Árni Sigfússon: Virðir niðurstöðuna og segir sig úr nefndinni

Árni Sig­fús­son seg­ist virða nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis um að hann hafi verið van­hæfur til að taka ákvarð­anir um að veita styrki úr Orku­sjóði til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands sökum vensla við for­stjóra stofn­un­ar­innar, sem er bróðir hans. Miðað við nið­ur­stöð­una hafi málið reynst hans mis­tök.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Árni sendi Kjarn­anum í kjöl­far fréttar hans um nið­ur­stöðu umboðs­manns fyrr í dag. Árni segir að ef hann hefði fengið minnstu vís­bend­ingu um að það kynni að orka tví­mælis að hann tæki þátt í til­lögum til ráðu­neytis um styrk­veit­ingar, vegna þess að sótt var um m.a. í nafni Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, hefði hann setið hjá við afgreiðslu um verk­efnið, eða vikið af fundi. Engar slíkar vís­bend­ingar hafi hins vegar komið fram. „Í ein­lægni sagt þykir mér þetta mál afar leitt því ég vinn ég vinnu mína af heil­indum og kost­gæfni. En þarna er það mat aðila sem ég virði, að mér hafi yfir­sést.Ég mun axla ábyrgð á því að hafa ekki vikið af umræddum fundi með því að segja mig frá störfum í nefnd­inni," segir Árni enn fremur í yfir­lýs­ingu sinni.

Yfirlýsing Árna Sigfússonar í heild sinni:

„Í til­efni af frétt í Kjarn­anum af áliti umboðs­manns Alþingis um að það hafi ekki verið rétt stjórn­sýsla að ég stæði að til­lögum til Orku­sjóðs um styrk­veit­ingar til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar, þar sem for­stjóri hennar sé bróðir minn, vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ég hef aldrei verið beð­inn um að gera grein fyrir þessu máli hjá umboðs­manni Alþingis.

Áherslu­at­riði sem styrkt skyldu 2015, sam­kvæmt aug­lýs­ingu, voru ekki ákveðin af okkur sem komum öll ný að ráð­gjafa­nefnd­inni eftir að sú aug­lýs­ing hafði verið birt.

Umsókn Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar, sem er rík­is­stofnun, fékk hæstu ein­kunn óháðra sér­fræð­inga (Reglur okkar eru þær að láta meta umsóknir utan nefnd­ar­innar) og kom því ekk­ert við minni setu í ráð­gjafa­nefnd­inni.

Ráð­gjafa­nefndin tekur mið af þeim fjár­veit­ingum sem til umráða eru og leggur þá fram til­lögur til ráð­herra.

Í nefnd­inni kom aldrei til umræðu á nokkurn hátt að ég viki af fundi við afgreiðslu um til­lögur til styrk­veit­inga enda eng­inn ágrein­ingur um þær, allra síst þá sem hlaut hæstu ein­kunn.

Bróðir minn er for­stjóri þess­arar rík­is­stofn­unar en kemur hvergi nálægt, eða á fjár­hags­legra hags­muna að gæta, í ein­staka umsóknum sem unnar eru á hennar vegum um allt land. Hann hefur aldrei rætt við mig um verk­efni Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar sem tengj­ast ráð­gjafa­nefnd Orku­sjóðs.

Hefði ég fengið minnstu vís­bend­ingu um að það kynni að orka tví­mælis að ég tæki þátt í til­lögum til ráðu­neytis um styrk­veit­ingar, vegna þess að sótt var um m.a. í nafni umræddrar rík­is­stofn­unar, hefði ég að sjálf­sögðu setið hjá við afgreiðslu um þetta verk­efni, eða vikið af fundi.

Miðað við nið­ur­stöðu Umboðs­manns, sem ég virði, reyn­ast þetta vera mín mis­tök.

Ég tók sæti í nefnd­inni vegna áhuga og reynslu minnar í orku­málum á Suð­ur­nesjum og hef unnið vel og sam­visku­sam­lega fyrir hana. Ég veit að ráð­gjafa­nefndin hefur unnið vel og heið­ar­lega að störfum sínum.

Vonandi verður þetta álit til þess að aðrir aðilar sem sitja í ráð­gjafa­nefndum og eru tengdir stjórn­endum rík­is­tengdra stofn­ana, hvaða nafni sem þær nefnd­ast, víki af fundum þegar svo ber undir. Þar með verða ákvarð­anir síður vafa und­ir­orpnar.

Í ein­lægni sagt þykir mér þetta mál afar leitt því ég vinn ég vinnu mína af heil­indum og kost­gæfni. En þarna er það mat aðila sem ég virði, að mér hafi yfir­sést.

Ég mun axla ábyrgð á því að hafa ekki vikið af umræddum fundi með því að segja mig frá störfum í nefnd­inni.

Ég þakka nefnd­ar­mönnum ánægju­legt sam­starf og ráð­herra fyrir traustið að til­nefna mig."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár