Hlutfall þeirra sem búa á leigumarkaði eykst

Mikill meiri­hluti fólks á Íslandi sem býr í leigu­hús­næði leigir á almennum mark­aði, eða alls 46 pró­sent. Næst stærstur hluti leigir hjá ætt­ingjum og vinum.

Leigu­mark­að­ur­inn er að stækka á Íslandi en 17 pró­sent þjóð­ar­innar er á leigu­mark­aði sam­kvæmt nýrri könnun sem unnin var af Zenter, að frum­kvæði hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs. Staðan er mjög svipuð því sem var árið 2013 en sé miðað við árin 2006 til 2008, eða í síð­ustu upp­sveiflu, hefur hlut­fall þeirra sem búa á leigu­mark­aði auk­ist um rúm 5 pró­sentu­stig.

Þegar rýnt var í það hvar fólk leigir kemur í ljós að mik­ill meiri­hluti leigir á almennum mark­aði, eða alls 46 pró­sent. Næst stærstur hluti leigir hjá ætt­ingjum og vinum. Sá hópur hefur stækkað hlut­falls­lega mest frá því árið 2015 eða úr 18,6 pró­sent í 22 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­aðaskýrslu Íbúða­lána­sjóðs fyrir nóv­em­ber sem kom út í gær.

Þegar fólk var spurt hvort það teldi lík­legt eða ekki að það yrði á leigu­mark­aði eftir 6 mán­uði þá leiddu nið­ur­stöður í ljós að hlut­fall svar­enda sem telur líkur á að vera á leigu­mark­aði eftir 6 mán­uði er hærra en hlut­fall þeirra sem eru þar nú þegar. Um 19 pró­sent þjóð­ar­innar telja lík­legt að þeir muni vera á leigu­mark­aði eftir hálft ár. Stærstur hluti þeirra sem eru nú þegar á leigu­mark­aði, eða 90 pró­sent, telur lík­legt að vera þar áfram, auk 15 pró­sent þeirra sem búa í for­eldra­húsum.

Um 1 pró­sent sem býr í eigin hús­næði telur lík­legt að vera á leigu­mark­aði eftir 6 mán­uði. Það má ætla að margt ungt fólk á þrí­tugs­aldri sé farið að huga að því að flytja að heiman á næstu árum. Segir í skýrsl­unni að nýj­ustu tölur Hag­stof­unnar er varða fólk á aldr­inum 20 til 29 ára búsett í for­eldra­húsum sýni að árið 2015 bjuggu um 20.000 manns á þrí­tugs­aldri í for­eldra­húsum, en árið 2005 voru þetta í kringum 14.000 ein­stak­lingar. Þetta bendi til þess að aðstæður á hús­næð­is­mark­aði hafi þrengst veru­lega und­an­farin ár og fólk búi lengur í for­eldra­húsum.

Leigjendur vilja flestir kaupa

Þegar leigj­endur voru spurðir hvort þeir myndu vilja vera á leigu­mark­aði eða í eigin hús­næði ef nægj­an­legt fram­boð væri af hvoru tveggja, kemur í ljós að mik­ill meiri­hluti leigj­enda vill kaupa, eða 80 pró­sent þeirra. Leigj­endur virð­ast vilja kom­ast í eigið hús­næði þótt þeir telji flestir líkur á að þeir muni vera áfram á leigu­mark­aði.

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að hlut­fall leigj­enda sem seg­ist geta safnað tals­verðu eða svolitlu sparifé auk­ist úr 28 pró­sent í 46 pró­sent milli kann­ana. Sú nið­ur­staða sé í takt við auk­inn kaup­mátt í þjóð­fé­lag­inu und­an­farin miss­eri. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna jókst um 7,4 pró­sent á árinu 2015 og 6,9 pró­sent á árinu 2016 sam­kvæmt gögnum Hag­stof­unnar, þ.e. alls 14,8 pró­sent á síð­ustu tveimur árum. Hins vegar hafi raun­verð fast­eigna hækkað langt umfram kaup­mátt­ar­aukn­ingu upp á síðkastið. Frá des­em­ber 2015 fram í sept­em­ber 2017, eða milli þess sem spurn­inga­kann­an­irnar voru fram­kvæmdar, hafi hækkað raun­verð fast­eigna um 28 pró­sent.

Enn hægir á fasteignamarkaðinum

Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,8 pró­sent milli mán­aða í sept­em­ber, en 12 mán­aða hækkun vísi­töl­unnar í sept­em­ber var 19,6 pró­sent. Frá því um mið­bik sum­ars hafa komið fram skýrar vís­bend­ingar um að hægt hafi á fast­eigna­mark­aðnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir mikla upp­sveiflu fyrr á árinu. Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að færri við­skipti hafi átt sér stað und­an­farna mán­uði en á sama tíma í fyrra, og í ein­stökum hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafi verð staðið í stað eða jafn­vel lækkað und­an­farna mán­uði. Vegið fer­metra­verð lækk­aði milli ann­ars og þriðja árs­fjórð­ungs þessa árs í fimm póst­núm­erum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Mest var lækk­unin í póst­núm­er­inu 109 sem nær til Selja­hverfis og Neðra­Breið­holts, eða um 5 pró­sent, en verð lækk­aði einnig meðal ann­ars í Vesturbæ Reykja­víkur, eldri hluta Kópavogs og á Sel­tjarn­ar­nesi. Skýrslu­höf­undar telja það ekki endi­lega vera áhyggju­efni fyrir eig­endur fast­eigna að verð lækki milli ein­stakra mán­aða eða árs­fjórð­unga í ein­stökum hverfum en vert sé að halda áfram að fylgj­ast með þess­ari þróun. Á móti komi að fast­eigna­verð hækk­aði mikið milli árs­fjórð­unga í 103 Reykja­vík, sem nær til hluta Háa­leit­is­hverfis, og í 113 Reykja­vík, sem nær til Graf­ar­holts og Úlf­arsár­dals.

Verð hækk­aði einnig í Garðabæ og mið­svæðis í Hafn­ar­firði. Í skýrsl­unni er ítrekað að þegar svo smá mark­aðs­svæði eru undir sé mik­il­vægt að túlka þróun milli ein­stakra árs­fjórð­unga ekki um of. Það sé mat hag­deildar að á fyrri hluta þessa árs hafi fast­eigna­verð hækkað nokkuð meira en und­ir­liggj­andi stærðir rétt­læta, svo sem laun og bygg­ing­ar­kostn­aður. Í maí á þessu ári hafði fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 23,5 pró­sent á 12 mán­uðum. Allra síð­ustu mán­uði hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hins vegar hækkað nokkurn veg­inn í takt við lang­tíma­þróun og und­ir­liggj­andi efna­hags­stærðir.

Á tíma­bil­inu júní til sept­em­ber var hækkun vísi­tölu íbúða­verðs 8,9 pró­sent, fram­reiknað á árs­grund­velli - það er að segja að ef sami taktur helst á þróun fast­eigna­verðs í 12 mán­uði. Til sam­an­burðar var 12 mán­aða hækkun launa­vísi­tölu 7,4 pró­sent í sept­em­ber og síðan 1995 hefur 12 mán­aða hækkun vísi­tölu íbúða­verðs að með­al­tali verið 8,2 pró­sent.

Tíminn eykst milli auglýsinga og kaupa

Hagdeild Íbúða­lána­sjóðs hefur nú þróað nýjar grein­ingar á fast­eigna­mark­aði með því að keyra saman gögn um kaup­samn­inga og fast­eigna­aug­lýs­ingar. Með því móti fæst heild­stæð­ari mynd af fast­eigna­mark­aði en áður hefur verið aðgengi­leg almenn­ingi. Gögn um kaup­samn­inga eru frá Þjóðskrá Íslands, en gagna um fast­eigna­aug­lýs­ingar er aflað í sam­starfi við Félag fast­eigna­sala.

Tíminn milli þess sem fast­eignir eru aug­lýstar og sölu hefur farið minnk­andi um allt land síðan árið 2015, sam­kvæmt skýrsl­unni. Lengi vel var nokkur munur á milli svæða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hvað varðar lengd sölu, en þar hefur dregið veru­lega saman und­an­farin miss­eri. Nú er tíma­lengdin svipuð á eignum í úthverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og mið­svæðis í Reykja­vík. Þróunin í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sker sig úr í þessu til­liti. Í upp­hafi þessa árs höfðu íbúðir þar að með­al­tali verið í sölu í um sex mán­uði áður en þær seld­ust, en í dag er þessi tími innan við tveir mán­uðir sem er svipað og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Margar íbúðir seljast undir ásettu verði

Íbúðir selj­ast að með­al­tali undir ásettu verði á öllum mark­aðs­svæðum á land­inu. Það á jafnt við um mið­borg Reykja­víkur, úthverfi borg­ar­innar og á lands­byggð­inni. Í sept­em­ber seld­ust um 72 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu undir ásettu verði, en 14 pró­sent á ásettu verði og 14 pró­sent yfir ásettu verði. Segir í skýrsl­unni að tals­verðar vænt­ingar hafi skap­ast til fast­eigna­mark­að­ar­ins fyrr á árinu, og nokkur umræða verið um að íbúðir seld­ust í vax­andi mæli á yfir­verði.

Gögn renna stoðum undir það, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum, en síð­asta vetur og vor var mikil aukn­ing í þá átt­ina og í apríl voru um 30 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seldar á yfir­verði. Eftir sem áður voru um 54 pró­sent íbúða seldar undir ásettu verði í þeim mán­uði. Veru­legur og hraður við­snún­ingur hefur þó orðið á þessum síð­ustu mán­uðum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur mun­ur­inn á kaup­verði og ásettu verði auk­ist mest í Reykja­vík vestan Kringlu­mýr­ar­brautar, þar sem íbúðir seld­ust að með­al­tali um 2,6 pró­sent undir ásettu verði í sept­em­ber. Segir enn fremur í skýrsl­unni að það veki einnig athygli, ef þessi mæli­kvarði er hafður til hlið­sjónar, að það hafi ekki aðeins hægst á mark­aðnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur einnig í nágrenni þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár