Íbúðalánasjóður kaupir 50 milljarða lánasafn af Arion banka

Arion banki mun áfram þjón­ustu og inn­heimta tug millj­arða verð­tryggt lána­safn sem Íbúð­ar­lána­sjóður hefur keypt af bank­anum.

Íbúða­lána­sjóður hefur ákveðið að kaupa 50 millj­arða króna safn af verð­tryggðum lánum af Arion banka. Arion banki mun áfram þjón­usta og inn­heimta lánin. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í dag.

Þar segir að fjár­mun­irnir séu að mestu leyti greiðsla sem sjóð­ur­inn fær til sín þegar Arion banki greiðir upp sér­tryggðan skulda­bréfa­flokk síðar í haust. „Afar mik­il­vægt er fyrir sjóð­inn að end­ur­fjár­festa lausa­fjár­munum sínum með þessum hætti í sam­bæri­legum tryggum fjár­fest­ing­ar­flokkum sem gefa sjóðnum góða ávöxtun til langs tíma.“

Í til­kynn­ing­unni segir að kaupin séu mik­il­vægt skref í fjár­stýr­ingu sjóðs­ins og lág­marki tap hans á upp­greiðslum veittra lána. „Skuldir Íbúða­lána­sjóðs eru nær allar verð­tryggðar til langs tíma.. Stærstur hluti eigna sjóðs­ins eru verð­tryggð íbúða­lán en miklar upp­greiðslur þeirra hafa valdið því að safn­ast hefur upp mikið lausafé.

Sjóðnum er ætlað að halda sem mestu jafn­vægi milli eigna og skuld­bind­inga og því er mik­il­vægt fyrir sjóð­inn að geta fest fé í verð­tryggðum eignum til lengri tíma. Mögu­leikar sjóðs­ins til fjár­fest­inga á mark­aði hafa verið tak­mark­aðir vegna tak­mark­aðs fram­boðs og mik­illar eft­ir­spurnar eftir verð­tryggðum eignum síð­ustu miss­erin. Því er hag­stætt fyrir sjóð­inn, út frá sjón­ar­hóli fjár- og áhættu­stýr­ingar, að hafa tryggt sér umtals­vert magn vaxta­ber­andi verð­tryggðra lána í einum við­skiptum. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn um leið og öll skil­yrði hafa verið upp­fyllt og við­eig­andi eft­ir­lits­að­ilar hafa veitt sam­þykki sitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár