Nýsköpunarmiðstöð hefur fengið 875 milljónir frá opinberum samkeppnissjóðum frá 2007

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands, sem er rík­is­stofnun, hefur fengið 875 millj­ónir króna í styrki úr opin­berum sam­keppn­is­sjóðum frá árinu 2007. Það er um 38 pró­sent af þeirri upp­hæð sem sjóð­ur­inn hefur sóst eftir.

Ragnheiður Elín Árnadóttir er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Nýsköpunarmiðstöð Íslands heyrir undir hana. Það gera styrktarsjóðirnir líka.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir er iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands heyrir undir hana. Það gera styrkt­ar­sjóð­irnir líka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Af þeim 2,3 millj­örðum króna Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands sótti um úr úr Rann­sókn­ar­sjóði og Tækni­þró­un­ar­sjóði, sam­keppn­is­sjóðum sem fjár­magn­aðir eru með opin­beru fé, á árunum 2007 til loka árs 2015 hefur hún fengið 875 millj­ónir króna. Mið­stöðin hefur alls skilað inn 274 umsóknum á tíma­bil­inu og hlotið 183 styrki.

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er stofnun sem heyrir undir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Hlutverk hennar, sam­kvæmt lögum um hana, er „að styrkja sam­keppn­is­stöðu íslensks atvinnu­lífs og auka lífs­gæði í land­inu“. Á árinu 2015 fékk mið­stöðin 537 millj­ónir króna í bein fram­lög úr rík­is­sjóði. Í ár er áætlað, sam­kvæmt fjár­lögum, að hún fá sam­tals 569 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og muni auk þess afla sér­tekna upp á 843 millj­ónir króna.

Samkvæmt lögum um Nýsköp­un­ar­mið­stöð fær hún tekjur sínar frá fram­lögum úr rík­is­sjóði, þjón­ustu­gjöldum, fjár­magnstekjum, tekjum vegna hlut­deildar í félögum og „öðrum tekjum“. Aðrar tekjur eru styrkir sem mið­stöðin sækir í, meðal ann­ars hjá sam­keppn­is­sjóðum sem hið opin­bera fjár­magnar.

Sækir í flestum tilfellum um styrki með öðrum

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, beindi fyr­ir­spurn til Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og spurði hvort Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands hefði sótt um eða fengið styrki úr sam­keppn­is­sjóðum og á hvaða laga­grund­velli það væri gert. Auk þess óskaði hann eftir upp­lýs­ingum um umfang þeirra styrkja sem mið­stöðin hafði fengið.

Svar Ragn­heiðar Elínar barst í gær. Þar segir að Nýsköp­un­ar­mið­stöðin geti sótt um styrki á grund­velli laga um opin­beran stuðn­ing við tækni­rann­sóknir, nýsköpun og atvinnu­þróun frá árinu 2007. „Nýsköp­un­ar­mið­stöð styður við frum­kvöðla og sprota­fyr­ir­tæki, m.a. með því að veita þeim hús­næði, ráð­gjöf, leið­sögn og upp­lýs­ingar[...]Nýsköp­un­ar­mið­stöð sækir í flestum til­fellum um styrki með öðrum, svo sem sprota­fyr­ir­tækjum eða fyr­ir­tækjum sem eru í rann­sóknum og þróun. Því er það aðeins hluti styrks­ins sem sótt er um sem rennur til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar,“ segir enn fremur í svar­inu.

Þar er síðan birt tafla sem sýnir að Nýsköp­un­ar­mið­stöð hefur fengið 38 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem hún hefur sóst eftir úr ofan­greindum tveimur sam­keppn­is­sjóðum frá árinu 2007. Alls hefur mið­stöðin fengið 875,3 millj­ónir króna í styrki á tíma­bil­inu en hún sóst eftir 2,3 millj­arða króna í slíka á því. Sá fyr­ir­vari er sleg­inn í svari Ragn­heiðar Elínar að hluti umsókna sem skilað var inn árið 2015 sé enn í umsókn­ar­ferli og nið­ur­staða þeirra liggur ekki fyrir. Gert er ráð fyrir því í svar­inu að nið­ur­staða þeirra verði jákvæð.

Fjórðungur styrkja fór til Nýsköpunarmiðstöðvar

Úthlut­anir styrkja til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands komust síð­ast í fréttir í októ­ber 2015 þegar Frétta­blaðið greindi frá því að mið­stöðin hefði fengið fjórð­ung þeirra styrkja sem Orku­sjóður hafði nýverið úthlutað til alls ell­efu verk­efna. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að for­maður nefnd­ar­innar sem velur hverjir fá styrki, Árni Sig­fús­son, er bróðir for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Þor­steins Inga Sig­fús­sonar. Árni vék ekki sæti þegar fjallað var um styrk­veit­ing­una. Árni kall­aði umfjöllun Frétta­blaðs­ins „ljótan leik“ í sam­tali við Stundina. Hann hafn­aði því að eitt­hvað væri athuga­vert við úthlut­un­ina, enda væri hún til rík­is­stofn­unar, ekki per­sónu­lega til bróður hans.

For­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins Valorku kvart­aði til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins og taldi Árna vera van­hæfan til að koma að úthlutun styrka til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar vegna vensla. Hann vildi meina að máls­með­ferðin hafi getað verið í and­stöðu við stjórn­sýslu­lög. Í öðrum kafla þeirra segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu".

Frétta­skýr­ingin var upp­færð 11:30 til að leið­rétta rang­færslur sem upp­haf­lega voru í henni. Um er að ræða heild­ar­styrkjaum­sóknir Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar en ekki heild­ar­út­hlut­anir sjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár