. Umsýsla sjóðs­ins er hins vegar hjá Orku­stofnun.

Tilkynnt var um styrki Orku­sjóðs til 11 verk­efna á vef Orku­stofn­unar 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Eft­ir­far­andi aðilar hlutu styrki:

Íslensk Nýorka Drægni­reiknir fyrir raf­bíla 1.400.000
ElCorrect ehf. Greining á örorku­nýt­ingu til upp­færslu á rafsíu 2.300.000
Ivar G. Ingv­ars­son Íslensku jarð­vegur – órann­sökuð orku­auð­lind 1.700.000
Orkey ehf. Vinnsla á fitu- og úrgangi til líf­dís­ils­fram­leiðslu 1.000.000
Sigurður Brynjóls­son Brenni­steins­vetni frá jarð­varma­virkj­unum nýtt til fram­leiðslu á líf­efnum 750.000
ReSource International ehf. Production of biofuel from fish-oil by-products 1.500.000
Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands Ljósveiðar - orku­sparn­aður í tog­veiðum 3.600.000
Sigfús Björns­son, próf. Þróun og smíði lífofns til rækt­unar tví­hama örþör­unga 1.500.000
Sigurður Karl Jónsson Færanleg tvennd­ar­vél 2.100.000
Unn­steinn Her­manns­son End­ur­nýj­an­leg orka í land­bún­aði 2.400.000
Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands Vistvænt elds­neyti úr afgasi jarð­hita­virkj­ana 1.000.000
Samtals kr. 19.250.000

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands hlaut hæsta ein­staka styrk­inn, alls 3,6 millj­ónir króna, vega verk­efnis sem kall­ast Ljósveiðar og snýst um orku­sparnað í tog­veiðum. Nýsköp­un­ar­mið­stöðin hlaut einnig annan styrk, upp á eina milljón króna, segna ann­ars verk­efnis sem snýst um gerð vist­væns elds­neytis úr afgasi jarð­hita­virkj­ana. Samtals fékk Nýsköð­un­ar­mið­stöðin 24 pró­sent þeirra styrkja sem veittir voru að þessu sinni.

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er stofnun sem heyrir undir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Hlutverk hennar, sam­kvæmt lögum um hana, er „að styrkja sam­keppn­is­stöðu íslensks atvinnu­lífs og auka lífs­gæði í land­inu“. Á árinu 2015 fær mið­stöðin 537 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Á næsta ári, árinu 2016, mun hún fá sam­tals 569 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og mun auk þess afla sér­tekna upp á 843 millj­ónir króna, sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi.

Samkvæmt lögum um Nýsköp­un­ar­mið­stöð fær hún tekjur sínar frá fram­lögum úr rík­is­sjóði, þjón­ustu­gjöldum, fjár­magnstekjum, tekjum vegna hlut­deildar í félögum og „öðrum tekjum“. Aðrar tekjur eru meðal ann­ars styrkir sem mið­stöðin sækir í. Til dæmis hjá Orku­sjóði.

Segir Ragnheiði Elínu ekki hafa svarað erindi sínu

Daginn áður en að Orku­sjóður birti yfir­lit yfir úthlut­anir í ár

birt­ist grein á vef fyr­ir­tæk­isnis Valorku,

sem vinnur að þróun tækni til nýt­ingar sjáv­ar­falla­orku í annesja­röstum. Greinin er eftir Valdimar Öss­ur­ar­son, fram­kvæmd­stjóra Valorku og for­mann Samtaka frum­kvöðla og hug­vits­manna. Í henni fer hann hörðum orðum um styrk­veit­ingar Orku­sjóðs til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands.

Þar rekur Valdimar að Valorka hafi fengið styrkt frá Tækni­þró­un­ar­sjóði nýverið. „Valorka fagnar að sjálf­sögðu þess­ari líf­línu, sem kom á síð­ustu stundu; verk­efnið hefði að öðrum kosti drep­ist á þessu sumri þrátt fyrir góðan árangur,“ segir Valdimar í grein­inni.

Tækni­þró­un­ar­sjóður gerir hins vegar kröfu um 50 pró­sent mót­fram­lag vegna sinna styrk­veit­inga. Á und­an­förnum árum hefur fram­lag úr Orku­sjóði riðið bagga­munin hjá Valorku svo að fyr­ir­tækið hafi getað haldið áfram sinni þróun.

Í ár var Valorku hins vegar synjað um styrk úr Orku­sjóði og, að sögn Valdi­mars, stefnir það verk­efni Valorku í bráða hætti, enda sé hann eina úrræðið sem Valorka hafi um mót­fram­lag við styrk Tækni­þró­un­ar­sjóðs. Hann hafi farið fram á að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, beitti heim­ild sinni til að breyta nið­ur­stöðu ráð­gjafa­nefndar Orku­sjóðar. Ráð­herr­ann hafi hins vegar ekki svarað erind­inu.

Segir styrkveitinguna ólögmæta

Það sem fer mest fyrir brjóstið á Valdi­mari eru úthlut­anir til Nýsköp­un­ar­sjóðs úr Orku­sjóði. Valdimar gerir þrí­þættar athuga­semdir við þær.

Í fyrsta lagi að Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands, sem er ætlað að vera frum­kvöðlum til ráð­gjafar og stuðn­ings, sé að sækja sjálf um styrki í sömu sjóði og þeir sem hún á að vera að aðstoða. Þannig sé mið­stöðin í sam­keppni við skjól­stæð­inga sína og sam­starfs­að­ila.

Í öðrum lagi segir hann styrk­ina til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar vera ámæl­is­verða vegna þess að mið­stöðin hafi mun fleiri mögu­leika en sér­hæfð þró­un­ar­verk­efni á borð við það sem Valorka vinnur að til að sækj­ast eftir stuðn­ingi við sín verk­efni. Ljós­vörpu­verk­efnið, sem fékk hæsta styrkin úr Orku­sjóði, sé til að mynda styrk­hæft úr þró­un­ar­sjóði sjáv­ar­út­vegs­ins. „Vítavert verður að telj­ast að hinu nauma styrkfé Orku­sjóðs sé ráð­stafað til aðila sem hafa slík úrræði og önnur verk­efni, sem þó heyra meira til sviðs orku­fram­leiðslu, eru sett á guð og gadd­inn. Hér er um for­kast­an­leg vinnu­brögð að ræða,“ segir Valdimar í grein sinni.

Í þriðja lagi segir hann að styrk­veit­ingar Orku­sjóðs til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar sé ólog­mæt, eins og að henni var staðið, þar sem for­maður ráð­gjafa­nefnd­ar­innar sem gerði til­lögu um styrk­veit­ing­arnar, Árni Sig­fús­son, og Þor­steinn Ingi Sig­fús­son, for­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar, séu bræður. Jakob Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Orku­stofn­unar, hefur stað­fest að Árni hafi ekki vikið sæti þegar styrk­veit­ingin var sam­þykkt. Valdimar telur því að styrk­veit­ingin stang­ist á við 2. kafla stjórn­sýslu­laga og hljóti að dæm­ast ómerk.

Þar segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu“.

Í Frétta­blað­inu í dag kemur fram að Valdimar hafi kært málið til ráðu­neyt­is­ins og kraf­ist end­ur­upp­töku styrk­veit­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár